Fréttablaðið - 23.10.2008, Side 31
FIMMTUDAGUR 23. október 2008 3
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Í
lok tuttugustu aldarinnar
var heimur tískunnar
töluvert mótaður af tveimur
hæfileikaríkum hönnuðum,
þeim Yves Saint Laurent og Karl
Lagerfeld, fæddum 1936 og 1939.
Reyndar hafa þeir enn áhrif á
nýrri öld.
Í áhugaverðri nýútkominni bók
sinni, „Beautiful People“, segir
Alicia Drake frá lífi þessara
tveggja manna, í fyrstu vina en
síðar óvina vegna sameiginlegs
elskhuga. Margt er líkt með þeim
en þó svo ótalmargt sem skilur
þá að. Til dæmis má nefna að
YSL fylgir hefð hönnuða frá fyrri
tíð. Hann byrjar á að hanna fyrir
annað tískuhús og eftir að hafa
vakið mikla athygli hjá Dior
stofnar hann sitt eigið tískuhús
1958. Karl Lagerfeld er þekktast-
ur fyrir að hanna fyrir önnur
tískuhús, fyrst hjá Balmain, svo
Patou, Chloè og síðar Chanel en
merki Karls Lagerfeld náði
aldrei neinu flugi og varð
gjaldþrota fyrir nokkuð löngu.
YSL skynjar vel breytingar
áranna í kringum 1968 þegar
hátískuhúsin loka eitt af öðru og
klæðaburður kvenna gjörbyltist
líkt og svo margt annað með
kvennahreyfingunni. Þannig
verður hann fyrstur til að hanna
fjöldaframleiddan fatnað og opna
prèt-à-porter- (tilbúið til notkun-
ar) búðir. Reyndar segir í bókinni
að YSL hafi alls ekki fundið upp
kvenbuxurnar þegar hann kynnti
buxnadragtina 1968 en það er
Pierre Bergé, lífsförunautur YSL
og heilinn að baki stórveldis
hans, sem heldur utan um
markaðssetninguna og kynnir
YSL sem frumkvöðul á flestum
sviðum. Þannig setur hann YSL á
stall listamans í stað hönnuðar.
Karl Lagerfeld er hins vegar
frekar hönnuður en listamaður
og lætur best að setja stafina sína
við nöfn annarra. Það er tími
mikilla breytinga og villtra
veislna, eiturlyfja og frjálsra
ásta. Fjörið er á Palace í París
með Andy Warhol, Biöncu Jagger
og Palomu Picasso.
Karl Lagerfeld er líklega
fyrstur þeirra hönnuða sem
seinna áttu eftir að fylgja í
kjölfar listamanna eins og YSL. Í
dag eru flest tískuhús í höndum
ungra hönnuða sem ekki hafa
haft fjármuni eða hugrekki til að
skapa sín eigin tískuhús, kallaðir
listrænir stjórnendur. Það má
nefna John Galliano hjá Dior,
Marc Jacobs hjá Vuitton, Nicolas
Ghesquière hjá Balenciaga,
Riccardo Tisci hjá Givenchy og
Alber Elbaz hjá Lanvin.
Upp er runnin öld endur-
vinnslutísku. Þessir ungu
hönnuðir vinna upp úr arfleifð
fyrirrennara sinna og nútíma-
væða það sem áður hefur verið
hannað. Spurning hvort hægt sé
að tala um raunverulega listræna
sköpun.
Karl Lagerfeld er hins vegar
ekki kátur þessa dagana og
reynir að koma í veg fyrir
dreifingu bókarinnar.
bergb75@free.fr
Öld endurvinnslu
HAUSTÚTSALAN stendur sem hæst í Smáralind en henni lýkur
sunnudaginn 26. október. Á útsölunni má finna flottar flíkur á alla
fjölskylduna á allt að 80 prósenta afslætti.
Með stjörnur í huga
FÁGUN OG FEGURÐ EINKENNIR
HELSTU NÝJUNGAR DIOR.
Hönnun Diorshow Iconic
maskarans er innblásin af stór-
stjörnum úr hátískuheiminum.
Plíseruð lögun burstans, sem
er gerður úr gúmmíhárum, gerir
það að verkum að hægt er að
aðskilja hvert einasta augnhár.
Þau verða uppbrettari en nokkru
sinni fyrr, löng og glæsileg. Þá
er formúlan vítamínbætt til að
tryggja augnhárunum vörn og
endurnýjun.
Dior Homme Sport-rakspíran-
um er ætlað að fanga persónu-
töfra leikarans Jude Law en
það sem einkennir rakspírann
einna helst er orka og ferskleiki.
Í ilminum leikur engifer stærsta
hlutverkið í bland við
sítrónu og sedrusvið.
- ve
Verslunin Lykkjufall, sem opnaði í
Garðastræti 2 árið 2006, er flutt á
Laugaveg 39.
Fatahönnuðurinn Sigrún Bald-
ursdóttir selur þar peysur fyrir
konur með börn á brjósti og eru
útgáfurnar fjölmargar. Peysurnar
eru líka hugaðar sem tískufatnaður
og henta jafnt nýbökuðum mæðr-
um sem og öðrum. Þá hefur Sigrún
aukið við úrvalið og selur litríka
barnalínu, spiladósir með íslensk-
um þjóðlögum, lopapeysur, skrírn-
arkjóla og ýmsa smávöru. - ve
Flutt í
hringiðuna
Verslunin Lykkjufall flytur á
Laugaveg.
KRINGLAN SMÁRALIND LAUGAVEGUR
FIMMTUDAGS
TILBOÐ
69354 00101
Lir: Svart
Stærðir:
40 - 47
Exercise W.
11823 52733
Lir: Svart, brúnt
Stærðir:
36 - 42
Winter Z.
68084 00201
Lir: Svart
Stærðir:
41 - 47
Rugged Terrain V
42013 00709
Lir: Svart
Stærðir:
36 - 41
Urban Flexor
15.995
11.995
21.995
16.995
24.995
17.995
20.995
14.995
Vefta • Lóuhólum 2-4 • S: 557 2010 • & Þönglabakka 6 • S: 578 2050
Stelpukvöld í Hólagarði
fi mmtudaginn 23.okt. 2008 kl. 19:30 – 10:00
Tilboð, kynningar, afslættir. Boðið verður
upp á léttar veitingar.
Allir velkomnir og takið með ykkur gesti.