Fréttablaðið - 27.09.2008, Qupperneq 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Sjálfstæðismenn eru ákveðnir sem aldrei fyrr að reisa skáld-
inu Tómasi Guðmundssyni aðra
styttu til viðbótar þeirri sem er í
Borgarbókasafninu við Tryggva-
götu. Það er náttúrlega gleðiefni
að til séu peningar fyrir henni nú á
krepputímum og gaman að íslensk-
ur listamaður eigi von á jafnarð-
bæru verkefni. Maður hefði
reyndar haldið að myndhöggvarar
hefðu nóg að gera við að móta alla
borgarstjórana sem fengið hafa að
spreyta sig í Reykjavík að undan-
förnu en kannski einhver þeirra
getið litið upp úr því föndri og
búið til einn Tómas.
STYTTAN var rædd í Kiljunni á
miðvikudaginn. Ég skildi ekki
betur en að þar væri sagt að þeir
sem ekki væru fylgjendur styttna
af mikilmennum væru eins og
rauðu khmerarnir sem vildu strika
yfir fortíðina og ákváðu því að
hefja árið 0. Þetta er svo sem ágæt
samlíking. Ein af pyntingarað-
ferðunum sem rauðu khmerarnir
beittu var sú að láta bráðið blý
leka inn í eyrnagöng fórnarlamba
sinna. Þegar blýið harðnaði mátti
fólk lifa við það að hafa málm
innan í hausnum á sér, einmitt eins
og sumar styttur.
ÉG vona að ekki verði reist hefð-
bundin stytta af skáldinu Tómasi,
heldur frekar eitthvað í ætt við
verk Finnu Birnu Steinsson sem
stóð um tíma við göngustíginn í
Skerjafirðinum. Það lýsti sér í
eilitlum palli með grindverki sem
á var bæði hnappur og hátalari.
Þegar stutt var á hnappinn bárust
skemmtileg sjómannalög úr hátal-
aranum eins og Sjipp og hoj. Þarna
fékk maður sér snúning á fögrum
sumarkvöldum, man ég, alveg
þangað til apparatið bilaði en þá
hallaði maður sér bara fram á
grindverkið, horfði út á haf og
þóttist vera í siglingu á fínu
skemmtiferðaskipi. Gott listaverk
eykur ímyndunaraflið.
HUGSA mætti sér eitthvað svip-
að með honum Tómasi. Listamað-
ur yrði fenginn til að móta síma-
staur og þegar stutt væri á takka
færðist grænn blær yfir staurinn,
hann hæfi upp raust sína og kyrj-
aði ljóð Tómasar. Hefðbundin
stytta af manni úr grjóti eða
steyptum í járn vekti nefnilega
bara upp ótta hjá fólki um að svona
geti líka farið fyrir því sjálfu verði
því það á að skara fram úr. Stein-
renningin varð endalok tröllanna í
þjóðsögunum, jafnvel þótt þau
fyndu fyrir geislum sólarinnar
rétt á meðan.
Gamlir síma-
staurar syngja
Í dag er laugardagurinn
27. september, 271. dagur ársins.
7.26 13.19 19.09
7.11 13.03 18.54
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is