Fréttablaðið - 10.07.2008, Qupperneq 34
10. JÚLÍ 2008 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● suðurland
Götuleikhúsið í Árborg hefur verið starfrækt í
fimm ár og nýtur vaxandi vinsælda. Aldrei hafa
borist jafn margar umsóknir og í ár.
„Okkar vinna snýst um að gleðja augað og lífga upp á
sumarið,“ segir Halla Dröfn Jónsdóttir, sem stjórnað
hefur Götuleikhúsinu í Árborg undanfarin ár. Leik-
húsið er opið öllum áttundu bekkingum á svæðinu en
aðeins tólf krakkar komast að ár hvert. „Fyrsta árið
fékk ég akkúrat tólf umsóknir en í ár voru þær þrjá-
tíu talsins. Þetta er því að aukast í vinsældum enda
vita krakkarnir meira að hverju þau ganga þar sem
reynsla er komin á starfið.“
Starfið stendur yfir í fjórar vikur og fer fyrsta
vikan í undirbúning. „Krakkarnir þurfa ekki að vera
sérfræðingar í efninu heldur bara hafa áhuga, vilja
og viðleitni, og þora að koma fram í búningum. Atrið-
in sem við gerum eru leik-, söng- eða danstengd og
vil ég að krakkarnir séu sjálfstæðir í sköpunarvinn-
unni; þeir eiga að koma með hugmyndirnar sjálfir og
skapa atriðin sem þeir sýna,“ segir Halla en bætir
við að hún fínpússi síðan verkið og útfæri svo það
skili sér almennilega.
Krakkarnir sjá sjálfir um búningahönnun og
málningu og segir Halla þau hafa komið sér í opna
skjöldu. „Fyrst var ég svolítið stressuð yfir því að
láta þau gera þetta sjálf, en ég hef ekkert þurft að
biðja um fjármagn fyrir búningum því þetta hefur
komið svo vel út og setur karakter í atriðin.“
Atriðin eru af ýmsum toga: leikþættir, söngatriði,
danssýningar og samsöngur, og eru þau sýnd í þrjár
vikur á ýmsum stöðum. „Fyrsta árið sýndum við að-
allega á götunni en krakkarnir urðu þreyttir á því.
Það var ekki nógu mikil áskorun. Mér fannst að það
yrði að vera aðeins meiri vinna í þessu enda fá krakk-
arnir borgað fyrir starfið svo núna förum við einn-
ig í alla leikskólana í Árborg, elliheimilin, dagvistun
aldraðra og vinnustofu fatlaðra,“ segir hún og bætir
því við að þeim sé alls staðar mjög vel tekið. „Fólki
finnst sumarið ekki vera komið fyrr en við komum
í heimsókn.“
Halla segir það hafa komið sér á óvart hversu
mikil vinna fer í Götuleikhúsið. „Þetta krefst mikill-
ar skipulagningar. Það myndi ekki þýða neitt að fara
bara í búninga og fíflast úti á götu, það myndi alveg
missa marks. Ég held ég hafi lært ýmislegt sjálf á
þessu og mér er farið að þykja mjög vænt um Götu-
leikhúsið.“
- mþþ
Sumarið kemur ekki fyrr
en með Götuleikhúsinu
Tólk krakkar fá að taka þátt í Götuleikhúsinu í Árborg ár hvert. Aldrei hafa fleiri umsóknir borist heldur en í sumar. MYND/GÖTULEIKHÚSIÐ
Fyrir stuttu var opnuð ný heima-
síða með reiðleiðum í Rangár-
vallasýslu, sem er á slóðinni www.
hmfgeysir.is. Á síðunni má nú
meðal annars finna 143 reiðleiðir
um sýsluna.
Heimasíðan er afrakstur sam-
starfsverkefnis sveitarfélaga,
hestamannafélagsins Geysis,
hestamanna, ferðaþjónustuaðila,
landeigenda og annarra atvinnu-
rekenda í Rangárvallasýslu. Verk-
efnið hét „Reiðleiðir og þjónusta í
Rangárvallasýslu“ og hlaut styrk
frá Vaxtarsamningi Suðurlands í
febrúar á þessu ári.
Markmið verkefnisins er að
stuðla að samstöðu meðal at-
vinnurekenda, landeigenda, íbúa
og gesta svæðisins og standa að
frekari uppbyggingu atvinnuvega
þess. En hagsmunaaðilar í Rang-
árvallasýslu tóku höndum saman
og vinna nú að því að gera reið-
leiðir og þjónustu við hestamenn
sýnilegri.
Að sögn Þuríðar Aradóttur,
markaðs- og kynningarfulltrúa
Rangárþings eystra, er vefurinn
enn í þróun. Þar sé að finna reið-
leiðir í sýslunni með leiðarlýsing-
um en síðar meir verði bætt við
upplýsingum um hugsanlega þjón-
usta við hestamenn á svæðinu.
- mmf
Reiðleiðir á netinu
Síðan www.hmfgeysir.is var nýlega
opnuð með reiðleiðum í Rangárvalla-
sýslu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Hægt verður að njóta útivistar og
hlusta á guðsorð úti í náttúrunni
dagana 19. til 20. júlí en þá verður
gengin pílagrímsganga frá Þing-
völlum að Skálholti.
Áhugasamir ferðalangar skulu
mæta í Þingvallakirkju þar sem
gangan hefst klukkan 10 á laugar-
dagsmorgun. Staðarprestur Þing-
vallakirkju blessar ferðina og svo
verður gengið með hléum yfir að
Laugarvatni og hlýtt á frásagn-
ir og bænir á leiðinni. Að kvöldi
fyrsta göngudags verður sunginn
kvöldsöngur við Vígðulaug á Laug-
arvatni og hægt að fara í gufu og
heitan pott. Gist veður um nóttina
í svefnpokaplássi á Edduhótelinu
á Laugarvatni gegn vægu gjaldi.
Göngunni verður haldið áfram
um sunnudagsmorgun. Lagt verð-
ur af stað klukkan 10 frá Neðra-
Apavatni og er áætlað að ná í há-
tíðarmessu í Skálholti klukkan
14. Göngustjórar í ferðinni verða
Pétur Pétursson prófessor og
Björn Erlingsson. - rat
Guðsorð í náttúrunni
Lagt verður af stað frá Þingvallakirkju
og gengið yfir í Skálholt.
Fram undan Reynisfjalli, nálægt Vík í Mýrdal, rísa tveir drangar
úr sjó sem kallast Reynisdrangar. Þeir standa suðvestur af Vík og
sjást mjög vel frá henni.
Eins og með marga sérkennilega lagaða kletta og björg á Ís-
landi tengist þessum dröngum áhugaverð þjóðsaga. Hún að segir
að Reynisdrangar hafi myndast þegar tvö tröll voru að draga skip
með þremur möstrum að landi. Þegar birta tók af degi urðu tröllin
tvö að steini, eins og oft vill verða í íslenskum þjóðsögum.
Svokölluð möstur skipanna sjást vel frá Vík og er hæsti drang-
urinn um 66 metrar á hæð. Hann kallast Langsamur og minnir á
þrímastrað skip. Fastur við hann er Landdrangur og þriðji drang-
inn er annað hvort nefndur Háidrangur eða Skessudrangur.
Hægt er að sigla í kring um Reynisdranga með Dyrhólaeyjar-
ferðum þegar óskað er eftir því til að skoða náttúrufegurðina. Sjá
www.dyrholaey.com. - mmf
Tröll draga skip
Reynisdrangar við Vík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Við erum voða ánægð og bjart-
sýn,“ segir Anna Árnadóttir,
dóttir Árna Valdimarssonar at-
hafnamanns, sem hefur ásamt
fjölskyldu sinni opnað menning-
armiðstöð í Gónhóli, gamla hrað-
frystihúsinu á Eyrarbakka. Hann
keypti húsið þegar hann stóð á
sjötugu og er með ýmsa starfsemi
þar. „Þetta er mikið pláss, ein-
hverjir 3000 fermetrar. Svo það
býður upp á marga möguleika,“
segir Anna.
Komið hefur verið upp mark-
aði sem opinn er allar helgar frá
klukkan 13 til 17. Þar ríkir Kola-
portastemning með litríkum sölu-
básum, svo sem síldartunnum.
„Þetta er lifandi og skemmtilegur
markaður. Mikið er af handverks-
fólki bæði héðan og úr Reykja-
vík. Kvenfélagið á Selfossi seldi
til dæmis heimabakaðan mat um
síðustu helgi. Síðan erum við með
Barnasmiðju þar sem börn mála
og lita og setja sjálf upp mynd-
listasýningar. Þau selja síðan
myndirnar og sum gefa peninginn
til góðgerðasamtaka.“
Fleira er þó í frystihúsinu en
markaður. „Mamma er með kaffi-
hús og gistingu en fjórar hótel-
íbúðir eru á staðnum. Svo erum
við með fornbíla og bjóðum fólki
á rúntinn. Einnig er hægt að leigja
sér báta ef fólk vill,“ segir Anna.
Markaðurinn verður opinn út
september og er von á kartöflu-
bændunum í haust. Síðan verður
mögulega jólamarkaður haldinn
í húsinu í desember. „Þetta hefur
gengið ótrúlega vel frá því við
opnuðum í maí. Það kom smá lægð
í kringum jarðskjálftann en starf-
semin er komin á fullt aftur.“ -mþþ
Hraðfrystihúsi breytt í markað
Gestum býðst að fara í rúnt um bæinn á fornbílum. MYND/SUDURGLUGGINN.IS
Í Gónhóli er ýmiss konar starfsemi svo
sem kaffihús, hótel, markaður, lista-
verkasýningar og barnasmiðja.
MYND/ANNA ÁRNADÓTTIR