Fréttablaðið - 18.07.2008, Síða 54
30 18. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Auðvitað lifðu þau
hamingjusöm til æviloka
- hvers vegna heldurðu að
þetta sé kallað ævintýri?
Þetta zkulum við
zkoða!
Þeir áttu
reyndar kort
fyrir þetta
tækifæri!
Áttu þeir
eitthvað með
textanum
„Góðan bata, litli
Þjóðverji“?
Hm.
Hm? Já, venjulega faðmarðu mig
fastar á leiðinni í líffræði en á
leiðinni í stærðfræði ...
... en í dag faðmaðirðu mig
fastar á leiðinni í stærðfræði
en í líffræði.
Truflað,
maður.
Stundum ertu
svo óútreiknan-
legur.
Ég er
bara ég.
Jæja, það var gaman að sjá
þig Lalli ... En ég finn lyktina
af kvöldmat og það er orðið
seint ...
Góða nótt.
Sjáumst!
Þetta er húsið mitt.
Morgunmatur í rúmið á afmælis-
deginum mínum er æðislegt,
krakkar ... En er klukkan fjögur ekki
aðeins of snemmt?
Þetta átti að
koma á óvart!
Þið hafið heldur betur
komið mér á óvart með
huggulegum morgun-
mat ...
Hvað er
þetta? Við megum ekki steikja
pönnukökur sjálf, svo við
skárum ristað brauð út í
hringlaga kökur!
Það er aldeilis
ekki auðvelt!
Flest gerum við hluti
sem við höfum
gaman af, en viljum
síður að aðrir viti um.
Enskumælendur tala
um „guilty pleasures“,
eitthvað sem almennt
þykir hallærislegt, en
er engu að síður ómót-
stæðilegt fyrir viðkomandi
aðila. Þessar leynilegu ánægju-
stundir geta verið af öllum toga. Ein
helsta gleði Hómers Simpsons er til
dæmis að borða túlípana inni á bað-
herbergi, svo nærtækt dæmi sé
tekið. Einna áþreifanlegustu dæmin
um leynilegar ánægjustundir snúa
að tónlistarsmekk fólks.
Ég hef ekki tölu á þeim lögum,
tónlistarmönnum og hljómsveitum
sem ég dáist að, en skammast mín
fyrir um leið. Ég hef þó fundið útrás
fyrir þessa laumudýrkun og það er
geislaspilarinn í bílnum mínum.
Sérstakt yndi hef ég af ökuferðum
sem eiga sér stað seint um kvöld,
þegar fáir eru á ferli, og ég er einn
við stjórnvölinn á bílnum og geisla-
spilaranum. Þá glymur út um niður-
skrúfaða bílrúðuna hver hallæris-
perlan á fætur annarri á hæsta
styrk og sjálfur gaula ég með af
takmarkaðri getu en þeim mun
meiri innlifun. Unaður.
Þó bar skugga á sælu mína eitt
kvöldið fyrir ekki alls löngu. Ég var
að keyra heim úr vinnu, í kunnug-
legum stellingum með músíkina í
botni, og söng hástöfum með hinum
ódauðlega slagara níunda ára-
tugarins, Do you believe in Love?
með Huey Lewis (sem þykir einmitt
glæpsamlega hallærislegt). Skyndi-
lega fór ég velta vöngum yfir því
hvort þetta væri virkilega rétta
lagið til að hafa í gangi ef ég skyldi
lenda í árekstri og deyja. Vildi ég að
rödd Hueys yrði það síðasta sem ég
heyrði í þessu jarðlífi? Ég komst að
þeirri niðurstöðu að svo væri hreint
ekki. Í framhaldinu hóf ég að íhuga
hvert rétta lagið við slíkar aðstæð-
ur væri. Ég komst að þeirri niður-
stöðu að líklega væri mest töff að
deyja með einhvert ofursvalt djass-
lag sem undirleik. Það er bara einn
hængur á. Ég er svo lítið fyrir djass
að ég yrði eflaust löngu látinn úr
leiðindum áður en mín hinsta stund
rynni upp.
STUÐ MILLI STRÍÐA Sakbitnar lystisemdir
KJARTAN GUÐMUNDSSON SKAMMAST SÍN FYRIR ÓTAL MARGT SEM HANN FÍLAR
Hemmi Gunn og Svansí
í útilegu á Flúðum
19. ágúst
Útihátíð
Bylgjunnar
Flúðum
Hemmi Gunn og Svansí hafa verið á ferðalagi
um ævintýraeyjuna með Bylgjunni og Olís í
sumar og láta ekki deigan síga um næstu
helgi. Þau standa fyrir útihátíð Bylgjunnar
fyrir utan félagsheimilið á Flúðum á laugardag
og fá til sín fjölda skemmtikrafta þar sem
slegið verður á létta strengi.
Meðal gesta verða Ingó og Veðurguðirnir,
Gunni Óla og Sjonni Brink, Raggi Bjarna,
Þorgeir Ástvaldsson og Bjarni Arason.
Óperuídýfurnar Davíð og Stefán, öðru nafni
Dúett.is mæta í banastuði, að ógleymdum
Harasystrum.
Einnig verður sveitastjórasprell, grillveisla í
boði Olís og dregið verður um utanlandsferð í
Olísleiknum.
Mikið fjör verður á Flúðum næsta laugardag
strax að loknum hádegisfréttum og að þætti
loknum verður útiskemmtun með Gunna Óla
og Sjonna Brink.
Vertu velkomin/n á útihátíð Bylgjunnar.
Góða skemmtun.