Fréttablaðið - 10.07.2008, Side 28

Fréttablaðið - 10.07.2008, Side 28
[ ] Að ýmsu þarf að huga þegar unnið er í eldhúsinu. Skipta þarf um borðtusku reglulega og þvo vask og þvottabursta með sápu. „Það eru vissir hlutir sem hafa þarf í huga svo sem umgengni á borðklútnum, uppþvottaburstan- um og vaskinum,“ segir Benedikta G. Waage hússtjórnarkennari þegar hún er spurð um hreinlæti í eldhúsi. „Oft er talað um að borð- klúturinn sé mesta bakteríustía sem til er. Í hússtjórnarskólanum skiptum við um tusku daglega og gott er að gera slíkt hið sama heima fyrir.“ Benedikta undirstrikar mik- ilvægi þess að þvo allt úr eldhúsinu á suðu. „Sumir eru að þvo á 60 gráðum en það borgar sig að sjóða allan þvott úr eldhúsinu. Það er líka mikilvægt fyrir þvottavélarn- ar, ef maður sýður aldrei þá getur sveppur myndast í vél- unum.“ Eftir að hafa strokið af með borðtuskunni kveðst Benedikta þvo hana upp úr sápu- vatni, skola með vel volgu vatni og síðan það sem færri þekkja er að hreinsa í gegn með köldu vatni að lokum. „Þetta er hundgamalt húsráð frá henni ömmu minni. Þetta virkar eins og með mjólkina, mjólkurílát er best að skola fyrst með ylvolgu eða jafnvel köldu vatni, ef maður lætur það beint í upp- þvottavélina þá hleypur mjólkin,“ segir Benedikta. Gott er að þvo uppþvottaburst- ann og vaskinn upp úr sápuvatni daglega og stinga síðan burstanum í uppþvottavélina einu sinni í mán- uði. „Síðan er hægt að nota stál- svampa og ræstikrem á erfiða bletti í vaskinum. Kaffi og te sest til dæmis mikið fyrir í vösk- um.“ Miklu skiptir að þvo skurðbrettin vel en Benedikta segist aðeins nota brauð og annað þurrmeti á trébretti. „Passa verður að þvo brettin mjög vel. Skola þau, bursta vel í sápu- vatni og láta þau svo þorna. Ekki láta þau inn í skápinn hálfrök, þá getur hálfgerð mygla komið.“ Flestir eru á varðbergi gagnvart smithættu af kjúklingi en þó eru ekki allir meðvitaðir um kross- mengunina. „Maður verður að passa rosalega vel að smita ekki á milli, til dæmis nota ekki hníf í grænmetið sem notaður var í kjúkl- inginn. Svo verður að þvo brettin afskaplega vel og ég spreyja þau alltaf að lokum með sótthreinsandi efni sem fæst til dæmis í Rekstrar- vörum. Uppþvottavélar eru líka sótthreinsandi.“ mariathora@frettabladid.is Skolað af með köldu Benedikta G. Waage er hússtjórnarkennari í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Púðar eru tilvaldir til að lífga upp á til dæmis sjón- varpssófann. Þeir lífga ekki aðeins upp á heldur gera veruna í sófanum þægilegri. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Sölustaðir: Járn & Gler · Garðheimar · Húsasmiðjan · Egg · Búsáhöld Kringlunni · Pottar og Prik Akureyri · Gallerý kjöt og Fiskisaga · www.weber.is – ekki bara grill X E IN N J G E B G 5 x4 0 2 A T A R N A Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.