Fréttablaðið - 10.07.2008, Page 47
FIMMTUDAGUR 10. júlí 2008 27
UMRÆÐAN
Ögmundur
Jónasson
svarar leiðara
Fréttablaðsins
Já, hvað skyldi þurfa til svo
taka megi einn
þingmann alvar-
lega? Sú spurn-
ing vaknaði hjá leiðarahöfundi
Fréttablaðsins þegar undirritaður
skrifaði blaðagreinar þar sem velt
var vöngum yfir því hvort EES-
samningurinn væri farinn að ganga
svo gegn lýðræðinu að íhuga bæri
hvort við ættum að segja okkur frá
honum. Hvatti ég til að taka Evr-
ópuumræðuna í allri sinni dýpt.
Máli mínu til stuðnings nefndi ég
kröfu frá Brussel um að Íslending-
ar hættu að reka Íbúðalánasjóð í
núverandi mynd því hann skekkti
samkeppnisstöðu bankanna! Ekki
var spurt um hagsmuni almenn-
ings, aðeins hitt að tilvist Íbúðalána-
sjóðs gengi í berhögg við reglur
„hins innri markaðar“.
Nú gerðust undur og stórmerki.
Þeir sem áður höfðu látið í veðri
vaka að þeir vildu umræðu um Evr-
ópumál virtust vilja kveða tal mitt
niður umræðulaust! Varaformaður
Samfylkingar talaði um „heimsku“
að ég skyldi voga mér að hreyfa
þessum málum! Leiðarahöfundur
Fréttablaðsins sagði að ég yrði að
skýra mál mitt betur ef taka ætti
„þingmanninn alvarlega“. Hvað
skyldi yfirleitt þurfa til svo Frétta-
blaðið taki alvarlega umræðu sem
ekki fer fram einhliða um kosti þess
að ganga inn í ESB? Blaðið virðist
ekki eiga í vandræðum með að taka
gagnrýnislaust já-fólk „alvarlega“.
Hvernig skyldi annars standa á
því að alltaf þegar efnt er til
almennrar atkvæðagreiðslu um
Evrópusamrunann í einstökum
þjóðlöndum Evrópusambandsins
þá verða miðstýringaráformin
undir? Væntanlega er það vegna
þess að fólki finnst stigið á lýðræð-
islegar væntingar sínar; að tilskip-
unum frá Brussel um að leggja
niður Íbúðalánasjóðina og mark-
aðsvæða póst- og heilbrigðisþjón-
ustuna sé nokkuð sem því sé ekki
gefið um. Jafnan þegar almenn-
ingur hefur gefið sinn úrskurð í
þjóðaratkvæðagreiðslu, nú síðast
á Írlandi, rís stofnanaveldið upp
og sendir almenningi tóninn. Fólk-
ið er sagt illa upplýst, skilji ekki
hvað því sé fyrir bestu. Leiðara-
höfundar dagblaða segja iðulega í
hneykslan sinni að niðurstöðu
þjóðaratkvæðagreiðslu sé varla
hægt að taka alvarlega, svo
heimskuleg sé hún. Kannski er ég
bara í ágætum félagsskap þótt mér
takist ekki að þóknast hrokagikkj-
um í Samfylkingunni og leiðara-
höfundum á Mogga og Fréttablað-
inu.
Höfundur er alþingismaður.
UMRÆÐAN
Sæunn Kjartansdóttir
skrifar um slysavarnir
Núna þriðja sumarið í röð flykkjast björg-
unarsveitir Slysavarnafé-
lagsins Landsbjargar upp
á hálendi Íslands til að
vera samlöndum sínum
og gestum okkar innan
handar ef og þegar eitt-
hvað kemur upp á. Frá 27.
júní fram til 10. ágúst verða björg-
unarsveitir á ferð um Kjalveg,
Fjallabak, Sprengisand og norðan
Vatnajökuls. Fjórar sveitir eru á
vaktinni í viku hverri og eru þær
með aðstöðu í Landmannalaugum,
Hveravöllum, Nýjadal og Dreka-
gili þar sem ávallt er hægt
að ná í þær. Út frá þessum
stöðum keyra björgunar-
sveitirnar, heimsækja
alla skála á hálendinu,
kanna aðstæður, leiðbeina
og aðstoða ferðalanga.
Komi eitthvað fyrir á
hálendinu styttir vera
björgunarsveitanna mjög
svo viðbragðstímann en
hóparnir eru beintengdir
útkallskerfi félagsins.
Meginmarkmið verk-
efnisins er fyrst og fremst slysa-
varnir, það er að koma í veg fyrir
þann fjölda slysa og óhappa sem
verða á hálendinu á sumri hverju,
með fræðslu og aðstoð við ferða-
menn. Alltof margir sem um
hálendið fara eru vanbúnir, þekkja
aðstæður og ferðamáta þar lítið og
treysta of mikið á eigin getu og
tæki.
Á síðasta ári tóku 24 björgunar-
sveitir þátt í verkefninu eða sam-
tals 120 sjálfboðaliðar. Í
verkefninu voru notaðir 35 björg-
unarsveitabílar og 54.035 kíló-
metrar eknir. Fjöldi skráðra verk-
efna voru um 250 á þessu sjö
vikna tímabili sem sveitirnar voru
til staðar. Ferðamenn voru misvel
búnir til hálendisferða og margir
gerðu sér ekki grein fyrir að síma-
samband væri stopult á þessum
slóðum. Hálendisvegirnir okkar
eru oft grýttir og erfiðir yfirferð-
ar og töluverða reynslu og kunn-
áttu þarf til að aka þá. Mjög mikil-
vægt er að vera vel útbúinn og
hafa þekkingu og reynslu áður en
ekið er yfir ár og vöð. Mörg verk-
efni hópanna voru m.a. að draga
bíla upp úr ám og laga dekk og
hjálpa ferðamönnum þannig að
komast aftur til byggða. Oft
heyrðist setningin „this is four
wheel drive“ þegar björgunar-
sveitafólk leiðbeindi ferðamönn-
um og upplýsti þá um ástand vega
eða aðstoðuðu og gerðu ferðalang-
ar þá ráð fyrir að hægt væri að
komast allt með fjórhjóladrifinu
einu saman.
Á þessu sést að mikil þörf er
fyrir verkefni sem þetta. Það er
okkar allra hagur að þeir sem
ferðast um landið eigi góðar
stundir og komi heilir heim. Land-
ið er fagurt en óútreiknanlegt og
um það þarf að upplýsa ferða-
menn. Íslenska veðráttan er óút-
reiknanleg eins og við flest þekkj-
um og fjöldi útkalla varðandi
veður og færð hafa sjaldan verið
jafnmörg á stuttum tíma eins og
síðustu mánuði. Björgunarsveita-
fólk hefur mikla menntun og
reynslu á bakinu og er að sjálf-
sögðu ávallt tilbúið til að bjarga
og leysa þau verkefni sem upp á
koma. Einnig er það mikil og góð
reynsla fyrir okkar björgunar-
sveitafólk að ferðast um hálendið
og takast á við verkefnin, veðrátt-
una og vegina.
Aðalstyrktaraðili verkefnisins
er N1 en jafnframt koma Íslenska
gámafélagið og Vodafone að því.
Höfundur er verkefnastjóri á
slysavarnasviði Slysavarna-
félagsins Landsbjargar..
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
Að vera
tekinn
alvarlega
SÆUNN
KJARTANSDÓTTIR
Björgunarsveitir á hálendinu
Como 4 manna
Fjölskyldutjald með tveimur svefntjöldum.
Fortjald er á milli svefntjaldanna.
Tveir inngangar.
Verð 17.990 kr.
Tilboð: 14.990 kr.
Einnig til 6 manna.
Verð: 19.990 kr.
Jasper 5 manna
Opnast á tvo vegu. Stórt fortjald með dúk.
Verð 39.990 kr.
Tilboð: 34.990 kr.
Galaxy 6 manna
Braggatjald með tveimur svefntjöldum.
Stórt fortjald með dúk á milli svefntjaldanna.
Verð 44.990 kr.
Tilboð: 38.990 kr.
Tjaldaland
Útilífs
er við
hliðina á
TBR-höllinni
Troðfull flöt af
uppsettum
tjöldum!
SUÐURLAN
DSBRAUT
SUÐURLAN
DSBRAUT
GNOÐAR
VOGUR
GLÆSIBÆ
R
T
B
R
1
T
B
R
2
Á
L
F
H
E
IM
A
R
G
R
E
N
S
Á
R
S
V
E
G
U
R
Tjaldaland
í góðu tjaldi
Njóttu sumarsins
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
42
93
1
07
/0
8
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Malaga 6 manna
Fjölskyldutjald með
tveimur svefntjöldum.
Verð 34.990 kr.
Andros 6 manna
Fjölskyldu-braggatjald með tveimur
svefntjöldum. Stórt fortjald með dúk.
Öflugar álsúlur.
Verð 42.990 kr.