Fréttablaðið - 10.07.2008, Side 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Gamla Seljavallalaugin uppi í fjallinu er eins og kunnugt er
algjör snilld. Þetta er elsta uppi-
standandi sundlaug landsins, reist
1923 minnir mig að hafi staðið á
skiltinu. Maður þarf að ganga tíu
mínútna spotta að henni, það eru
engar sturtur við laugina en það
má afklæðast í ljóslausum klefum
sem ekki er hægt að læsa. Laugin
er gruggug, veggir og gólf þakið
slími, en umgjörðin er eins og í
ævintýri og upplifunin hreinlega
frábær. Ég skrapp þarna um helg-
ina og það var fullt af fólki og allir
í stuði. Túristarnir voru geislandi
af ánægju, líklega af því að það
kostar ekkert í laugina. Þeim hlýt-
ur að vera nýbreytni í að fá eitt-
hvað ókeypis eftir flæking um
landið og okurholurnar sem varða
hringveginn.
ÉG TÓK eftir því að nýja Selja-
vallalaugin, sem reist var fyrir
nokkrum árum nær veginum, er
komin í eyði. Þar voru öll nútíma-
þægindi, sturtur, heitur pottur og
allt þetta sem maður fær alls stað-
ar. Þegar sú laug var risin voru
settir búkkar á veginn svo maður
færi nú ekkert að asnast í gömlu
ævintýralaugina. Fólk var að verja
fjárfestinguna sína og skiljanlegt
að það væri lítil stemning fyrir
því að túristarnir hengu öllum
stundum ókeypis í gömlu lauginni.
Þrátt fyrir búkkana hélt þó
straumurinn þangað áfram. Það
sama myndi gerast ef einhver
byggði kofa við hliðina á Eiffel-
turninum og reyndi að selja inn í
hann.
ÞAÐ var auðvitað dapurlegt að
sjá heila sundlaug í eyði. Það nýja
og venjulega hefur lotið í gras
fyrir því gamla og óvenjulega.
Málningin flagnandi af grindverk-
inu, yfirbragðið þunglyndislega
tregafullt eins og jafnan er með
hús í eyði.
MÉR finnst þessi niðurstaða hálf-
gerð táknmynd, eða framtíðarsýn,
yfir tvennt sem stöðugt hefur
verið „í umræðunni“: verndun
gamalla húsa og náttúru. Nýir
steypukassar munu aldrei ná því
andrúmi sem fylgir gömlum timb-
urhúsum og útsýnispallar við
virkjanir munu aldrei ná að toppa
töfra óspilltrar náttúru. Sem betur
fer var gamla Seljavallalaugin
ekki rifin þegar nýja laugin var
reist og því varð þar ekki óaftur-
kræft umhverfisslys. Því miður er
ekki það sama hægt að segja um
hitt. Hin síjaplandi tönn tímans
mun vinsa kjarnann frá hisminu
og því er vonandi fyrir okkur – og
krakkana okkar – að eitthvað
meira en drasl í eyði standi eftir á
endanum.
Seljavallalaug
Skítt með kerfið!
Lifðu núna
Með Vodafone Frelsi velur þú 5 vini og
skráir þá á vodafone.is. Hvaða vini sem er,
alveg sama hjá hvaða símafyrirtæki þeir eru.
Misstu ekki af þessu frábæra sumartilboði.
Skiptu strax og gefðu skít í kerfið.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Hringdu fríkeypis í 5 vini óháð kerfi
Í dag er fimmtudagurinn 10. júlí,
193. dagur ársins.
3.28 13.33 23.36
2.37 13.18 23.56