Fréttablaðið - 10.07.2008, Page 29
FIMMTUDAGUR 10. júlí 2008 3
Í laginu eins og
mjólkurflaska
KARAFLA Í ÝMSUM LITUM.
Margir þekkja hina klassísku Evu
Solo karöflu sem er í laginu eins
gamaldags mjólkurflaska. Karafl-
an tekur um einn lítra og pass-
ar vel í ísskápshurðina, enda er
hún hönnuð með það í huga. Op
karöflunnar er nógu stórt til að
hægt sé að setja í hana ísmola og
niðurskorna ávexti og á henni er
lok sem opnast sjálfkrafa þegar
hellt er. Með þessu móti má losna
við hið dæmigerða ísskápaeftir-
bragð og einnig kastast ísmolarn-
ir ekki úr karöflunni þegar hellt er.
Það sem setur þó punktinn yfir i-
ið er kápan sem hægt er að klæða
karöfluna í en kápan er einangr-
andi og heldur innihaldinu köldu.
Það skemmtilega er að kápan fæst
í ýmsum litum og má því hressa
upp á gömlu góðu karöfluna með
því að fá sér nýja kápu. Litirnir
sem eru í boði eru: svartur, rauð-
ur, appelsínugulur, límónugrænn
og blár. Kápan er með rennilás
þannig að auðvelt er að fjarlægja
hana og setja má karöfluna í upp-
þvottavél. Hönnuðir karöflunnar
góðu eru Henrik Holbaek og Claus
Jensen en hún fæst meðal annars
í Húsgagnahöllinni á 5.980 krónur.
- hs
Þvottahús – Hreinlætisvörur
Barnableiur
Hvert barn notar að meðaltali
um 5.000 bleiur fyrstu æviárin.
Einnota bleiur hafa mjög slæm
áhrif á umhverfið en létta að
sjálfsögðu mikið á þvotti og
vinnu þeirra sem annast börn.
Barnsrassinn finnur að öllum
líkindum heldur ekki eins mikið
fyrir óþægindum og af taubleium.
Það er því erfitt að fara fram á
það við uppalendur barna að þeir
leggi á sig ómælda aukavinnu til
að vera umhverfisvænir. Hver
og einn verður að ákveða hvort
það sé þess virði eða ekki.
Hægt er að kaupa taubleiur úr
lífrænni bómull og góðar bleiu-
buxur úr lífrænni ull. Einnig eru
til lífræn silkiinnlegg í bleiur.
Þetta þarf að þvo og þurrka og
það skapar mikla vinnu fyrir og
eykur vatns- og þvottaefnis-
eyðslu.
Ef einnota bleiur verða fyrir
valinu er betra að þær séu vist-
vænar og helst að þær beri
umhverfisvottun. Forðist bleiur
sem innihalda PVC (vinyl). Gall-
inn við einnota bleiur er sá að
gríðarlegt magn safnast upp og
bleiur með kvoðum og geli sem
tútna út eru fullar af efnum sem
ekki brotna niður í náttúrunni.
Til eru umhverfisvottaðar bleiur
sem eru gerðar úr niðurbrjótan-
legum efnum. Ef neytendur
kaupa aðeins umhverfisvænar
bleiur sendir það skilaboð til
hinna framleiðandanna um að
bæta sína framleiðslu. Þannig
getum við haft bein áhrif á fram-
boðið með vali okkar á hvaða
neysluvörum sem er.
Salernispappír
Jarðarbúar nota gríðarlegt magn
af salernispappír sem þarf síðan
að brotna niður í náttúrunni. Að
velja umhverfisvottaðan salern-
ispappír er í öllum tilfellum
betra fyrir lífríkið.
Sjá meira um þvottahúsið á:
http://www.natturan.is/husid/1269/
GÓÐ RÁÐ
fyrir þig og umhverfið
Náttúran.is - vefur með umhverfisvitund
Rafmagns nuddpottur (49 stútar)
Með foss