Fréttablaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 13.12.2008, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 13. desember 2008 13 SAMFÉLAGSMÁL Áhöfnin á Þerney hefur gefið Mæðrastyrksnefnd ferðasjóð sinn sem nemur einni milljón króna. „Það voru allir hæstánægðir með þetta,“ segir Kristinn Gestsson skipsstjóri. „Það er náttúrulega alltaf gaman að fara í góða ferð en mönnum fannst þetta bara alveg tilvalið í ljósi kringum- stæðna.“ Í þar síðustu viku sendi Síldarvinnslan á Neskaupsstað Mæðrastyrksnefnd 4,2 tonn af ýsu. „Við höfum orðið þess áskynja að það er fullt af fólki sem á erfitt núna og okkur var hægt um vik að senda fisk til að létta undir með nokkrum,“ segir Gunnþór Ingvarsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar. - jse Mæðrastyrksnefnd styrkt: Fékk fé og fisk KRISTINN GESTSSON Ferðasjóðurinn er farinn, öllum til mikillar ánægju. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Karlmaður á fimmtugs- aldri hefur verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðs- bundið, fyrir að hafa ráðist á sambýliskonu sína og slasað hana. Maðurinn réðst á sambýliskon- una á heimili þeirra á Hellu.Fyrstu atlöguna að henni gerði hann á salerninu, þar sem hann greip um hálsinn á henni, þrengdi að og þrýsti henni ofan í baðkarið. Við það hlaut konan hengingarfar á háls, mar á hægri úlnlið, roða á kinn og klór á háls. Þá sparkaði maðurinn í vinstri fót hennar með þeim afleiðingum að hún varð hölt og vinstri hnéskel aum og marin. - jss Réðst á sambýliskonu sína: Í hengingartaki ofan í baðkar LÚXEMBORG, AP Þjóðþing stórher- togadæmisins Lúxemborgar hefur ákveðið að svipta stórher- togann hluta af valdi sínu, eftir að hinn rammkaþólski þjóðhöfðingi neitaði að staðfesta lög sem þingið hafði afgreitt um lögleið- ingu heimildar til líknardrápa. Þingið hafði samþykkt frum- varpið með 56 atkvæðum gegn engu og skoðanakannanir meðal almennings sýna drjúgan meirihlutastuðning við það. Nú hefur þingið sveigt túlkun stjórnarskrárinnar þannig að framvegis þurfi þjóðhöfðinginn ekki að undirrita lög til að þau geti tekið gildi. Lög um líknardráp hafa þegar verið sett í Hollandi og Belgíu. - aa Neitaði að staðfesta lög: Völd stórher- togans skert STÓRHERTOGAHJÓNIN Hinrik og Teresa af Lúxemborg í heimsókn hjá sænsku konungshjónunum. NORDICPHOTOS/AFP Minni hrefnukvóti Norska sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út kvóta fyrir hvalveiðivertíð- ina 2009, en hann kveður á um 16 prósentum færri hrefnur en heimilt var að veiða í ár, 885 dýr í stað 1.052. 750 dýr má veiða upp með ströndinni og við Svalbarða og 135 við Jan Mayen. Á síðustu árum hefur ekki verið veitt að fullu upp í útgefinn kvóta. NOREGUR SVEITARSTJÓRNIR Halldór Halldórs- son, bæjarstjóri á Ísafirði, vill að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu- neytið endurskoði ákvörðun um að heimila stofnun lögbýlis á jörðunum Kjós og Leiru í Jökul- fjörðum. Ráðuneytið taldi sig ekki hafa fengið umsögn Ísafjarðarbæj- ar um málið. Bæjarstjórinn spyr hvort ráðuneytið líti svo á að neikvætt svar bæjarins til jarðeigandans sem fylgdi umsókn hans til ráðuneytisins hafi ekki verið umsögn og hvort ráðuneyt- inu hafi ekki verið kunnugt um afstöðu bæjarins. Og hvort þá komi ekki til greina að endurskoða heimildina fyrir lögbýlinu. - gar Bæjarstjóri skrifar ráðuneyti: Afstaða lá fyrir vegna lögbýlis SJÁVARÚTVEGUR Grindavíkurbær fær hæstu upphæðina í úthlutun samgönguráðuneytisins vegna tímabundins samdráttar í þorsk- kvóta, 35 milljónir króna. Alls var úthlutað 250 milljónum króna og var sett 35 milljóna króna hámark á úthlutun. Þetta er annað árið í röð sem úthlutað er vegna niðurskurðar- ins. Nú er miðað við minnkun afla- marks líkt og það var 1. septemb- er árið 2007, en ekki meðaltal úthlutaðs aflamarks nokkurra síð- ustu ára eins og var í fyrra. 200 milljónir voru ætlaðar til að mæta þessum þætti. Talið er að með því sé betur mætt áhrifum af niður- skurði í aflamarki þorsks í hverju sveitarfélagi þar sem skoðuð er staða aflamarks við upphaf þess tíma er niðurskurðurinn tók gildi. Þrjú sveitarfélög fá yfir 20 milljónir króna úthlutað; Vest- mannaeyjabær og Ísafjörður með rúmar 24 milljónir króna og Snæ- fellsbær með tæpar 24 milljónir. Dalvíkurbyggð fær tæpar 16 millj- ónir, Fjallabyggð rúmar 13, Horna- fjörður tæpar 12 og Höfðahreppur tæpar 11 milljónir. Framlaginu er ætlað að koma til móts við tekjumissi sveitarfélaga þar sem samdráttur verður í atvinnu vegna minni þorskkvóta. Nú er sérstaklega varið 50 millj- ónum til að mæta minni lönduðum afla milli fiskveiðiáranna 2006/7 og 2007/8. - kóp 250 milljónum úthlutað vegna samdráttar í þorskkvóta: 35 milljónir til Grindavíkur GRINDAVÍK Hæsta úthlutun vegna tímabundins samdráttar þorskkvóta, 35 milljónir króna, fer til Grindavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA fyrir Stór og lítil heimilistæki, símtæki og ljós í miklu úrvali. Sjáið jólatilboðin á www.sminor.is Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Blandari MMB 2000 600 W. Hægt að mylja ísmola. Bikar úr gleri. Tekur 1,75 lítra. Jólaverð: 10.900 kr. stgr. Matvinnsluvél MK 55100 800 W. 3,8 lítra skál. Með 1,5 lítra blandara. Jólaverð: 13.900 kr. stgr. Töfrasproti MQ 5B100 280 W. Hljóðlátur og þægilegur í notkun. Jólaverð: 4.600 kr. stgr. Ryksuga VS 01E1800 1800 W. Virkilega þrífandi hrífandi. Jólaverð: 15.900 kr. stgr. iittala pottar og pönnur á 15% afslætti til jóla. Eru úr 18/10 ryðfríu stáli, hafa margfaldan botn og mikla hitaleiðni. Ganga á öll helluborð. 114.900 129.900 Þvottavél WM 12A162DN Tekur 5 kg. 1200 sn./mín. Orkuflokkur A. Jólaverð: kr. stgr. Þurrkari WT 44E102DN Tekur 7 kg. Gufuþétting, enginn barki. Jólaverð: kr. stgr. 86.900 Espressó-kaffivél TK 52002 Alsjálfvirk kaffivél sem malar baunir og býr til ýmsa kaffidrykki. Jólaverð: kr. stgr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.