Fréttablaðið - 10.07.2008, Síða 66
46 10. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Fjölnismaður-
inn Sveinn Elías Elíasson er í
fimmta sæti eftir fyrri dag tug-
þrautarkeppninnar á HM ungl-
inga í Bydgoszcz í Pólandi. Sveinn
Elías fékk 3.925 stig fyrir fyrstu
fimm greinarnar og er aðeins
fjórum stigum frá fjórða sætinu
en þar situr heimamaðurinn
Jacek Nabozny. Hvít-Rússinn
Eduard Mihan er efstur með 4.155
stig en Sveinn Elías er 96 stigum
frá verðlaunasæti.
Sveinn Elías byrjaði og endaði
daginn frábærlega því hann var
fljótastur allra í bæði 100 metra og
400 metra hlaupi. Sveinn náði
sínum öðrum besta tíma í 1000
metra hlaupinu þegar hann hljóp á
10,79 sekúndum og fékk 908 stig
fyrir. Sveinn stökk síðan 6.71 metra
í langstökki, sem var 12. besti
árangur í þeirri grein en lengst
hefur hann stokkið 6,98 metra.
Sveinn Elías bætti sig um 17 senti-
metra í kúlunni þegar hann varp-
aði henni 13,28 metra en það var
14. besti árangurinn í kúluvarpinu.
Sveinn datt niður í 9. sæti eftir
fjórðu greinina, hástökkið, þar sem
hann fór yfir 1,87 metra og varð
fimmtándi.
Sveinn endaði aftur á móti dag-
inn á því að hlaupa 400 metrana á
48,18 sekúndum og var þar eins og
áður sagði fljótastur allra alveg
eins og í fyrstu greininni. Sveinn
fékk þá 900 stig og hefur aðeins
einu sinni hlaupið hringinn hraðar.
Stefán Jóhannsson, þjálfari
Sveins, var ánægður með strák-
inn. „Þetta var fínn dagur og hann
reddaði honum með 400 metra
hlaupinu. Við vorum aðeins
óánægðir með langstökkið en
annað var mjög gott. Þetta gekk
eins og við vorum að vonast eftir,“
sagði Stefán.
„Seinni dagurinn er lélegri hjá
öllum en þetta fer svolítið eftir
því hvernig stöngin og spjótið fer
á morgun [í dag]. Stöngin verður
mjög erfið af því að stöngin hans
kom ekki og hann verður því að fá
lánstöng sem er mjög erfitt,“
segir Stefán en hann vonast þó til
að Sveinn byrji seinni daginn vel
í 110 metra grindahlaupi.
„Ég hef trú á hann bæti sig vel
því hann hefur verið að bæta sig
tæknilega í grindinni að undan-
förnu,“ segir Stefán. - óój
Fjölnismaðurinn Sveinn Elías Elíasson er í fimmta sæti eftir fyrri dag á HM unglinga í Bydgoszcz í Pólandi:
Vann tvær af fimm greinum sínum í gær
Á FLEYGIFERÐ Sveinn Elías Elíasson, lengst til hægri, sést hér í 100 metra hlaupinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
FÓTBOLTI Eftir að stjórn HK ákvað
að reka Gunnar Guðmundsson
hófst mikil leit að þjálfara. Staða
liðsins er ekki góð, það er neðst í
Landsbankadeildinni og virðist
sjálfstraustið í herbúðum liðsins
vera fyrir neðan frostmark. Eng-
inn af þeim fjórum þjálfurum sem
leitað hefur verið til hafði áhuga á
starfinu. Viðræður við annan aðila
eru þó hafnar.
Fyrst var leitað til fyrrverandi
landsliðsþjálfarans Eyjólfs Sverr-
issonar. Hann sagðist hreinlega
ekki hafa tíma í starfið, hann hefði
nóg á sinni könnu. Tvíburarnir
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir
segja tímapunktinn ekki réttan en
þá langi í þjálfun, Ólafur Þórðar-
son segir HK ekki henta sér og
Lúkas Kostic vill ekki stökkva frá
borði KSÍ-skútunnar þar sem hann
stýrir tveimur landsliðum.
„Mér líst bara ekki alveg á þetta,
þetta hentar mér ekki,“ sagði Ólaf-
ur sem vildi lítið fara út í hvað
nákvæmlega það væri sem hent-
aði honum ekki. Aðspurður hvort
það væri staða liðsins sagði Ólaf-
ur: „Hún er auðvitað ekki góð en
það var ekki úrslitaatriðið. En ég
ákvað að sleppa þessu. Ég aflaði
mér upplýsinga en þetta er niður-
staðan,“ sagði Ólafur sem fór þó
aldrei í viðræður við stjórn félags-
ins. Hann kvaðst jafnframt áhuga-
samur á að snúa aftur í þjálfun
fljótlega.
Bjarki sagði við Fréttablaðið að
tilboð HK hefði verið freistandi.
„Við hittum stjórn HK í gær og
fórum yfir stöðuna. Þetta kitlaði
aðeins en svo töluðum við við FH
og ákváðum bara að spila áfram
með því. Félagið gerði okkur ljóst
að það vildi ekki missa okkur. Þeir
eru þó miklir heiðursmenn þar og
hefðu ekki staðið í vegi fyrir okkur
hefðum við viljað fara,“ sagði
Bjarki sem segir tvíburana hafa
litist vel á HK.
„Þeir seldu félagið mjög vel og
framtíðarmarkmið þess. Okkur
leist mjög vel á þetta. Metnaður-
inn er mikill þrátt fyrir að staðan
sé ekkert sérlega góð eins og er.
Það er vel staðið að öllum málum
og aðstæðurnar eru til fyrirmynd-
ar. Þá eru yngri flokkarnir öflugir.
En við vildum bara efna samning-
inn við FH,“ sagði Bjarki sem
segir það vera mikinn heiður fyrir
þá bræður að vera boðin staðan.
„Við höfum ekki mikla reynslu
þrátt fyrir að hafa náð ákveðnum
árangri með ÍA fyrir tveimur
árum. Við hefðum treyst okkur í
starfið til að endurtaka leikinn en
tímapunkturinn var bara ekki rétt-
ur. Það hefði þurft ÍA til að bjóða
okkur að þjálfa til að við riftum
samningi við FH,“ sagði Bjarki og
hló við.
Lúkas sagði í gær að hann gæti
hreinlega ekki farið frá U17 og
U21 árs landsliðunum sem hann
þjálfar. „Ég hef verið að undirbúa
U17 frá því í október fyrir Norð-
urlandamótið sem er í lok júlí.
Þetta hefur verið mikil vinna og
mér fannst ekki sanngjarnt gagn-
vart þeim að hætta. U21 árs liðið á
líka tvo leiki eftir í riðlinum. Ég
vil bara ekki fara frá ókláruðum
verkefnum,“ sagði Lúkas sem
sagði þó að HK ætti marga góða
leikmenn og að það gæti vel fest
sig í sessi í efstu deild. „Það var
heiður að þeir hringdu.“
Viðræður eru hafnar við annan
aðila sem Torfi Sverrisson, formað-
ur knattspyrnudeildar HK, gefur
ekki upp hver er. „Við leysum
þetta,“ sagði Torfi við Fréttablaðið
eftir að Ólafur hafði gefið félaginu
afsvar seinni partinn í gær.
„Við höfum leitað til manna sem
njóta ákveðinnar virðingar. Við
erum með ákveðinn lista sem við
förum niður. Í þessari stöðu sem
liðið er í er mórallinn lítill og það
þarf kannski að lyfta honum með
virtum nöfnum. „Rúnar [Páll Sig-
mundsson, aðstoðarþjálfari Gunn-
ars] stýrir liðinu eins og staðan er
núna, meðan aðalþjálfaramálin
eru ekki afgreidd,“ sagði hann.
hjalti@frettabladid.is
Eyjólfur Sverrisson fyrstur af fjórum
til að segja nei við því að þjálfa HK
HK þarf að leita langt niður óskalistann til að finna þjálfara. Eyjólfur Sverrisson var fyrstur til að segja nei
og í kjölfarið fylgdu tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir, Ólafur Þórðarson og Lúkas Kostic.
ENGINN ÁHUGI? Eyjólfur Sverrisson,
Lúkas Kostic og Ólafur Þórðarson sögðu
allir nei við HK. Félagið leitar nú niður
óskalistann að næsta þjálfara.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON-DANÍEL-VALLI
NEI TAKK Arnar og Bjarki ákváðu að leika áfram með FH í stað þess að taka við HK.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Gunnar Guðmundsson
skilur sáttur við HK. Hann stýrði
liðinu í tæp fimm ár en var
rekinn í vikunni. „Ef þú ert ekki
að ná í stig og ert í neðsta sæti
geturðu alltaf átt von á því að
taka pokann þinn sem þjálfari,“
sagði Gunnar sem taldi sig geta
náð meira út úr liðinu.
„Að sjálfsögðu. Félagaskipta-
glugginn er að opna og ég sá
ákveðna möguleika til að vinna úr
þessu og snúa hlutunum við með
litlum kostnaði,“ sagði Gunnar
sem er alls ekki sár út í HK en
hann kveður félagið sáttur.
„Við höfum átt góða tíma saman
og komið liðinu upp á ákveðinn
stall. Vonandi heldur það sér þar,“
sagði Gunnar sem er ekki hættur
að þjálfa. Hann kveðst jafnframt
ætla að taka sér frí í sumar. - hþh
Gunnar Guðmundsson:
Engin sárindi
GUNNAR Kveður HK sáttur.
FÓTBOLTI Jónas Hallgrímsson er
hættur sem þjálfari Völsungs.
Hann lét stór orð falla um dómara
í 2. deildinni og KSÍ á mánudag
og sagðist í gær standa við hvert
einasta orð. Hann óskaði þess
jafnframt að hann hefði verið
harðorðari. KSÍ sendi frá sér
yfirlýsingu vegna málsins í gær.
- hþh
Yfirlýsing KSÍ
„Knattspyrnusamband Íslands
harmar þau ummæli sem Jónas
Hallgrímsson, þjálfari Völsungs,
lætur hafa eftir sér í fjölmiðlum
varðandi dómara, önnur félagslið
og aðra þá er að knattspyrnu
koma á Íslandi og vísar þeim
algerlega á bug. Mjög alvarlegar
ásakanir koma fram í ummælum
Jónasar og alveg ljóst að undir
þeim verður ekki setið án
viðbragða.
Samskipti KSÍ við Völsung hafa
verið með miklum ágætum, þar
hefur verið unnið gott starf og
hafa þaðan komið margir af
bestu knattspyrnumönnum
landsins í gegnum árin. Sorglegt
er því að þjálfari félagsins ráðist
fram með rakalausum fullyrðing-
um og ásökunum sem beint er
gegn dómurum, aðildarfélögum
og aðilum innan KSÍ og geta á
engan hátt talist settar fram af
jafnvægi og yfirvegun.“
Yfirlýsing frá KSÍ:
Sorglegur Jónas
FÓTBOLTI Við ráðningu þjálfara í
Landsbankadeild karla þarf að
fara eftir ströngum reglum.
Ómar Smárason, leyfis- og
markaðsstjóri KSÍ, útskýrði
málið þegar Fréttablaðið bað
hann um að taka HK, sem er í leit
að þjálfara, sem dæmi.
„Ef félagið ræður þjálfara sem
hefur tilskilin réttindi, sem er
KSÍ-A gráða, innan viku eftir að
hafa rekið þjálfara er það innan
leyfisrammans. Ef það gerir það
ekki, eða ræður þjálfara sem
hefur ekki réttindin, fær það í
mesta lagi viðvörun þar sem
þetta er fyrsta brot þess. Ef
þjálfari án réttinda tekur við á
miðju tímabili má hann samt sem
áður ekki stýra liðinu á næsta
tímabili án réttindanna.“
Arnar og Bjarki Gunnlaugs-
synir hefðu því aðeins mátt
stýra HK út tímabilið hefðu þeir
tekið boði félagsins. Báðir eru
með 2. gráðu þjálfararéttinda og
eiga langt í land með að öðlast A-
gráðuna. - hþh
Þjálfaramál í Landsbankadeild:
Uppfylla þarf
kröfur kerfisins