Fréttablaðið - 10.07.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.07.2008, Blaðsíða 8
8 10. júlí 2008 FIMMTUDAGUR INDLAND Eiturefnamengun plagar enn íbúa í borginni Bhopal á Ind- landi, 24 árum eftir slysið mikla þegar sprenging varð í eiturefna- verksmiðju Union Carbide. Enn þann dag í dag eru hundruð tonna af eiturefnaúrgangi geymd á lóð verksmiðjunnar, sem stend- ur í hjarta borgarinnar. Frá þessu er skýrt í bandaríska dagblaðinu New York Times. Efnin eru í geymslu með blikk- þaki og þær fáu rannsóknir, sem gerðar hafa verið á mengun í nágrenninu, benda til þess að efnin hafi borist út í umhverfið. Í það minnsta má finna hættulegt magn af eiturefni í vatnsbrunnum fólks. Mjög skortir þó á frekari rann- sóknir og indversk stjórnvöld hafa sýnt lítil viðbrögð við áhyggjum íbúanna. Verksmiðjulóðin hefur ekki verið hreinsuð og eiturefnin ekki flutt á brott, þennan aldar- fjórðung sem liðinn er. Seinagangurinn stafar meðal annars af deilum um það, hvort stjórnvöld eigi að bera kostnaðinn af hreinsuninni eða hvort efna- framleiðslufyrirtækið Dow, sem keypti Union Carbide árið 2001, eigi að taka þátt í kostnaðinum. Slysið árið 1984 varð þrjú þús- und manns að bana, en að auki er talið að þúsundir manna hafi síðan látið lífið af völdum eiturefnanna sem þá bárust út í andrúmsloftið. Enn eru börn að fæðast með alvar- lega fæðingargalla í Bhopal. - gb Aldarfjórðungi eftir eiturefnaslysið í Bhopal á Indlandi: Mengun plagar enn íbúana MÓTMÆLI Í BHOPAL Íbúar borgarinnar hafa lengi verið ósáttir við seinagang stjórnvalda. NORDICPHOTOS/AFP T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA 1 Í hvaða landi fór leiðtoga- fundur G8-ríkjanna fram? 2 Hvaða íslenska eyja var í fyrradag færð á heimsminja- skrá UNESCO? 3 Hvaða íslenska knattspyrnu- lið rak í fyrradag þjálfarann Gunnar Guðmundsson? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50 FLÓTTAMENN Mál Pauls Ramses var ekki kært til dómsmálaráðherra fyrir löngu síðan, þar sem lög- manni hans var ekki tilkynnt um úrskurð, um að hann yrði sendur úr landi, fyrr en kvöldið áður en hann fór, 3. júlí. Þetta segir Katrín Theodórs- dóttir, lögmaður hans, sem skilaði kæru til dómsmálaráðherra í gær. Með fyrrgreindum vinnubrögð- um hafi Útlendingastofnun „komið í veg fyrir að Paul gæti þá þegar kært ákvörðunina,“ segir hún. Helga G. Halldórsdóttir, sviðs- stjóri innanlandssviðs hjá Rauða krossi Íslands (RKÍ), sagði einnig í Fréttablaðinu á laugardag að illa hefði verið að máli Pauls staðið: „Við vissum ekki að hann ætti að fara úr landi þennan dag fyrr en [hann var handtekinn kvöldið áður]. Það hefði verið eðlilegt að gefa þeim tíma til að gera ráðstaf- anir.“ Útlendingastofnun sendir beiðni til ríkislögreglustjóra þegar ákvörðun í máli útlendings skal birt. „Eftir það er þetta úr höndum stofnunarinnar,“ segir Ragnheiður Böðvarsdóttir, stað- gengill forstjóra. Seinni beiðnin fór frá stofnuninni 3. júní. Talsmaður ríkislögreglustjóra, Sigurgeir Sigmundsson, vísar því á bug að nokkuð óvenjulegt hafi verið við afgreiðslu málsins. Dyfl- innar-úrskurðir séu alltaf birtir daginn áður en þeir eru fram- kvæmdir, enda fresti kæra ekki flutningi, samkvæmt lögum. Þessi háttur hafi verið hafður á til margra ára, í samstarfi við RKÍ. Ástæða þess að lögmanni Pauls var ekki gert viðvart hafi verið sú að Paul mætti ekki til birtingar upprunalegrar ákvörðunar, 5. maí. Þá stóð til að senda hann til Ítalíu daginn eftir, 6. maí. Því var frestað eftir beiðni frá RKÍ. „En hann mætti ekki og óskaði því ekki eftir lögmanni. Þá köllum við ekki á lögmann,“ segir Sigur- geir. Flestir útlendingar láti nægja að styðjast við RKÍ og mikið hafi verið gert til að koma til móts við Paul. Hann hafi til að mynda feng- ið að fara heim um kvöldið og haft gesti hjá sér. „Við höfum heimildir til að hafa útlendinga mun lengur í haldi og þannig er þetta gert í nágranna- löndunum. Hér þykir mjög mann- úðlega að staðið. En það er algjört lágmark [að hneppa menn í varð- hald] daginn áður,“ segir hann. Annars bar til tíðinda í gær að punktar Jóns Magnússonar, þing- manns Frjálslyndra, af fundi alls- herjarnefndar um Paul Ramses, rötuðu á netið í gær. Jón kveður þetta ekki með vilja gert. „Ég er öskureiður,“ segir hann. Punktarn- ir hafi farið á netið fyrir mistök starfsmanns. klemens@frettabladid.is Úrskurðir séu ávallt birtir daginn áður Lögmaður Pauls Ramses segir að málið hafi ekki verið kært fyrir löngu síðan vegna þess að honum var ekki tilkynnt um úrskurðinn. Rauði krossinn kvartar einnig. Ríkislögreglustjóri segir ekkert óvenjulegt við afgreiðslu málsins. LOKSINS KÆRT Katrín Theodórsdóttir afhenti í gær kæru um úrskurð Útlendinga- stofnunar í máli Pauls Ramses. Dómsmálaráðherra ætlar að fara vandlega yfir málið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ■ 31.01 Paul sækir um hæli hér. ■ 31.03 Ítalir fallast á að taka við honum. ■ 26.03 Lögmaður Pauls biður um að umsókn hans verði tekin til meðferðar hér. ■ 09.04 Ákvörðun um að senda Paul til Ítalíu send frá Útlend- ingastofnun til ríkislögreglustjóra (RLS). ■ 05.05 RLS boðar Paul og Rauða krossinn til að tilkynna honum þetta og ætlar að senda hann út daginn eftir. Paul mætir ekki. Ákveðið að bíða þar til kona Pauls verður léttari. ■ 26.05 Fídel Smári fæðist. ■ 03.06 Útlendingastofnun sendir aðra ákvörðun um flutning Pauls til RLS. ■ 25.06 Ákvörðunin ítrekuð til RLS. ■ 02.07 RLS birtir Paul þessa ákvörðun um kvöldið, á lögreglu- stöð. ■ 03.07 Paul sendur úr landi. ■ 09.07 Lögmaður hans kærir. DAGSETNINGAR SKIPULAGSMÁL Tillaga að nýju skipulagi Laugavegar 4 og 6 var samþykkt á fundi skipulagsráðs í gærmorgun. Tillagan var unnin af Teiknistofu arkitekta – Gylfi Guð- jónsson og félagar ehf. Milli húsanna verður tengibygg- ing sem tengir saman húsin, með kjallara, einni hæð og annarri inn- dreginni hæð. Á þaki tengibygg- ingarinnar skapast „gott rými til útivistar“, samkvæmt fréttatil- kynningu. Einnig er gert ráð fyrir að hægt sé að fara á milli húsanna og Skólavörðustígs 1a. Gert er ráð fyrir góðu verslun- ar- og þjónustuhúsnæði í húsunum en við gerð tillögunnar var götu- mynd neðri hluta Laugavegar frá fyrri hluta 20. aldar höfð að leiðar- ljósi. Ábendingar frá Minjasafni Reykjavíkur og húsafriðunar- nefnd voru hafðar til hliðsjónar við gerð tillögunnar. Tillögurnar eru til sýnis hjá skipulags- og byggingarsviði í Borgartúni 3 auk þess sem þær verða sýndar á skipulagssýningu sem var opnuð 17. júní síðastliðinn og mun verða opin í allt sumar. Sýningin er til húsa á Laugavegi 33. - vsp Nýtt skipulag Laugavegar 4 og 6 samþykkt í gærmorgun: Hægt verður að ganga á milli LAUGAVEGUR 4 OG 6 Hér sést tillagan sem samþykkt var á fundinum í gærmorgun. Tengihúsið er áberandi milli húsanna. DÓMSMÁL Nítján ára maður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðs- bundið fangelsi fyrir líkamsárás sem hann framdi um þjóðhátíðar- dags helgina í fyrra. Maðurinn var á tjald stæðinu við Hamra á Akureyri aðfaranótt laugar dagsins 16. júní þegar hann sló annan mann tveimur þungum hnefahöggum í andlitið. Sá slegni féll í jörðina og vankaðist, bólgnaði á vinstri kinn og hlaut auk þess vægan höfuð verk. Hann hefur þó náð sér að fullu. Árásarmaðurinn játaði brot sitt greiðlega. Honum er gert að greiða fimmtán þúsund krónur í sakarkostnað. - sh Dæmdur fyrir líkamsárás: Hátíðarskapið yfirgaf táning AUSTURRÍKI, AP Wilhelm Molterer, formaður austurríska Íhaldsflokks- ins og varakanslari Austurríkis, sagðist á mánudag ætla að mæla fyrir því að boðað verði til snemmbú- inna kosninga. Með því væri stjórnar- samstarfi Íhalds- flokks og Jafnaðar- flokks, tveggja stærstu flokkanna, lokið. Ástæðuna segir hann vera tillitsleysi jafnaðarmanna gagnvart samstarfsflokknum. Nú síðast kynnti formaður Jafnaðarflokksins hugmyndir um að breytingar á stöðu Austurríkis í Evrópusam- bandinu yrðu lagðar undir þjóðaratkvæði, að íhaldsmönnum óforspurðum. - gh Formaður Íhaldsflokksins: Stjórnarslit í Austurríki WILHELM MOLTERER VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.