Fréttablaðið - 18.07.2008, Side 25
Kristleifur Halldórsson, sem starfar í eldhúsinu
á veitingastaðnum Silfri, er mikill snillingur í
eldhúsinu og kann vel til verka.
Kristleifur hefur lengi unnið við matreiðslu og er því
vel sjóaður í þessum geira. Uppáhaldsréttur Krist-
leifs er klaustursbleikja með humarvindli ásamt
chili-lárperumauki og með því hefur hann kónga-
krabbasalat.
„Þessi réttur er hugmyndasmíð matreiðslumanna
Silfurs og hefur verið tekið gríðarlega vel af öllum
sem hafa gætt sér á,“ segir Kristleifur. Innihaldið er
320 grömm af klaustursbleikju, tvær sítrónur, einn
kóríander ásamt einu stykki af chili og salt og pipar.
Lárperumaukið samanstendur af einni sítrónu, tveim-
ur stykkjum af chilli og 100 millilítrum af extra virg-
in olífuolíu og salti og pipar. Innihald kóngakrabba-
salatsins er 100 grömm af kóngakrabba, 40 grömm af
sýrðum rjóma, 10 grömm af wasabi-dufti og eitt búnt
af steinselju ásamt salti og pipar.
„Aðferðin er einföld en hún er þannig að bleikjan
er beinhreinsuð, flökuð og skorin í fallega bita. Olí-
unni, salti og pipar, sítrónuberkinum og kóríander er
stráð á bakka og bleikjan lögð á og elduð við 70 gráð-
ur á Celsíus í 2-4 mínútur. Aðferðin við humarvindil-
inn er þannig að blaðdeig er skorið í myndarlegan
þríhyrning og humarnum rúllað fallega upp með thai-
parsley og prjóni stungið í gegn. Kóngakrabbasalatið
er svo búið þannig til að kóngakrabba, sýrða rjóman-
um, chili, wasabi og steinselju er blandað varlega
saman,“ útskýrir Kristleifur og bætir við að upp-
skriftin sé fyrir fjóra.
mikael@frettabladid.is
Að hætti fagmanna
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
gb
ro
t
6.490 kr.
4ra rétta tilboð
og nýr A la Carte
· Léttreiktur lax með granateplum og wasabi sósu ·
· Kókos- og engifersúpa með grilluðum tígrisrækjum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·
· Banana- og súkkulaðifrauð með vanillusósu ·
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn
með sérvöldu víni með hverjum rétti: 9.990 kr.
Côte Rôtie „La Mouline“ 2003 | Rhône, Frakkland
Opus One 1995 | Napa Valley, Bandaríkin
NÝTT!Glas af eðalvíni
Nú hefur veitingahúsið Perlan bætt við möguleikanum að velja
sér glas af 19 eðalvínum með mat. Verð frá 890-8.900 kr.
Sjá nánar á perlan.is.
AFTUR TIL MIÐALDA
Miðaldadagar verða haldnir
á Gásum í Eyjafirði um
helgina en Gásakaupstaður
var verslunarstaður á mið-
öldum og þar eru friðlýstar
fornleifar.
HELGIN 3
SELT EFTIR VIGT
Just Food er nýr matsölu-
staður á Laugarásvegi
þar sem hægt er að fá
tilbúinn, hollan og góðan
mat seldan eftir vigt til að
taka með sér.
MATUR 4
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
Rétturinn sem Kristleifur kann góð skil
á er afar bragðgóður og frumlegur.
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA SUMAR ATVINNA TILBOÐ HELGIN O.FL.