Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.07.2008, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 10.07.2008, Qupperneq 58
38 10. júlí 2008 FIMMTUDAGUR maturogvin@frettabladid.is > VISSIR ÞÚ að það er óþarfi að kaupa fersk ar kryddjurtir dýrum dómi út í matvörubúð sem duga skammt? Það er hagkvæm- ara að endurnýta gamlar nið- ursuðudósir, setja í þær mold, kaupa nokkur fræ og stilla dósunum upp í eldhúsglugg- ann. Þannig er hægt að rækta til dæmis myntu, steinselju og basil á ein- faldan hátt. Gætið þó að því að vökva reglulega. Hvaða matar gætirðu síst verið án? Ég borða svo blandað fæði að það er erfitt að velja, en ég myndi ekki vilja sleppa brokkolíi, brúneggjum og brúnum hrísgrjónum. Besta máltíð sem þú hefur fengið? Að öllu jöfnu er það soðin lifrarpylsa með rófustöppu, annars fékk ég frábæra máltíð á Rain Forrest Café í London með dætrum mínum í fyrra; svínarif borin fram með frönskum kartöflum, góðu salati og hálfgerðum krapadjús úr ekta ávaxtasafa. Í eftir- rétt var svo stærsti og myndarlegasti ísréttur sem ég hef séð frá því að Hard Rock lagði upp laupana. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Súrsað hvalspik og álíka matur. Hvað borðar þú til að láta þér líða betur? Nammi á nammidögum , en trefja-, sterkju- og kolvetnaríkt fæði annars. Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Ávexti, grænmeti, reyktan lax, brún- egg, léttmjólk, kotasælu, matreiðslu- rjóma, sultu og ost. Ef þú yrðir fastur á eyðieyju, hvað tækirðu með þér? Ef ég gæti veitt mér til matar á eyjunni myndi ég taka með mér matreiðsluáhöld, svo sem hnífa, potta og pönnur. Annars tæki ég með mér fullt af vatni, haframjöli og harðfiski. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað? Það myndu vera djúpsteikt- ar engisprettur og svartar bjöllur steiktar á pönnu. Annars má ekki gleyma kindahöfðunum sem við borðum hérna heima og hljóta að flokkast sem skrítin fæða. MATGÆÐINGURINN SÖLVI FANNAR VIÐARSSON EINKAÞJÁLFARI Lifrarpylsa með rófustöppu í uppáhaldi Þeim sem treysta sér hvorki til að búa til sultu né baka úr rabarbarauppskeru sum- arsins er bent hér á auðvelda leið til að njóta hans. Hér má sjá tillögu að einföldum eftir- rétti þar sem hunang er notað í stað sykurs til að sæta rabarbarann. Hunangsristaður rabarbari með vanilluís (fyrir 4) 500 g rabarbari, skolaður og skorinn í 5 cm bita 3 msk. þunnfljótandi hunang Ofninn stilltur á 120°C Rabarbarabitunum raðað í einfalt lag í eldfast mót og hunanginu dreift jafnt yfir bitana. Ristað í ofni í um það bil hálftíma eða þar til rabarbarinn er orðinn mjúkur en bitarnir halda enn sínu formi. Látið kólna um stund áður en rabarbarinn er borinn fram með vanilluís. Athugið að einnig er hægt að rista rabar- barann á grilli á vægum hita. Hunangsristaður rabarbari GÓMSÆTUR OG SUMARLEGUR EFTIRRÉTTUR Hunangsristaður rabarbari er einfaldur eftir- réttur og kjörin leið til að nýta uppskeru sumarsins. Alda B. Guðjónsdóttir, stíl- isti og fjögurra barna móð- ir, hefur í nógu að snúast. Hún rekur eigið fyrirtæki, Snyrtilegur klæðnaður sf., sem sér um allt sem snýr að stíliseringu fyrir auglýs- ingar, tískuljósmyndir og fleira. Það gefst því sjaldan mikill tími í eldhúsinu en Alda er snögg að töfra fram dýrindis máltíð úr því sem er til í ísskápnum. „Ég er eiginlega í tvöföldu starfi og vinn stundum fjórtán til fimmt- án tíma á dag, en ég er svo heppin að foreldrar mínir búa í næsta húsi svo við mamma erum dug- legar að hjálpast að með elda- mennskuna þegar það er mikið að gera,“ segir Alda sem á börn á aldrinum fimm til átján ára. „Við erum svona eins og stór ítölsk fjölskylda og stundum erum við ellefu við matarborðið með for- eldrum mínum og systkinum,“ segir hún og hlær við. Alda hefur verið grænmetisæta í um það bil fimmtán ár, en setur það ekki fyrir sig að elda kjöt eða fisk fyrir börnin sín. „Ég var aldrei hrifin af kjöti svo ég ákvað bara að hætta að borða það. Ég er samt engin fanatísk grænmet- is æta og finnst lítið mál að elda kjöt eða sjóða ýsu fyrir börnin mín. Sjálf held ég mikið upp á sushi og borða þá hráan fisk, en annars er ég mest fyrir grænmet- isrétti með indversku ívafi,“ útskýrir Alda og segir grænmet- islasagnað sem hún gaf okkur uppskrift af vera eitt af því sem allir á heimilinu kunna að meta. „Það er miklu minna mál að vera grænmetisæta í dag en fyrir svona tíu árum. Þá var nánast bara í boði að fá einfalt salat á veitingastöðum, en núna eru mun fleiri staðir sem bjóða upp á fjöl- breytta grænmetisrétti,“ segir Alda og kveðst oft grípa sér bita í miðbænum á milli verkefna í vinnunni. „Mér finnst best að borða í hádeginu og fer þá oft á Sushi- train þar sem maður þarf aldrei að bíða. Mér finnst samt gaman að elda og er mjög góð í því að elda úr engu, en þá nota ég bara það sem er til í ísskápnum og skúffun- um. Ég er miklu meira fyrir svo- leiðis matargerð heldur en að fara eftir uppskriftum. Mér finnst líka gaman að halda matarboð þegar tími gefst til, en þá er ég heldur ekkert að eyða of löngum tíma í eldhúsinu, heldur skrepp bara út í búð klukkan sex og held matar- boðið klukkan átta,“ segir Alda að lokum. alma@frettabladid.is Kann að elda „úr engu“ NOTAR ÞAÐ SEM ER TIL Í ÍSSKÁPNUM Alda Björg Guðjónsdóttir hefur verið grænmet- is æta í fimmtán ár og er dugleg að elda úr því sem er til hverju sinni í eldhúsinu. GRÆNMETISLASAGNA 2 laukar 4 gulrætur 6-8 sveppir 1 haus brokkolí 1 lítill haus blómkál 1 dós heilir tómatar 1 dós tómatpúrra 1 kotasæla 1-4 hvítlauksrif 4 tsk. oregano 3 tsk. basil 1 tsk. timían salt og pipar e. smekk 2½ dl vatn 1 tsk. rauðvínsedik 1 grænmetisteningur olía til steikingar Sósa: 30 g smjör 3 msk. hveiti eða spelt 5-6 dl mjólk 20 g rjómaostur Aðferð: Grænmeti skorið niður og steikt á pönnu í olíu ásamt hvítlauksgeirum. Tómatpúrru, tómötum í dós og kotasælu blandað út í ásamt vatni og kryddi. Látið krauma á pönnu í 30 mínútur. Búið til smjörbollu í potti úr hveiti og smjöri. Mjólk blandað við og bollan látin kokka upp, rjómaosti bætt út í síðast. Þegar allt er tilbúið er þetta sett í eldfast mót. Fyrst ostur svo lasagne blöð og svo grænmetisblandan, síðan koll af kolli þar til fatið er fullt og ostur settur yfir. Bakað í ofni við 200°C í 30 mínútur. Gott að bera fram með hvítlauks- brauði og salati. Salat: Klettasalat Olífuolía Vinegar Maldon-salt Grófur pipar Parmesan Olífuolíu, vinegar og salti og pipar blandað saman og hellt yfir salatið. Parmesan rifinn yfir eftir smekk. „Við erum eiginlega steinhissa yfir því hvað það gengur vel,“ segir María Hjálmtýsdóttir sem rekur veitingastaðinn Santa María á Laugaveginum ásamt eiginmanni sínum, Ernesto Ortiz Alvarez, en staðurinn hefur fengið mjög góðar viðtökur frá því að hann var opnað- ur 1. mars. „Okkur fannst vanta veitinga- stað sem byði upp á ekta mexíkósk- an mat, svo við enduðum á því að opna einn slíkan sjálf. Við rákum okkur fljótt á að okkur vantaði margs konar hráefni sem er ekki fáanlegt hér á landi, en margt af því höfum við getað pantað frá Spáni, svo sem maísmjöl og ýmiss konar sósur, en íslenskir garð- yrkjubændur voru mjög liðlegir og rækta græna tómata sérstaklega fyrir okkur,“ útskýrir María. „Ernesto er svo að fara til Mex- íkó í hálfgerða „átferð“ til að smakka ýmsa rétti og fá hugmynd- ir að nýjum uppskriftum fyrir mat- seðilinn. Hann tekur svo mömmu sína með sér til landsins í bakaleið- inni, en hún ætlar að hjálpa okkur að útfæra réttina,“ bætir hún við. „Við leggjum mikið upp úr heim- ilislegu og glaðlegu viðmóti eins og tíðkast í Mexíkó og okkur finnst mikilvægt að maturinn sé ódýr svo fólk geti leyft sér að fara oftar út að borða,“ útskýrir María en viður- kennir að það sé erfitt að halda verðinu í lágmarki á meðan verð á hráefni fer hækkandi. „Við munum samt sem áður halda verðinu svo lengi sem við komum út á núlli,“ segir María að lokum og gaf okkur smá forskot á sæluna með upp- skrift að salati sem er væntanlegt á matseðil Santa María. - ag Ekta mexíkóskur matur FERSKT OG SUMARLEGT María segir salatið vera mjög vinsælt í Mexíkó, en þar sé gjarnan notaður geitaostur í stað fetaosts. FERSKT SUMARSALAT (fyrir tvo svanga eða fleiri) 1 poki klettasalat eða blandað salat 1/3 haus af jöklasalati ½-1 box kirsuberjatómatar ½ vel þroskað mangó ½ poki hnetukjarnar hnefafylli af döðlum ½ krukka fetaostur sletta af extra virgin-ólífuolíu Aðferð Salatið er sett í stóra skál, döðl- urnar og mangóið skorið í litla bita og öllu hrært saman. Smáolíu skvett yfir í lokin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.