Fréttablaðið - 10.07.2008, Page 64
44 10. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
Tíunda umferðin gaf af sér sextán mörk en næst-
um helming þeirra í einum leik. HK-ingar virðist
hreinlega ekki hafa burði til að spila á meðal stóru
strákanna og ekkert nema 1. deildin blasir við
þeim. Fjölnismenn kláruðu þá aftur með úrvals-
deildarklassa. 6-1 var niðurstaðan í niðurlægingu
Kópavogsliðsins.
Gunnar Guðmundssson var rekinn frá hjá HK
eftir leikinn en stóll Leifs Garðarssonar er einnig
orðinn heitur. Fylkisliðið er heillum horfið og
hefur hreinlega ekki spilað vel. Afsökun um
uppbyggingarstarfsemi og unga leikmenn
er ódýr hjá þjálfaranum. Blikar voru
með unga stráka í sínu liði, þeir unnu
verðskuldað og sannfærandi.
Guðjón Þórðarson virðist ekki
vera á réttri leið með ÍA sem
er fyrirmunað að vinna leik.
Grindavík sýndi karakter í
því að vinna á Skagan-
um, 2-1. Björgólfur Takefusa hélt áfram að skora og
áfram hélt KR hreinu, nú gegn Þrótti og Valsarar
unnu þolinmæðisigur á Fram.
Keflavík gerði deildinni greiða með því að vinna
FH, sigri sem allir fögnuðu nema FH-ingar. Suður-
nesjamenn virðast hafa hreðjatak á FH og töfra-
mark í uppbótartíma tryggði þeim sætan sigur.
10. UMFERÐ LANDSBANKADEILDAR KARLA: HK-INGAR Á LEIÐINNI BEINT NIÐUR
Keflvíkingar gerðu deildinni greiða
TÖLURNAR TALA
Flest skot: 20, Valur
Flest skot á mark: 11, Fjölnir
Fæst skot: 5, Fram
Hæsta meðaleink.: 7,33 Fjölnir
Lægsta meðaleink.: 3,64 HK
Grófasta liðið: 18 brot, Fylkir
Prúðasta liðið: 8 brot, Fram og Gri.
Flestir áhorf.: Keflavík-FH,1.298
Fæstir áhorf.: Fylkir-Breiðab., 768
Áhorfendur alls: 5.817
> Besti dómarinn: Umferðin var
vel dæmd. Fjórir dómarar fengu
átta, Garðar Örn Hinriksson í Ár-
bænum, Einar Örn Daníelsson á
Valbjarnarvelli, Kristinn Jakobsson
á Akranesi og Jóhannes Valgeirs-
son í Kefl avík. Hinir tveir fengu 7.
> Atvik umferðarinnar
Fagn Jóhanns Helgasonar. Grindvíkingurinn skoraði sig-
urmarkið gegn ÍA með sinni fyrstu snertingu eftir að hafa
komið inn á sem varamaður. Markinu fagnaði hann
með „vöggufagninu“ en hann eignaðist son fyrr
um daginn.
> Ummæli umferðarinnar
„Við erum að vinna ljótu leikina og það
getur verið gríðarlega mikilvægt þegar
upp er staðið,“ segir Jónas Guðni Sæv-
arsson, leikmaður KR, eftir tæpan 1-0
sigur liðsins á KR.
Guðjón Árni
Antoníusson
Ólafur Páll Snorrason
Kenneth Gustafsson
Guðjón Baldvinsson
Jóhann Berg
Guðmundsson
Jósef Kristinn
Jósefsson Birkir Már Sævarsson
Pálmi Rafn Pálmason
Ágúst Gylfason
Ómar Jóhannsson
Gunnar Már
Guðmundsson
FÓTBOLTI Hinn átján ára gamli
Jósef Kristinn Jósefsson er orð-
inn mikilvægur hlekkur í liði
Grindavíkur. Vinstri bakvörður-
inn færði sig á kantinn í leiknum
gegn ÍA og skoraði fallegt mark
sem jafnaði leikinn í 1-1. Grinda-
vík vann svo 2-1. Jósef er leik-
maður 10. umferðar Landsbanka-
deildarinnar hjá Fréttablaðinu.
Hann missti af þremur fyrstu
leikjunum í sumar eftir að hafa
handarbrotnað í leik með U19 ára
landsliði Íslands „Ég vona að ég
sé búinn að festa mig í sessi í lið-
inu. Það er samt alltaf mikil sam-
keppni og hún er bara af hinu
góða,“ sagði Jósef sem kýs að
spila vinstra megin á vellinum.
„Ég held að ég geti ekkert neins
staðar annars staðar.“
Jósef vinnur á golfvellinum í
Grindavík í sumar og er sjálfur
með 12,7 í forgjöf. „Ég er svona
þokkalegur,“ segir hann. „Ég næ
aðeins að spila golf þegar það er
frí frá fótboltanum en það er þó
erfitt þegar þreytan er orðin
mikil og maður þarfnast hvíldar-
innar.“
Jósef á myndband af sér aðeins
fjögurra ára gömlum að spila inn-
anhússknattspyrnu og spannar
ferillinn því þegar fjórtán ár. „Ég
get ekki sagt að ég hafi verið að
gera góða hluti þá. Ég var enn
grennri en ég er núna,“ sagði
hinn uppaldni Grindvíkingur.
Næst á dagskránni er að styrkja
líkamann.
„Ég verð að gera það til að eiga
einhverja möguleika í þessa
kalla,“ segir Jósef kíminn en við-
urkennir að það sé erfitt að bæta
sig yfir sumartímann. „Það geng-
ur upp og ofan. Ég er alltaf að
hlaupa eins og vitleysingur og
brenni því bara jafn óðum,“ sagði
Jósef.
„Undanfarin tvö þrjú ár hef ég
verið að taka fínum framförum.
Það er aðallega af því að ég er
farinn að æfa eins og maður og
ekki verið að sleppa neinum
æfingum,“ sagði Jósef sem
nokkrum sinnum hefur farið út á
reynslu hjá liðum í Evrópu, meðal
annars Twente og AZ Alkmaar í
Hollandi.
„Það hefur í raun aldrei komið
neitt almennilegt út úr því. Ég
hef verið að fara þegar tímabilið
er búið og maður er orðinn alveg
bensínlaus. Maður hefur ekki
þetta aukalega sem kannski þarf
til að sýna sig,“ sagði Jósef sem
er þó ekkert að stressa sig á
atvinnumennskunni. Norðurlönd-
in gætu þó heillað í framtíðinni.
Fyrst ætlar hann að klára skól-
ann en hann stundar nám í Fjöl-
brautaskóla Suðurlands, með
misjöfnum árangri að eigin
sögn. „Ég ætla að skipta um
braut núna og fara í rafvirkjann.
Ég ætla að fara að gera eitthvað
af viti,“ sagði Jósef sem er
þokkalega sáttur við sína eigin
framgöngu í sumar.
„En ég vil alltaf meira, og það
er nægur tími til þess,“ segir
bakvörðurinn sem er einnig
nokkuð sáttur við árangur liðs-
ins í sumar. Sem fyrr vill hann
meira. „Markmiðið er alltaf að
gera betur, við erum núna í átt-
unda sæti en ætlum auðvitað að
fara ofar. Gengið hefur verið
ágætt, okkur gengur bara ekki
nógu vel á heimavelli. Við höfum
tapað fimm heimaleikjum en
unnið fjóra útileiki, við þurfum
að bæta það. Það hlýtur að
koma,“ sagði Jósef Kristinn að
lokum.
Þjálfari hans, Milan Stefán
Jankovic, lýsir honum sem
einum efnilegasta leikmanni
sem hann hefur þjálfað. „Hann
hefur mikinn karakter og hann
leggur sig alltaf 100 prósent
fram, hvort sem það er á æfing-
um eða í leikjum. Það skiptir
miklu máli og það vantar kannski
hjá fleiri leikmönnum. Hver
æfing er eins og leikur fyrir
honum,“ sagði Milan Stefán.
„Hann ætlar sér langt og
atvinnumennskan blasir við
honum, það er ekki nokkur
spurning. Sérstaklega ef hann
heldur áfram á sömu braut.
Hann æfir sig aukalega heima í
að bæta líkamlegan styrk og
hann ætlar sér alltaf meira,“
sagði þjálfarinn. hjalti@frettabladid.is
Markmiðið er alltaf að gera betur
Jósef Kristinn Jósefsson er leikmaður 10. umferðar hjá Fréttablaðinu. Hann var maður leiksins í sigri
Grindavíkur á ÍA. Ungmennalandsliðsmanninum gengur mun betur á vellinum en í námi, að eigin sögn.
FÓTBOLTI KR og Valur mætast í
stórleik Landsbankadeildar karla
í kvöld kl. 20.00 en leikurinn fer
fram á KR-vellinum í Frosta-
skjóli.
KR-ingar hafa verið á mikilli
siglingu undanfarið og klifrað
hressilega upp stigatöfluna. Vest-
urbæjarliðið státar af fjórum sig-
urleikjum í röð í deildinni og liðið
hefur enn fremur haldið
marki sínu hreinu í
þeim leikjum og varn-
armaðurinn Grétar Sig-
finnur Sigurðarson kvað KR-inga
því mæta fulla sjálfstrausts í leik-
inn gegn Íslandsmeisturum Vals.
„Það er ekkert annað en sigur
sem kemur til greina gegn Val. Við
erum með mikið sjálfstraust og
ætlum bara að byggja á því sem
við erum búnir að vera að gera.
Það er mikil samstaða innan liðs-
ins, sem er reyndar búin að vera
til staðar í allt sumar þó svo að
ekki hafi gengið neitt sérstaklega
vel hjá okkur í upphafi móts. Meg-
inmunurinn á okkur í sumar og í
fyrra er sá að menn eru farnir að
vinna hver fyrir annan og sem eitt
lið. Við erum búnir að halda hreinu
í fimm af tíu leikjum í deildinni og
það er fyrst og fremst varnar-
vinna alls liðsins sem er að skila
því. Vals- menn eru líka
búnir að gera góða
hluti undanfar-
ið og þetta er
því í raun úrslita-
leikur fyrir
þessi
tvö
lið,
hvað þau
ætla sér að gera í
framhaldinu. Þetta
verður þvílíkur leik-
ur og það er kominn
tími til að við leggj-
um Valsarana að
velli þar sem KR vann síðast sum-
arið 2005 og þá spilaði ég reyndar
með Valsmönnum,“ sagði Grétar
Sigfinnur sem á von á því að fólk
fjölmenni á völlinn og skapi góða
stemningu.
Guðmundur Benediktsson,
framherji Vals og fyrrverandi
leikmaður KR, veit mæta vel hvað
er í húfi þegar þessir erkifjend-
urnir mætast.
„Það hefur verið mikill rígur og
mun verða mikill rígur um ókomin
ár á milli þessara liða og bæði liðin
vita af því. Það er því alltaf gaman
að koma og spila á KR-vellinum og
við hlökkum til leiksins. KR hefur
verið í flottu formi upp á síðkastið
og það er ljóst að við verðum að
eiga góðan dag til þess að fara með
sigur í leiknum. Við unnum góðan
sigur gegn Fram í síðasta leik þar
sem við spiluðum vel og vonandi
getum við tekið þá baráttu og þann
anda sem var í liðinu í þeim leik
með okkur í Vesturbæinn og þá
getur allt gerst,“ sagði Guðmund-
ur. - óþ
Reykjavíkurliðin KR og Valur hafa lengi eldað grátt silfur og mætast á ný í kvöld í mikilvægum leik:
Fornir fjendur mætast í Frostaskjóli
EKKERT NEMA SIGUR
Grétar telur KR hafa
sjálfstraustið og
getuna til að taka þrjú
stig. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
TILHLÖKKUN Guðmundur Benediktsson,
leikmaður Vals og fyrrverandi leikmaður
KR, segir að það sé alltaf gaman að spila
á KR-vellinum og Valsmenn hlakki mjög
til leiksins. FRÉTTALBLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI KR-ingar taka á móti
Valsmönnum á KR-vellinum í
kvöld en þeir hafa unnið þrjá
síðustu heimaleiki sína í Lands-
bankadeildinni og enn fremur sex
af sjö leikjum sínum á KR-
vellinum í sumar.
Vinni KR í kvöld þá er þetta í
fyrsta sinn síðan sumarið 2003
sem liðið nær að vinna fjóra
heimaleiki í röð í deild en þetta
yrði jafnframt sjötti heimasigur
liðsins í röð í deild og bikar.
Það var einmitt sumarið 2002
sem Íslandsbikarinn kom síðast í
Vesturbæinn en KR vann þá fimm
heimaleiki í röð og sá síðasti af
þeim var 4-0 sigur á Fylki í 15.
umferð sem lagði grunninn að því
að tryggja liðinu titilinn. - óój
Sigurganga KR-inga heima:
Hafa ekki unn-
ið fjóra leiki í
röð síðan 2003
FLOTTIR Í FROSTASKJÓLINU Það hefur
gengið vel á heimavelli hjá KR í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Lottomatica Roma,
sem Jón Arnór Stefánsson leikur
með, er í C-riðli Meistaradeildar
Evrópu á næsta tímabili. Dregið
var í riðlana í gær. Roma er í riðli
með Slóveníumeisturum Union
Olimpija, Tyrklandsmeisturum
Fenerbahce Ulker, Þýskalands-
meisturum Alba Berlin, Spánar-
meisturum Tau Ceramica og DKV
Joventut sem varð í þriðja sæti
spænsku deildarinnar á síðasta
tímabili og varð auk þess ULEB
meistari. ULEB-keppnin er
nokkurs konar önnur deild
Evrópukeppna. Roma tapaði í
úrslitum um Ítalíumeistaratitilinn
fyrir Montepaschi Siena. - hþh
Jón Arnór í Meistaradeildinni:
Í krefjandi
meistarariðli
JÓN ARNÓR Á mjög erfitt verkefni fyrir
höndum með félögum sínum í Lottom-
atica. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓÓJ
ÖFLUGUR Jósef er átján
ára en verður nítján
fljótlega. Hann er meðal
efnilegustu bakvarða
landsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
sport@frettabladid.is