Fréttablaðið - 18.07.2008, Page 28
[ ]Kökur og annað góðgæti er tilvalið að eiga inni í eldhús skáp ef gesti ber óvænt að garði. Hægt að galdra fram veislu á augabragði.
Just Food to go er nýr staður
á Laugarásvegi þar sem hægt
er að fá tilbúinn, hollan mat
seldan eftir vigt.
Matsölustaðurinn Just Food to go
á Laugarásvegi 1 var opnaður í
síðustu viku. Hann byggist á nýrri
hugmynd hér á landi þar sem til-
búinn maturinn er seldur eftir
vigt. „Við erum búin að ganga með
þessa hugmynd í maganum í tvö
ár en þetta er það eina í veitinga-
flórunni sem okkur fannst alveg
vanta,“ segir Stefán Stefánsson
sem á staðinn ásamt eiginkonu
sinni, Lindu Arthur. Þau hjónin
hafa starfað saman í veitingahúsa-
bransanum í rúmlega 30 ár og
voru síðasta áratuginn með veit-
ingastaðinn Rauðará.
„Við bjóðum upp á heimilismat
af öllum stærðum og gerðum en
einnig veitingahúsamat. Við erum
til dæmis með nautasteikur, fyllt-
ar kjúklingabringur, lambalæri,
grillaðan lax, sjávarrétti og pipar-
steik með sérrísósu. Síðan bjóðum
við upp á grænmetisrétti ýmiss
konar, meðlæti og smurbrauð. Við
erum ekki með neinn skyndibita,
ekkert djúpsteikt og engar fransk-
ar kartöflur,“ segir Stefán sem
leggur áherslu á hollan mat. „Við
notum engin óæskileg efni og
gerum kröfur um alvörumat. Við
viljum til dæmis fá kjúklinginn án
þess að búið sé að gera nokkuð við
hann og borgum vissulega meira
fyrir vikið,“ segir Stefán sem
kveðst þó hafa gert hagstæða
samninga við birgjana og lætur
viðskiptavini njóta þess.
Ekkert hefur verið til sparað við
gerð matsölustaðarins og eru allar
innréttingar sérpantaðar frá
Ítalíu. Just Food to go er opinn sjö
daga vikunnar, frá klukkan níu á
morgnana til átta á kvöldin til að
byrja með. „Svona stað vantaði
alveg í hraða nútímans, stað þar
sem fólk getur fengið alvörumat
til að taka með sér sem er ekki
með neinu brasi eða óæskilegum
efnum,“ segir Stefán
mariathora@frettabladid.is
Gott í hraða nútímans
Stefán leggur áherslu á að vera með
hollan mat.
Stefán Stefánsson stofnaði Just Food to go ásamt eiginkonu sinni. Þau eru fyrst á Íslandi til að bjóða viðskiptavinum tilbúinn mat
eftir vigt. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Við bjóðum bæði upp á íslenskan mömmumat svo sem plokkfisk en einnig veit-
ingahúsamat,“ segir Stefán.
VÍNSKÁPAR
Tilboð 39.990 kr
50 %
AFSLÁTTUR
Ne
tv
er
slu
n
ish
us
id
.is
Sölustaðir: Járn og gler · Garðheimar · Húsasmiðjan
Egg · Búsáhöld Kringlunni · Útilegumaðurinn · Motor Max
Everest · Seglagerðin Ægir · www.weber.is
X
E
IN
N
J
G
W
E
B
Q
2
x2
5
W
eb
er
Q
Weber Q gasgrill, frábært í ferðalagið
Sumarið
er komið!
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki