Fréttablaðið - 10.07.2008, Blaðsíða 55
FIMMTUDAGUR 10. júlí 2008 35
Fjórir listamenn starfrækja
saman vinnustofur vestur
í bæ í gömlu fiskigeymslu-
húsi. Í síðustu viku opnuðu
þau sýningu á verkum
sínum í húsinu í sýningarsal
sem þau kalla Él.
Sýningin hlaut aftur á móti nafnið
Aliance og má á henni sjá verk
eftir þau Þórunni Björnsdóttur,
Þórönnu Dögg Björnsdóttur, Viðar
Þór Guðmundsson og Friðrik Örn
Hjaltested. Þó svo að þau eigi öll
vinnustofur í sama húsinu er nálg-
un þeirra á listina afar ólík; Viðar
sýnir málverk og Friðrik ljós-
myndir, en Þórunn og Þóranna
sýna báðar verk sem blanda saman
tónlist og myndlist.
„Húsnæðið er í raun ástæðan
fyrir þessari sýningu,“ segir Þór-
anna. „Það hefur farið talsverð
vinna í að gera það upp og okkur
langaði til þess að nýta þessa
aðstöðu sem við höfum hér til þess
að sýna afrakstur vinnu okkar.“
Sýningin er sett upp á heldur
óhefðbundinn hátt þar sem hún
einskorðast ekki við tiltekinn sýn-
ingarsal heldur dreifir úr sér.
Þannig sýna þau Þóranna, Viðar
og Friðrik verk sín í salnum Él, en
verk Þórunnar er sett upp í hús-
gagnaversluninni Saltfélaginu
sem er í sama húsi. Jafnframt er
opið upp á aðra hæð hússins þar
sem listamennirnir eru með vinnu-
stofur sínar, en þar geta gestir
kynnt sér það sköpunarferli sem
liggur að baki myndlist fjórmenn-
inganna.
Húsnæðið sjálft er friðað og
segir Þóranna anda liðinna tíma
svífa þar yfir vötnum. „Hér var
fyrst fiskigeymsla og svo var
húsið notað undir ýmsa iðnaðar-
starfsemi og það ber þess líka aug-
ljós merki; langir kæligangar og
teinar í gólfum. En það hentar
okkur engu að síður afar vel sem
bæði vinnu- og sýningarrými,
enda er hér nóg pláss.“
Sýningin Aliance stendur til 31.
júlí og segir Þóranna að möguleiki
sé á því að fleiri sýningar verði
settar upp í Él þegar fram líða
stundir. Áhugafólk um myndlist
getur heimsótt sýningarsalinn Él
að Grandagarði 2, en hægt er að
ganga inn í hann í gegn um versl-
unina Saltfélagið.
vigdis@frettabladid.is
Myndlist í fiskigeymslu
UNNIÐ Í FISKIGEYMSLU Sýningin Aliance stendur yfir til loka mánaðarins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Myndlistarkonurnar Anna
Sigríður Sigurjónsdóttir og
Álfheiður Ólafsdóttir opna
sýninguna Vorgöngu í Salt-
fisksetrinu í Grindavík á laug-
ardag kl. 14. Sýningin stendur
til 11. ágúst og er opin daglega
á milli kl. 11 og 18. Heimilis-
legur tónn verður sleginn á
sjálfri opnuninni þar sem Álf-
heiður og Anna Sigríður munu
bjóða sýningargestum upp á
heimabakaðar hveitikökur
með hangikjöti og osti.
Anna Sigríður er mynd-
höggvari og hefur unnið við
myndlist síðastliðin tuttugu ár
eftir að námi lauk. Hún stund-
aði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og
AKI, Akademie voor beeldende kunst, í Hollandi.
Hún hefur tekið þátt í fjölda
sýninga bæði hérlendis og
erlendis.
Álfheiður er starfandi
myndlistamaður og rekur
galleríið Art-Iceland. Hún
lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskólanum árið 1990
og hefur unnið við myndlist-
artengd störf síðan. Hún
hefur haldið fjölda sýninga
og gaf út barnabókina Grím-
ur og sækýrnar árið 2000, þar
sem hún er höfundur mynda
og texta. Sýningin Vorganga
er unnin eftir samnefndu
ljóði eftir bróður hennar Jón
Ólafsson. Sýningin er til
minningar um hennar trygga bróður, en hann lést 24.
júní síðastliðinn. - vþ
Vorganga um hásumar
ÍSLENSK NÁTTÚRA Verk eftir Álfheiði Ólafsdóttur.
Tónlistarhátíðin í Skálholti held-
ur áfram með glæsilegu tón-
leikahaldi. Sönghópurinn Hljóm-
eyki treður upp í kirkjunni í
kvöld kl. 20 og verður þá mikið
um dýrðir. Hópurinn flytur Nátt-
söngva Rachmaninovs, en um er
að ræða eitt af sannkölluðum
stórvirkjum tónbókmenntanna.
Stjórnandi kórsins er Magnús
Ragnarsson, en eins og lesendur
Fréttablaðsins muna væntanlega
stýrði hann söngvurunum til sig-
urs í kórakeppni í Frakklandi nú
í vor.
Tónleikarnir eru tvískiptir og
eftir hlé mun þýski Ishum-kvart-
ettinn flytja strengjakvartett
eftir Giuseppe Verdi. Ishum-
kvartettinn skipa Lisa Immer og
Elfa Rún Kristinsdóttir á fiðlur,
Adam Römer á víólu og Michael
Römer á selló.
Staðartónskáld Sumartónleika
í Skálholti að þessu sinni er
Sveinn Lúðvík Björnsson, en á
laugardag kl. 14 flytja Ishum-
kvartettinn, Hljómeyki, Þóra
Margrét Sveinsdóttir víóluleik-
ari og Sigurður Halldórsson sell-
óleikari nokkur verk eftir Svein,
en jafnframt verður frumflutt
nýtt verk sem nefnist Missa
brevis. Seinna sama dag, kl. 17,
leikur Ishum-kvartettinn verk
eftir Luigi Boccherini, Giovanni
Sollima og W.A. Mozart.
Á sunnudag kl. 15 kemur
Ishum-kvartettinni enn einu
sinni fram og leikur þá tónlist
eftir W.A. Mozart, Heinz Hollig er
og Ludwig van Beethoven. Missa
brevis verður svo endurflutt í
guðsþjónustu í kirkjunni kl. 17 á
sunnudag. - vþ
Náttsöngvar í Skálholti
SKÁLHOLTSKIRKJA Hýsir áhugaverða
tónleika í kvöld og um helgina.
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
*
æft
lja
Ó
EN
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
29
64
0
7
2
0
0
8
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
gullsmiðjan.is