Fréttablaðið - 10.07.2008, Page 4
4 10. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
Sendið umboðsmanni neytenda
ábendingar eða sparnaðarráð á
neytendur@frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@frettabladid.is
Una H. Pétursdóttir skrifar: Í
fluginu til landsins frá
Tenerife með Ferðaskrifstofu
Íslands á þriðjudaginn varð
ég fyrir því að vera rukkuð
fyrir láni á kodda og teppi.
Gjaldið var 6 evrur, en var
frítt fyrir tveimur vikum á
útleið. Gjaldtaka þessi var
hvergi auglýst, á flestu má nú
græða!!!
Margrét Helgadóttir,
framkvæmdastjóri tekjustýr-
ingar hjá Ferðaskrifstofu
Íslands, svarar: „Teppið og
koddinn eru til eignar. Þeir
hjá Futura Airlines, sem
fljúga fyrir okkur, byrjuðu á
þessu fyrir sirka tveimur
vikum. Þetta eru ágætis teppi
og góðir koddar og mér
finnst 6 evrur (715 kr.) fyrir
þetta tvennt nú ekkert
svakalegt.“
Sex evrur í háloftunum:
Rukkað fyrir
teppi og kodda
TEPPI OG KODDAR Fást í Futura-
þotum á 6 evrur.
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhofen
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20
12
13
15
12
15
11
14
13
13
12
14
6
2
8
5
6 5
12 14
14
13
12
21°
18°
25°
24°
21°
18°
22°
22°
22°
23°
20°
28°
24°
28°
29°
30°
28°
22°
Á MORGUN
Hæg, breytileg átt og
yfi rleitt þurrt.
2
LAUGARDAGUR
3-10 m/s, stífastur
síðdegis.
3
3
3
2
12
12
13
1212
VÆTUSAMUR
SUNNUDAGUR
Þótt greina megi
breytingar á veðrinu
strax á morgun í þá
átt að þungbúnara og
heldur svalara verði á
landinu er ekki að sjá
mikla úrkomu næstu
daga. Seint á laugar-
dag má búast við vætu
vestast á landinu og
á sunnudag verður
rigning sunnan og
vestan til en yfi rleitt
þurrt annars staðar.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Kringlunni • sími 568 1822
www.polarnopyret.is
STJÓRNSÝSLA „Flugmenn hjá Land-
helgisgæslunni hafa haft samband
við okkur til að kanna hver staða
þeirra er gagnvart því að auglýst
er staða flugmanns samhangandi
við flugrekstrarstjórastöðuna,“
segir Jóhannes Bjarni Guðmunds-
son, formaður Félags íslenskra
atvinnuflugmanna (FÍA).
Landhelgisgæsla Íslands hefur
nú auglýst starf
flugrekstrar-
stjóra og flug-
manns. Geir-
þrúður
Alfreðsdóttir
hefur gegnt því
starfi í meira en
tvö ár. Þegar
hún var ráðin
var tekið fram
að sú breyting
yrði, frá því
sem áður var, að flugrekstrar-
stjóri myndi eingöngu sinna störf-
um á jörðu niðri en ekki fljúga
vélum Gæslunnar. Geirþrúður
sóttist hins vegar fljótlega eftir
því að setjast samhliða starfinu í
flugmannssæti.
Flugmenn Landhelgisgæslunn-
ar sem rætt var við vildu ekkert
láta hafa eftir sér undir nafni um
málið. Þeim bar hins vegar saman
um að gremja væri innan þeirra
raða með að flugrekstrarstjórinn
vildi einnig vera flugmaður. Það
sé meðal annars vegna ótta um
starfsöryggi. Þeir líti svo á að aug-
lýsingin nú sé sniðin að Geirþrúði.
Í henni sé meðal annars tekið fram
að umsækjandi þurfi að vera
háskólamenntaður sem ekki hafi
verið áður. Jafnframt því að vera
flugmaður er Geirþrúður verk-
fræðingur.
„Er nýráðinn flugrekstrarstjóri
fór að sækjast eftir sæti flug-
manns þá fór allt í hnút þar sem
starfandi flugmenn voru ekki sátt-
ir við að flugrekstrarstjóri gæti
tekið sér sæti á starfsaldurslista
án þess að fara í gegnum sérstakt
ráðningarferli þar inn eins og
aðrir flugmenn,“ segir um málið á
heimasíðu FÍA.
Oddamaður í sérstöku Starfs-
ráði skar úr um það í fyrra að
Geirþrúður mætti ekki fara inn á
starfsaldurslistann að óbreyttu.
Farið er eftir listanum ef gripið er
til uppsagna.
Umsóknarfrestur um starf flug-
rekstrarstjórans rennur út sunnu-
daginn 13. júlí. Að sögn Jóhannes-
ar Bjarna er lögmaður FÍA enn að
fara yfir stöðu flugmanna gagn-
vart því að sækja um starfið. Hann
vill ekki tjá sig nánar um málið.
Geirþrúður Alfreðsdóttir kveðst
kjósa að svara því ekki hvort hún
sé að hætta eða hvort hún hyggist
sækja um starfið aftur. Varðandi
það hvers vegna talin er þörf á að
bæta flugmannsþættinum við
starfslýsingu flugrekstrarstjóra
vísar Geirþrúður á Landhelgis-
gæsluna.
Halldór Nellet, staðgengill for-
stjóra Landhelgisgæslunnar,
kveðst ókunnugur málinu og vísar
á Svanhildi Sverrisdóttur starfs-
mannastjóra. Hún svaraði ekki
skilaboðum í gær. gar@frettabladid.is
Starfsauglýsing vekur
undrun Gæslumanna
Lögmaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna fer nú yfir stöðu flugmanna
vegna auglýsingar á starfi flugrekstrarstjóra Landhelgisgæslunnar. Ágreiningur
varð þegar núverandi flugrekstrarstjóri vildi jafnframt sinna starfi flugmanns.
JÓHANNES BJARNI
GUÐMUNDSSON GEIRÞRÚÐUR ALFREÐSDÓTTIR Flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslu Íslands vill ekki
gefa upp hvort hún er að hætta eða hvort hún sækist áfram eftir starfinu. Myndin er
tekin í júní 2006 eftir að Geirþrúður tók við starfi sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL
FRAKKLAND, AP Hans-Gert
Poettering, forseti Evrópuþings-
ins í Strassborg, hefur ákveðið að
mæta ekki á opnunarhátíð
Ólympíuleikanna í Kína í næsta
mánuði.
Hann skýrði frá þessari ákvörð-
un sinni í gær, eftir að Nicolas
Sarkozy Frakklandsforseti
sagðist ætla að mæta á opnunar-
hátíðina þrátt fyrir að viðræður
um aukin réttindi Tíbetbúa hafi
engum árangri skilað.
Evrópuþingið hefur gagnrýnt
þessa nýju afstöðu Frakklands-
forseta í málinu. - gb
Forseti Evrópuþingsins:
Sniðgengur Ól-
ympíuleikana
HANS-GERT POETTERING Ósáttur við
afstöðu Frakklandsforseta.
NORDICPHOTOS/AFP
AUSTURRÍKI Týnd fjallgöngukona í
austurrísku Ölpunum bjargaði lífi
sínu með því að kasta brjóstahald-
ara sínum í ferjukláf sem var á
leiðinni upp fjallið.
Hin 24 ára gamla Jessica Brown
frá Bandaríkjunum féll af
klettasyllu og þurfti að dúsa særð á
fjallinu í sjötíu klukkustundir í
miklum kulda. Björgunarmenn
höfðu gefið leit upp á bátinn þegar
hún sá ferjukláf sem innihélt vistir
fyrir vinnumenn á toppi fjallsins.
Jessica henti brjóstahaldaranum
sínum um borð sem vinnumennirn-
ir sáu og létu hefja leit að nýju.
Jessica dvelur nú á sjúkrahúsi
og er á góðum batavegi. - kg
Týnd fjallgöngukona:
Brjóstahaldari
til bjargar
Ofsagt var í blaðinu í gær að forstjóri
Útlendingastofnunar vildi ekki svara
spurningum um mál stofnunarinnar.
Hið rétta er að hann vill ekki ræða
mál Pauls Ramses frekar, en svarar
almennum spurningum með glöðu
geði, eins og gert er í dag í blaðinu.
Ekki gafst tími til svars í gær.
LEIÐRÉTTING
ORKUVEITAN „Einu gögnin sem ég
fór með voru mín eigin sem voru
afhent á fundum,“ segir Guð-
mundur Þóroddsson, fyrrver-
andi forstjóri Orkuveitunnar.
Samkvæmt fréttum Sjón-
varpsins í gærkvöld á Guðmund-
ur að hafa tekið fundargerðir
síðastliðinna tíu ára auk fundar-
gagna. Leitað hefur verið aðstoð-
ar lögfræðinga vegna þessa.
Krafist er í bréfi sem Guðmund-
ur fékk í gær að hann afhendi
gögnin auk jeppabifreiðar og
farsíma sem hann hafði til afnota
þegar hann var forstjóri Orku-
veitunnar.
„Ég ráðfærði mig við lögfræð-
ing Orkuveitunnar sem taldi að
þetta væri hluti af starfskjörum
mínum,“ segir Guðmundur.
Hjörleifur Kvaran, núverandi
forstjóri Orkuveitunnar, segir
lögfræðingana sem sömdu um
starfslok Guðmundar vera ann-
arrar skoðunar. „Þeir telja að
hann eigi ekki rétt á þessum
hlunnindum,“ segir Hjörleifur.
Hjörleifur segir að hann og
Guðmundur hafi talað saman
símleiðis og hann viti ekki betur
en Guðmundur ætli að skila þeim
gögnum sem hann tók.
„Það að leita til lögfræðings er
ekki að minni beiðni,“ segir
Hjörleifur Kvaran.
Ef Guðmundur skilar ekki
gögnunum kemur fram í bréfinu
að leitað verði annarra leiða eins
og að fara í mál eða ná fullnustu
málsins með aðfarargerð.
- vsp
Guðmundur Þóroddsson á að hafa tekið fundargögn síðustu tíu ára:
Starfslok Guðmundar umdeild
Tilraunahola við Kópsvatn
Starfsmenn Jarðborana undirbúa nú
fyrir hönd Hitaveitu Flúða að bora til-
raunaholu í leit að heitu vatni í landi
Kópsvatns. Að því er fram kemur á
heimasíðu Hrunamannahrepps er
holan boruð í framhaldi af rann-
sóknum og kortlagningu orkustöðva
í hreppnum og bíða heimamenn
spenntir eftir niðurstöðunum.
HRUNAMANNAHREPPUR
GUÐMUNDUR
ÞÓRODDSSON
Segist hafa
ráðfært sig við
lögfræðing sem
taldi afnot af
jeppa og farsíma
hluta af starfs-
kjörum hans.
GENGIÐ 09.07.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
152,299
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
75,54 75,9
149,06 149,78
118,64 119,3
15,901 15,995
14,743 14,829
12,552 12,626
0,7033 0,7075
122,73 123,47
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR