Fréttablaðið - 27.09.2008, Side 35

Fréttablaðið - 27.09.2008, Side 35
heimili&hönnun ● Hönnunarsýningin 8+8 sem stend- ur nú yfir í Sýningarsalnum Dverg Lækjargötu 2 í Hafnarfirði, fékk umfjöllun nýlega á vefsíðunni www. designboom.com. Designboom er vönduð síða sem fjallar um allt það helsta sem á döfinni er í hönn- un og arkitektúr um allan heim. Þar er meðal annars hægt að finna við- töl við hönnuði sem og umfjallan- ir um allar helstu hönnunarmess- ur og samkeppnir sem haldnar eru. Um íslensku sýninguna segir á síð- unni að átta hönnuðir og átta fram- leiðslufyrirtæki í Hafnarfirði hafi sameinað krafta sína til að endur- uppgötva möguleika í framleiðslu fyrirtækjanna gegnum hönnun. Miklir möguleikar liggi í íslenskri fram- leiðslu og tækni og hönn- uðir hafi sérþekkingu í að koma með nýjar hugmyndir. Verkefnið 8+8 er einstakt framtak þar sem alheimsvæð- ing hefur orðið til þess að sér- staða hluta, svo sem eins og hvar þeir eru framleiddir og af hverjum, skipta miklu máli. Áhugafólk um hönnun og íslenskt hugvit ætti ekki að láta sýninguna fram hjá sér fara en hún stendur til 5. október. Nánar má lesa um sýninguna á vef hönn- unarmiðstöðvar og svo á www.de- signboom.com. - rat LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2008 7 Hagnýt hönnun í Firði ● Nú fer hver að verða síðastur að kíkja á Hönnunarsýninguna 8 + 8 í Hafnarfirði þar sem fyrirtæki og alþjóðlegir hönnuðir taka höndum saman. Sýningin hefur vakið athygli víða. Steyptur bekkur sem Katrín Ólína Pétursdóttir hönnuður vann í samstarfi við steypu- verksmiðjuna Mest. Kollar úr tré og áli urðu niðurstaða hol- lensku hönnuðanna Rianne Makkink og Jurgen Bey og málmsteypunnar Hellu. Hitaborð eftir hönnunarfyrirtækið Borðið-Rafhitun og litríkir kollar í kring. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hin árlega menningarhátíð Arts & Lights in Tallinn fer fram nú um helgina í Tallinn í Eistlandi, en á hverju ári velja hátíðahald- arar eitt land utan eistneskra landsteina til sérstakrar kynning- ar og samræðu. Að þessu sinni nýtur íslensk hönnun þeirrar virð- ingar að vera í brenni- depli á hátíðinni, en því fylgir mikill ávinn- ingur og viðurkenn- ing, ásamt markaðs- möguleikum fyrir ís- lenska hönnun. Hluti af hátíðinni er vegleg hönnunarhátíð sem ber heitið Tallin Design Night, þar sem hönnunarverðlaunin BRUNO eru afhent. Design Night er einnig hluti af hönnun- arhátíðinni Helsinki Design Week sem opnaði í gær og stendur til 6. október næstkomandi í Finnlandi, en þangað verður íslenska hönnunarsýningin send að lokinni hátíðinni í Tallinn. Alls völdu sýningarstjórar eistnesku hátíðarinnar fjórtán ís- lenska hönnuði með alls 23 hönnunargripi til þátttöku á sýning- unum í Tallinn og Helsinki, en einnig mun Hrafnkell Birgisson vöruhönnuður standa fyrir verkefninu de-ikea með fimm eist- neskum hönnuðum á hátíðinni. Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir vöruhönnuður var fengin til að sitja í dómnefnd eistnesku hönnunarverðlaunanna BRUNO. Íslensk hönnun sýnd í Tallinn og Helsinki Hönnuðurinn Tinna Gunnarsdóttir er meðal fjórtán íslenskra hönnuða sem valdir voru til að sýna verk sín í Tallinn og Helsinki. ELDAVÉLAR - INNBYGGINGAROFNAR - HELLUBORÐ - VIFTUR - HÁFAR - UPPÞVOTTAVÉLAR - KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR B ETRI STO FA N Við hönnum og teiknum fyrir þig! Komdu með málin af eldhúsinu, baðinu, anddyrinu, svefnherbergjunum eða þvottahúsinu - og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki. www.friform.is Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 Mán. - föst.kl. 10-18 Laugardaga kl. 11-16 OPIÐ NÝ VEFSÍÐA - VELKOMIN 24/7 Þitt er valið! Þú velur um að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem þess óska - fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. Allt á sama stað! þegar þú verslar við Fríform færðu alla þjónustu á sama stað, fullkomið úrval innréttinga og raftækja. Sölumenn okkar búa yfir þekkingu og reynslu. Við rekum eigið trésmíðaverkstæði, sömuleiðis eigið raftækjaviðgerðarverkstæði og höfum á að skipa hópi úrvals iðnaðarmanna; trésmiða, rafvirkja og pípara ef með þarf. Markmið okkar er að veita úrvalsþjónustu. GLÆSILEGAR DANSKAR INNRÉTTINGAR Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI ! GLÆSILEGAR DANSKAR INNRÉTTINGAR Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS Fullkomið úrval vandaðra raftækja frá ELBA, Snaigé, Scan Domestic og Westinghouse Úrvalið er svo mikið og verðið svo hagstætt að leitun er að öðru eins Westinghouse

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.