Fréttablaðið - 23.10.2008, Síða 12
12 23. október 2008 FIMMTUDAGUR
Gegn vanlíðan og óvissu
Grænt númer fyrir Kópavogsbúa.
Í því erfiða ástandi sem skapast hefur við hrun á fjármála-
markaði hafa Kópavogsbær, prestar í Kópavogi, Mennta-
skólinn í Kópavogi, heilsugæslan og Kópavogsdeild
Rauða krossins tekið höndum saman til að styðja við
Kópavogsbúa.
Ráðgjafaver hefur verið sett á laggirnar í síma 800 5500
til að veita íbúum sem glíma við vanlíðan og erfiðleika
vegna ástandsins stuðning og leiðsögn. Í ráðgjafaveri
svara félagsráðgjafar, prestar og sálfræðingar símanum
og veita liðsinni sitt. Þar er einnig hægt að fá upplýsingar
um hvert er hægt að leita eftir frekari aðstoð.
Ráðgjafaverið er opið virka daga frá kl. 9 til 17
Kópavogsbær, www.kopavogur.is
Eitt númer í þjónustuveri, 570 1500
Félagsþjónustan, bakvaktarsími barnaverndar 862 5975
Fræðslusvið: leik- og grunnskólar
Tómstunda og menningarsvið: íþróttir og æskulýðs- og
menningarmál
Prestarnir í Kópavogi
Digraneskirkja: 554 1620 og 554 1630 – www.digraneskirkja.is
Kópavogskirkja: 554 1898 – www.kopavogskirkja.is
Hjallakirkja: 554 6716 – www.hjallakirkja.is
Lindakirkja: 544 4477 – www.lindakirkja.is
Menntaskólinn í Kópavogi, www.mk.is
Aðalnúmer: 594 4000
Námsráðgjafar: 594 4014 og 594 4018
Hjúkrunarfræðingur
Kópavogsdeild Rauða krossins, www.redcross.is/kopavogur
Aðalnúmer: 554 6626
Hjálparsíminn: 1717
Heimsóknavinir - Fataúthlutun
Heilsugæslan í Kópavogi
Hamraborg: 594 0500 – www.hg.is
Hvammur: 594 0400 – www.hg.is
Heilsugæslan Salahverfi: 590 3900 – www.salus.is
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, 867 7251
Neyðarlínan 112
Félags- og tryggingamálaráðuneytið, 800 1190
www.felagsmalaraduneyti.is/upplysingar
Erlend tungumál: English - Polski - - Srpski
kópavogsbúum er einnig bent á eftirtalda aðila og stofnanir:
EFNAHAGSMÁL „Það tekur því ekki
að svara svona ummælum, þetta
er ekki svaravert,“ segir Sigurjón
Árnason, bankastjóri Landsbank-
ans, í samtali við Viðskiptablaðið
í júlí á þessu ári. Ummælin sem
Sigurjón taldi ekki svaraverð
komu frá Bert Heemskerk, for-
manni bankaráðs hollenska bank-
ans Rabobank, en hann hélt því
fram í ríkissjónvarpi Hollands 7.
júlí að áreiðanleiki Landsbankans
væri enginn.
Heemkerk varaði Hollendinga
einnig við því að leggja fé sitt inn
á Icesave-reikninga.
Sigurjón sagði ummælin ekki
koma til með að skaða Lands-
bankann og sagði að vel gengi að
afla reikningseigenda að Icesave
í Hollandi. Nokkrum dögum eftir
að Sigurjón blés á þessar áhyggju-
raddir Heemkerks voru skýrslur
tveggja breskra hagfræðinga
kynntar á málþingi Landsbank-
ans.
Í niðurstöðum hagfræðingana
kom fram að annaðhvort þyrfti að
skipta um gjaldmiðil eða bank-
arnir að draga úr erlendum
umsvifum því stærð þeirra
stefndi hagkerfinu í hættu. Annar
skýrsluhöfundanna, hefur sagt að
íslenska bankahrunið hafi verið
fyrirsjáanlegt.
Gylfi Zöega prófessor tók undir
það í Morgunblaðinu á dögunum.
Ekki er enn vitað hve háa upp-
hæð Íslendingar þurfa að greiða
Hollendingum vegna Icesave-
reikninganna.
Financial Times segir að verið
sé að leggja lokahönd á hátt í 600
milljarða króna lán til Íslendinga
frá Bretum vegna Icesave-reikn-
inga.
Fréttablaðið reyndi í gær, án
árangurs, að ná tali af Ásgeiri
Friðgeirssyni, upplýsingafulltrúa
Björgólfsfeðga sem eru eigendur
Landsbankans, til að leita svara
við því hvort, hvernig og hvenær
viðbragða þeirra vegna málsins
væri að vænta. - kdk
Bankastjóri Landsbankans blés á gagnrýni Rabobank í sumar:
Sagði gagnrýni á Icesave ekki svaraverða
SIGURJÓN ÁRNASON Fyrrverandi banka-
stjóri Landsbankans neitaði að svara
gagnrýni formanns bankaráðs hollenska
bankans Radobank fyrir fáeinum mán-
uðum.
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
VIÐSKIPTI Nýherji tapaði tæpum
262 milljónum króna eftir skatta á
þriðja ársfjórðungi, samkvæmt
uppgjöri sem birt var í gær.
Fyrstu níu mánuði ársins nemur
tap félagsins 694 milljónum, en
302 milljóna króna hagnaður var á
sama tíma í fyrra.
Haft er eftir Þórði Sverrissyni,
forstjóra Nýherja, í tilkynningu
félagsins, að fjárhagsstaða
félagsins sé traust og að eiginfjár-
hlutfall sé 25,4 prósent þrátt fyrir
gjaldfærslu á 730 milljóna króna
gengistapi á árinu. Hann segir
rekstur grunnstarfsemi félagsins
samkvæmt áætlun og sama gildi
um dótturfélög hér og hugbúnað-
arstarfsemi erlendis. - óká
Þriðji ársfjórðungur 2008:
Nýherji tapar
262 milljónum
BÓLIVÍA, AP Evo Morales, forseti
Bólivíu, táraðist þegar þjóðþing
landsins hafði samþykkt stjórnar-
skrárbreytingar, sem færa
frumbyggjum landsins aukin
völd.
„Nú get ég gengið hamingju-
samur í gröfina því ég hef gegnt
skyldu minni við bólivísku
þjóðina,“ sagði Morales við
mannfjöldann sem safnaðist
saman í höfuðborginni La Paz til
að fagna niðurstöðunni.
Nýja stjórnarskráin verður
borin undir þjóðaratkvæða-
greiðslu 25. janúar næstkomandi.
Morales hafði barist hart fyrir
breytingunum, en hann er fyrsti
forseti landsins úr röðum
frumbyggja. - gb
Morales vann sigur:
Stjórnarskráin
var samþykkt
EVO MORALES Forseti Bólivíu veifar
stjórnarskránni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Bandaríkjaher
hefur fellt niður ákærur á hendur
fimm föngum í Guantanamo-
fangabúðunum á Kúbu. Enginn
þeirra hefur þó verið látinn laus,
og hugsanlega verða nýjar
ákærur gefnar út síðar.
Darrel Vandeveld, fyrrverandi
saksóknari hersins, segir
réttarhöldin yfir mönnunum
fimm hafa verið ranglát vegna
þess að herinn hafi haldið
leyndum sönnunargögnum sem
hefðu gagnast verjendum
mannanna.
Vandeveld sagði af sér sem
saksóknari vegna þessa. - gb
Fimm fangar í Guantanamo:
Ákærur voru
felldar niður
HÖRMUNGAFLÓÐ Hér sést þegar
Líkkista hins þriggja ára Pablo Goday,
sem drukknaði í miklum flóðum í
bænum El Progresso í Hondúras, var
borin gegnum bæinn í gær. Neyðar-
ástand ríkir á svæðinu vegna mikilla
rigninga síðustu viku. AÐ minnsta
kosti fjórtán hafa látið lífið og tveir eru
týndir, Þúsundir hafa þurft að yfirgefa
heimili sín og uppskera hefur víða
skemmst. NORDICPHOTOS/AFP