Fréttablaðið - 13.12.2008, Qupperneq 8
8 13. desember 2008 LAUGARDAGUR
1. Hvaða íslenska bók er á
meðal fimmtán bestu skáld-
sagna ársins, að mati bóka-
risans Barnes & Noble?
2. Hvað er sérstakt við jólakort-
in sem Hafliði Ragnarsson í
Mosfellsbakaríi hefur til sölu?
3. Fjögur fótboltalið hafa sýnt
áhuga á Blikanum Jóhanni
Berg Guðmundssyni. Hver eru
þau?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 86
BRUSSEL, AP Leiðtogar Evrópusam-
bandsríkjanna samþykktu í gær að
koma til móts við áhyggjuefni Íra
tengd svonefndum Lissabon-sátt-
mála, sem felldur var í þjóðarat-
kvæðagreiðslu á Írlandi í júní. Með
því eru vonir bundnar við að írskir
kjósendur falli frá fyrirvörum
sínum gegn því að staðfesta sátt-
málann fyrir sitt leyti í endurtek-
inni þjóðaratkvæðagreiðslu næsta
haust. Sáttmálinn getur ekki tekið
gildi fyrr en öll aðildarríkin 27 hafa
fullgilt hann.
Veigamesta atriðið sem ákveðið
var að láta eftir Írum var að fallið
yrði frá áformum um að fækka í
framkvæmdastjórn sambandsins,
en samkvæmt þeim áformum stóð
til að frá og með árinu 2014 hefðu
ekki lengur öll aðildarríkin einn
fulltrúa í þessari kjarnastofnun
sambandsins, heldur myndu þau
skiptast á um að senda fulltrúa í
hina minnkuðu átján manna fram-
kvæmdastjórn.
Önnur atriði sem írskir kjósend-
ur höfðu áhyggjur af var að ákvæði
Lissabon-sáttmálans kynnu að ógna
hlutleysi Írlands, sem og lágskatta-
stefnu þess og lögum um réttindi
launafólks. ESB-leiðtogarnir féllust
líka á að tryggt yrði að ekki yrði
vegið að neinum þessara írsku laga,
né heldur myndu ESB-reglur gera
Írum ókleift að halda í íhaldssöm
lög sín um fóstureyðingar eða grafa
undan heilbrigðis- og menntakerfi
landsins.
Gegn því að fá þetta í gegn skuld-
bindur írska stjórnin sig til að halda
nýja atkvæðagreiðslu um sáttmál-
ann áður en skipunartímabil núver-
andi framkvæmdastjórnar rennur
út í lok október.
Meirihlutastuðningur Íra við sátt-
málann er þó engan veginn tryggð-
ur vegna óvinsælda ríkisstjórnar
Brians Cowen, sem helgast að hluta
af efnahagskreppunni, en það fer
illa í marga landa hans hve staðráð-
inn forsætisráðherrann er í að halda
nýja þjóðaratkvæðagreiðslu.
Engu að síður eru Írar eftir sem
áður sú þjóð sem er ánægðust með
aðild sína að ESB; það sýndu niður-
stöður nýjustu Eurobarometer-
könnunar ESB.
Nicolas Sarkozy, forseti Frakk-
lands sem er nú að ljúka forsætis-
misseri sínu í ESB, lýsti mikilli
ánægju með að kosið yrði um
sáttmálann á ný á Írlandi, en Sar-
kozy hafði áður sagt að hann teldi
ógerlegt að taka fleiri ríki inn í
sambandið uns tekist hefði að
koma í gildi þeirri uppfærslu á
stofnana- og ákvarðanatökukerfi
sambandsins sem í Lissabon-
sáttmálanum felst.
- aa
ESB-sáttmáli í dóm
Íra á ný haustið 2009
Leiðtogar hinna ESB-ríkjanna 26 hafa samið við forsætisráðherra Írlands um að
Lissabon-sáttmálanum verði breytt þannig að Írar ættu ekki lengur að hafa neitt
á móti því að samþykkja sáttmálann í endurtekinni þjóðaratkvæðagreiðslu.
BRIAN COWEN Írski forsætisráðherrann á blaðamannafundi í Brussel í gær. Skuldbind-
ur Írlandsstjórn til að láta kjósa á ný um sáttmálann þótt það sé óvinsælt meðal Íra.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRUSSEL, POZNAN, AP Eitt af því fáa sem samkomulag
tókst um á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
sem lauk í Poznan í Póllandi í gær var að ríkari lönd
heims og fjölþjóðastofnanir sameinuðust um
skuldbindingar um að fjármagna sjóð sem á að
hjálpa fátækum ríkjum að bregðast betur við
afleiðingum loftslagsbreytinga á borð við alvarlega
þurrka og flóð.
Á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel,
sem einnig lauk í gær, tókst enn fremur samkomu-
lag um að sambandið héldi fast við metnaðarfull
áform sín í loftslagsmálum. Þau kveða bæði á um
bindandi markmið um samdrátt í losun gróðurhúsa-
lofttegunda, um aukna notkun endurnýjanlegra
orkugjafa og um leiðir til að fjármagna þessar
ráðstafanir.
Ríkin í austanverðu sambandinu, sem eru enn að
vinna upp velmegunarforskot Vestur-Evrópuríkj-
anna, fengu sett inn ákvæði um að þau nytu meiri
sveigjanleika hvað þetta varðar, í því skyni að
minnka hættuna á því að loftslagsaðgerðirnar yrðu
til að draga úr hagvexti hjá þeim.
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands sem gegnir
formennskunni í ESB, sagði samkomulagið sögu-
legt. Evrópa hefði sannað að hún gengi fram fyrir
skjöldu með góðu fordæmi; nú yrðu hinir sem
menguðu mest, einkum Bandaríkin og Kína, að taka
sér tak. - aa
Loftslagsráðstefnu SÞ í Poznan og leiðtogafundi ESB í Brussel lokið:
Metnaður til aðgerða ítrekaður
GORE Í POZNAN Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna
og baráttumaður gegn loftslagsbreytingum, ávarpar ráðstefnu-
fulltrúa í Poznan í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Karlmaður og kona hafa
verið úrskurðuð í áframhaldandi
farbann til 1. febrúar, að kröfu
lögreglustjórans á Selfossi.
Um er að ræða pólskt par sem
grunað er um að hafa stungið og
skorið landa sinn í Þorlákshöfn í
haust. Lögreglan hafði verið
kvödd til vegna hávaða í fjölbýlis-
húsi. Þegar hún kom á vettvang
var maðurinn ásamt nokkrum
löndum sínum utandyra, mikið
særður. Árásin var mjög alvarleg
og var hann í lífshættu.
Með hliðsjón af rannsóknar-
gögnum þykir fram kominn
rökstuddur grunur um að parið
hafi átt aðild að árásinni. - jss
Par áfram í farbanni:
Hrottaleg árás
með eggvopni
SPÁÐU Í HVAÐ ÞÚ SPARAR!
Ný
r
Or
ku
lyk
ill
NÝ
JU
NG
5 kr.
afsláttur
þegar þú notar
Orkulykilinn í
fyrsta sinn!
Alltaf
2 kr. afsláttur
af dæluverði
Bensínorkunnar sem
kannanir sýna að er
lægra en hjá
öðrum!
www.orkan.is
Auglýsingasími
VIÐSKIPTI Íslenskur fjárfestinga-
sjóður, sem að meirihluta er í eigu
Novator, fyrirtækis Björgólfs Thors
Björgólfssonar, gæti tapað allt að
tuttugu milljónum dollara á
umfangsmiklu fjársvikamáli sem
er komið upp í Bandaríkjunum.
Þetta fékk Fréttablaðið staðfest hjá
forsvarsmönnum Novator.
Fjárfestingarsjóðurinn Novator
Credit Opportunities Fund er eitt
þeirra fyrirtækja sem varð fyrir
barðinu á bandaríska lögfræðingn-
um Marc Dreier sem var handtek-
inn í Kanada í síðustu viku fyrir að
selja fölsuð verðbréf í fasteigna-
þróunarfélagi sem hann starfaði
fyrir sem ráðgjafi.
Dreier á og
rekur lögmanns-
stofu í New York.
Samkvæmt frétt
frá fréttaveitunni
Bloomberg, hefur
hann og lögfræði-
firma hans nú orðið
uppvíst að því að
falsa skuldabréf,
falsa undirskriftir,
setja á svið síma-
fundi og falsa net-
föng í þeim tilgangi
að villa um fyrir vogunarsjóðum og
öðrum kaupendum bréfanna. Virð-
ist ljóst að Dreier hafi stundað þetta
um langt skeið og vogunarsjóðirnir
sem eru fórnarlömb svindlarans
skipta tugum.
Vogunarsjóðir keyptu fölsuð
skuldabréf fyrir um 350 milljónir
bandaríkjadollara. Hlutur Novator-
sjóðsins var nærri tuttugu milljón-
um dollara. Hefur þegar verið
ákveðið af hálfu sjóðsins að leita til
lögfræðinga og kæra svikin, að
sögn forsvarsmanna Novator, sem
segja að fleiri fórnarlömb fjársvik-
anna hafi gert slíkt hið sama.
Novator Credit Opportunities
Fund er í meirihlutaeigu Novators,
en aðrir hluthafar eru erlend og
innlend fjármálafyrirtæki, þar á
meðal Straumur, Landsbankinn,
Glitnir og lífeyrissjóðir. - bih
Íslenskur fjárfestingasjóður gæti tapað allt að tuttugu milljónum dollara
Novator fórnarlamb fjársvika
BJÖRGÓLFUR
THOR BJÖR-
GÓLFSSON
VEISTU SVARIÐ?