Fréttablaðið - 18.07.2008, Side 4

Fréttablaðið - 18.07.2008, Side 4
4 18. júlí 2008 FÖSTUDAGUR Grill-leikur me› s‡r›um rjóma! Taktu þátt í grillleik MS og þú gætir unnið glæsilegt Weber-grill eða vandað grillsett. Kauptu dós af sýrðum rjóma frá MS, farðu á www.ms.is, sláðu inn lukkunúmerið sem er í lokinu og þú færð strax að vita hvort þú hefur unnið. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 0 8 -1 0 2 0 VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg Helsinki Eindhoven Amsterdam London Berlín Frankfurt Friedrichshafen París Basel Barcelona Alicante Algarve Tenerife HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 20° 20° 20° 21° 20° 20° 19° 20° 22° 21° 19° 17° 21° 20° 27° 29° 30° 22° 6 11 18 Á MORGUN 5-10 m/s SUNNUDAGUR Hæg, breytileg átt. 9 6 8 7 9 10 13 11 12 11 4 6 6 8 8 5 3 5 7 5 7 12 14 12 13 15 17 1613 16 ÁGÆTAR HELGARHORFUR Það er ekki að sjá annað en fram undan sé fín helgi í veðrinu. Vindur verður skaplega hægur og víða ágætlega bjart, síst þó reyndar austan til á laugardegin- um og vestan til á sunnudag. Auk þessa hlýnar nokk- uð víðast hvar ekki síst norðan til. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur LÖGGÆSLA „Innbrot og skemmdar- verk eiga ekki að líðast en það er hægt að útfæra það á ýmsa vegu hvernig hjá því er komist. Við höfum hingað til lagt áherslu á nágrannagæslu, því góður granni er besta forvörnin,“ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ. Seltjarnarnes kom sér upp svo- kallaðri hverfagæslu árið 2005. Í því felst að hverfagæslumenn keyra um hverfi Seltjarnarnes- bæjar nokkrum sinnum á dag. Til- gangurinn er að koma í veg fyrir innbrot og skemmdarverk. Nú hafa Kópavogur og Mosfellsbær ákveðið að fylgja fordæmi Seltjar- ness. Hafnarfjörður og Garðabær hafa enn ekki tekið ákvarðanir varðandi þetta. „Við höfum verið í viðræðum bæði við lögregluna og einkafyrir- tæki um aukna þjónustu í sveitar- félaginu,“ segir Gunnar. Atvinnu- og tækniþróunarnefndar Garða bæjar er að fjalla um þessi mál að sögn Gunnars og mun leggja fram tillögu um hvernig auka megi öryggi íbúa fyrir haust- ið. „Löggæslan á höfuðborgar- svæðinu er í fjársvelti og þar ligg- ur hundurinn grafinn í vandræð- um löggæslunnar. Ég hef ekki séð þann árangur sem sameining lög- regluembætta á höfuðborgar- svæðinu átti að skila.“ Gunnar segir það stóra ákvörð- un að taka upp hverfagæslu og sveitarstjórnir reyni í lengstu lög að forðast að greiða fyrir verkefni sem ríkið á að sjá um. „Hins vegar finnst mér að sveitarfélögin eigi að hafa sem flest verkefni á sinni könnu því starfsemi ríkisins er oft svo hægvirk í málum sem þess- um.“ Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir ekki standa til að koma upp hverfagæslu í Hafn- arfirði. „Það er ekki sveitar- félaganna að grípa til svona við- bótareftirlits. Ríkisvaldið fer með löggæsluna í landinu og á að tryggja góða löggæslu í sveitar- félögunum.“ Hafnarfjörður var á sínum tíma mótfallinn sameiningu lögreglu- embætta á höfuðborgarsvæðinu. Lúðvík segir löggæslu hafa hrak- að síðan ákveðið var að loka lög- reglustöðinni í Hafnarfirði á kvöldin og um helgar. „Þjónustan er ekki eins snör og víðtæk eins og þegar lögreglan var undir sýslumanninum. Ef ríkið getur ekki ráðið við löggæsluna þá ætti að huga að því að löggæslan fari til sveitarfélaga,“ segir Lúð- vík. vidirp@frettabladid.is Bæjarstjóri segir lögregluna fjársvelta Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir það ekki vera hlutverk sveitarfélaga að grípa til hverfagæslu eins og í nokkrum nágrannasveitarfélögum. Bæjarstjóri Garðabæj- ar segist ekki hafa séð árangurinn af sameiningu lögregluembætta. GUNNAR EINARSSON LÚÐVÍK GEIRSSON LÖGREGLAN Bæjarstjórarnir tveir viðra báðir hugmyndir um að löggæsla ætti að vera á vegum sveitarfélagana. FRÉTTABLAÐIÐ/EGGERT KJARAMÁL Tæplega 78 prósent félagsmanna í Félagi háskólakenn- ara samþykktu kjarasamninga sína. Um 73 prósent félagsmanna í kennarafélagi KHÍ samþykktu sína samninga. Þrjátíu prósent þátttaka var hjá KHÍ en tæp 42 prósent hjá háskólakennurum. Félögin voru þau síðustu innan Bandalags Háskólamanna, BHM, til að klára atkvæðagreiðslur sínar. Það gerðu þau síðastliðinn miðvikudag. Kjarasamningarnir gera ráð fyrir 20.300 króna launahækkun á alla launþega. Félagsmenn stéttarfélags lögfræð- inga voru þeir einu sem höfnuðu samningi sínum hjá BHM. - vsp Kennarar samþykktu kjörin: Síðustu félögin innan BHM UMHVERFISMÁL Fleiri landsmenn eru á móti álveri í Helguvík en ekki, miðað við niðurstöður skoðanakönnunar Capacent, sem birtar voru í gær. Af þeim sem svöruðu segjast 41,6 prósent mótfallin álverinu, en 36 prósent hlynnt. Taka 22,4 prósent ekki afstöðu. Könnunin var gerð fyrir Vinstri græna og segir formaður þeirra, í samtali við Vísi, niðurstöðurnar sýna að „skýr meirihlutavilji“ sé fyrir því að ekki verði gengið lengra í stóriðjuátt. Yngra fólk og tekjuminna er andvígara álverinu en eldra fólk og konur frekar en karlar. - kóþ Skoðanakönnun Capacent: Fleiri leggjast gegn Helguvík UMFERÐ Framkvæmdum við gerð nýrrar akreinar við Miklubraut lýkur væntanlega um miðjan ágúst. Er það um tveimur vikum síðar en áætlað var, samkvæmt Garðari Þorbjörnssyni hjá verktakafyrirtækinu Urð og grjóti sem hefur yfirumsjón með framkvæmdunum. Garðar segir starfsmenn sína vinna dag og nótt við fram- kvæmdirnar, sem fela einnig í sér endurnýjun á umferðarljósum á brautinni. „Það er vilji fyrir því að klára þetta áður en skólar hefjast,“ segir Garðar. Hann segir bið eftir efni frá útlöndum orsaka seinkunina. - kg Unnið dag og nótt: Tafir á vinnu við Miklubraut UNNIÐ DAG OG NÓTT Framkvæmdirnar við Miklubraut eru vel á veg komnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR MIÐBÆRINN „Við þurfum að óska eftir breytingu á ríkjandi deili- skipulagi,“ segir Hjálmar Helgi Ragnarsson, rektor Listaháskól- ans. Hjálmar kynnti í gær sigurtil- lögu +Arkitekta í samkeppni um nýjan Listaháskóla við Lauga- veg. Tillagan gerir ráð fyrir að öll gömul hús á reitnum víki, utan eitt, Laugavegur 41, sem á að friða. „Formaður skipulagsráðs lagði það sérstaklega að okkur að gæta götumyndarinnar og það teljum við okkur hafa gert,“ segir Hjálmar og bendir á að hæð húss- ins sé í samræmi við önnur há hús við götuna og að gangstétt fyrir utan húsið verði breiðari. „En það dettur engum í hug að í götumynd Laugavegar séu bara 19. aldar hús. Ef það er heilagt að þessi gömlu hús standi þarna þá þýddi það að húsið þyrfti að vera yfirþyrmandi stórt,“ segir hann. Spurður hvort geti verið að Listaháskólinn sé einfaldlega of stór fyrir reitinn, segir rektor hans: „Ég myndi þá frekar segja að borgin væri of lítil fyrir skól- ann. Ef svo er þá eru til önnur bæjarfélög sem hafa boðið okkur að koma. Það skilja allir þörfina á að finna Listaháskólanum góðan stað,“ segir hann. Tillagan gerir ráð fyrir rúm- lega 13.000 fermetra húsi, með viðbótarstækkunarmöguleikum við Hverfisgötu. - kóþ Vinningstillaga í keppni um byggingu Listaháskólans við Laugaveg sýnir rúmlega 13.000 fermetra byggingu: LHÍ krefst breytingar á deiliskipulagi VÆNTANLEGUR LISTAHÁSKÓLI Nýjum Listaháskóla var í gær líkt við Tollstjórahúsið og við Landsbankahúsið að Laugavegi 77. MYND/SAMSON PROPERTIES Samfylking væri komin í ESB Samfylkingin, sæti hún ein í ríkis- stjórn, væri nú þegar búin að sækja um aðild að ESB. Þó er gleðiefni að Sjálfstæðisflokkurinn sé að fikra sig í átt til Evrópu. Þetta segir í tilkynningu ungra jafnaðarmanna. STJÓRNMÁLEðla úti á götu Birkir Örn Skúlason, 11 ára drengur í Keflavík, sá um eins metra langa eðlu úti á götu þar í bæ á þriðjudag. Kallaði hann á lögreglu sem kom á vettvang og tók dýrið eftir nokkurn eltingaleik en eðlan leitaði skjóls meðal annars inni í bretti á bíl. Eðlunni var fargað. LÖGREGLUFRÉTT GENGIÐ 17.07.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 155,694 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 76,62 76,98 153,36 154,10 121,46 122,14 16,28 16,376 15,057 15,145 12,800 12,874 0,7261 0,7303 125,38 126,12 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.