Fréttablaðið - 13.12.2008, Qupperneq 28
13. desember 2008 LAUGARDAGUR
UMRÆÐAN
Guðrún D. Guð-
mundsdóttir skrifar
um kynbundið of-
beldi
Nýlega var haldið 16 daga átak gegn
kynbundu ofbeldi í 18.
sinn. Með átakinu
hefur frá 1991 verið
unnið að því að draga
kynbundið ofbeldi fram í dags-
ljósið sem mannréttindabrot en
samtök um allan heim nýta það
til að krefjast aðstoðar og stuðn-
ings til handa fórnarlömbum
ofbeldis, til að styrkja forvarna-
starf og þrýsta á um breytingar á
löggjöf til að bæta réttarstöðu
þolenda. Átakið hefur einnig
beint sjónum að því að alþjóðleg-
um mannréttindaregl-
um sé beitt til að vinna
gegn kynbundnu
ofbeldi sem mannrétt-
indabroti, heilbrigðis-
vandamáli og ógn við
mannfrelsi og frið um
allan heim.
Margt hefur áunnist
undanfarin ár í baráttu
gegn kynbundnu
ofbeldi á Íslandi.
Stjórnvöld hafa nýlega
gert ítarlega aðgerðaá-
ætlun gegn ofbeldi á heimilum og
kynferðisofbeldi, fært hegning-
arlög til betra horfs og aðgerðaá-
ætlun gegn mansali er í smíðum.
Þá hafa Stígamót, Kvennaat-
hvarfið og Neyðarmóttaka vegna
nauðgana aðstoðað þúsundir
kvenna sem beittar hafa verið
kynbundnu ofbeldi með fulltingi
hins opinbera og
sveitarfélaganna.
Íslenska þjóðin stendur nú
frammi fyrir því að þurfa að for-
gangsraða og skera niður á mörg-
um sviðum. Brýnt er að fyrirhug-
aður niðurskurður bitni ekki á
aðgerðum gegn kynbundnu
ofbeldi og aðstoð við fórnarlömb
sem nú þegar er afar þröngur
stakkur skorinn. Rannsóknir
sýna að efnahagsþrengingar geta
leitt til aukins kynbundins ofbeld-
is og þegar leita fleiri konur til
Kvennaathvarfsins en vant er.
Stöndum vörð um mannhelgi
og mannréttindi kvenna á þess-
um örlagatímum. Aðgerðir gegn
kynbundnu ofbeldi og aðstoð við
þolendur er ekki munaður sem
kasta má fyrir róða þegar skór-
inn kreppir.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Mannréttindaskrifstofu Íslands.
UMRÆÐAN
Magnús Þór Haf-
steinsson skrifar um
síldarstofninn
Sýkingin sem komin er upp í íslenska
sumargotssíldarstofn-
inum eru alvarleg tíð-
indi. Þau verstu sem
dunið hafa á þjóðinni
þegar sjávarútvegur er
annars vegar, síðan hin „snjalla“
ríkisstjórn Íhalds og Samfylking-
ar ákvað að fara í þriðjungs skerð-
ingu á þorskveiðum sumarið 2007.
Það er dæmigert að ríkisstjórn-
in bregst við eins og hún er vön
þegar vandi steðjar að. Með lam-
andi aðgerðaleysi og ákvarðana-
fælni. Skipulega var fylgst með
tíðni sníkjudýrsins sem hrjáir
síldina nú á árunum 1991 - 2000.
Eftir það var því hætt. Sennilega
vegna fjárskorts. Hinn ábyrgðar-
lausi Sjálfstæðisflokkur sem
hefur borið ábyrgð á sjávarút-
vegsráðuneytinu og þar með
Hafró, hefur aldrei tímt að setja
nægt fé í hafrannsóknir. Sjálf-
stæðismennirnir sem hafa verið
ráðherrar sjávarútvegsmála frá
árinu 2000 eru dýralæknirinn Árni
Mathiesen og Einar K. Guðfinns-
son. Það er athyglivert að það var
á vakt sjálfs dýralækn-
isins að Hafró hætti að
fylgjast með tíðni
sníkjudýrasmitsins í
síldinni. Tíðni sýkingar
var lág á þessum árum,
eða að meðaltali ein af
hverjum þúsund síldum
í íslenska sumargots-
stofninum. Hún var
miklu hærri í norsk-
íslensku síldinni, eða
allt að 14 prósent árið
1998. Tveimur árum
síðar var hætt að fylgjast með
þessu þó vitað væri úr fjölda
fræðirita að sníkjudýrið er mjög
hættulegt verði það að faraldri.
Nú er ljóst að faraldur er haf-
inn. Á helstu veiðisvæðum íslensku
sumargotssíldarinnar er sýking-
arhlutfallið allt að 30 til 40 prósent
síldarinnar. Við Vestmannaeyjar
og Reykjanes er hlutfallið allt að
60 til 70 prósent. Til viðbótar þessu
þá hefur orðið vart við Ichthyop-
honus í ýsu í Faxaflóa. Ástandið er
skuggalegt. Við getum ekki lengur
veitt síldina til manneldis. Hún
verður að fara í bræðslu til fram-
leiðslu á fiskimjöli og lýsi, ef við
ætlum að vinna úr henni verð-
mæti. Fyrir það fæst miklu minna
fé en ef síldin hefði verið flökuð
og fryst. Við þetta bætast svo
fréttir af því að sníkjudýrasmit
hafi fundist í ýsu í Faxaflóa. Það
gerir málið enn verra. Hvaða áhrif
getur svona sníkjudýrasmit haft á
markaðsmál og sölu á ýsu erlend-
is? Lítið hefur verið aðhafst nema
helst að senda út rannsóknaskip til
að skoða málið. Niðurstöður þaðan
liggja fyrir í þeim mæli að taka
ber afstöðu.
Eina rökrétta ákvörðunin er að
stórauka síldveiðarnar. Það á að
moka síldinni upp NÚNA og setja
hana í bræðslu. Ekki síst af þeim
svæðum þar sem tíðni smitsins er
hæst. Þannig má bjarga verðmæt-
um áður en síldin drepst og hverf-
ur. Þannig yrðu teknir úr umferð
fiskar sem gætu borið smit áfram
innan síldarinnar. Einnig í aðra
fiskistofna svo sem ýsu og flat-
fiska og þannig valdið ófyrirsjá-
anlegu tjóni.
Hrygningarstofn síldarinnar er
talinn vera um 650.000 tonn. Heild-
arkvótinn er 150.000 tonn. Sjávar-
útvegsráðherra á strax að auka
aflaheimildir um 250.000 tonn hið
minnsta. Þannig yrði stofninn
grisjaður og líkur auknar á því að
faraldurinn fjari út. Hátt verð
fæst fyrir fiskimjöl og lýsi nú um
stundir. Þjóðarbúið vantar sárlega
gjaldeyri. Að hika er að tapa.
Höfundur er fiskifræðingur og
varaformaður Frjálslynda
flokksins.
MAGNÚS ÞÓR
HAFSTEINSSON
Helsjúkur hæringur
GUÐRÚN D.
GUÐMUNDSDÓTTIR
Mannréttindi kvenna ekki munaður
Eymundsson
mælir með
UPPLESTRI Í
VERSLUN OKKAR
SUÐUR – KRINGLU
Kl. 14:00 Gerður Kristný les og áritar bók
sína Garðurinn.
Kl. 15:00 Gunnar Theodór Eggertsson les
og áritar bók sína Steindýrin.
Kl. 16:00 Kristín Helga Gunnarsdóttir og
Halldór Baldursson mæta með Fíusól og
árita bók sína Fíasól er fl ottust.
Ráðg jafarstofa Hvatar
Hvöt, félag sjálstæðiskvenna í Reykjavík, hefur safnað saman fagaðilum og sérfræðingum úr sínum
röðum, sem eru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum við að leiðbeina fólki vegna ástandsins sem
skapast hefur.
Fagaðilar og sérfræðingar veita ráðgjöf um:
Velferðarmál Fjármál heimila
Almannatryggingar Félagsmál
Skattamál Sálræna ráðgjöf
Atvinnuleysistryggingar Húsnæðislán
Einnig verða úrræði ríkisstjórnarinnar kynnt og hvernig almenningur getur nýtt sér þau.
Ráðgjafarstofan fékk góðar viðtökur um síðustu helgi og því hefur verið
ákveðið að hafa opið aftur á morgun laugardaginn 13. desember. Opið
hús frá kl. 13-16 að Skúlagötu 51.
Free consultancy due to the economic situation. Open from 13-16
on December 13th Skúlagata 51. A Polish speaking person will be
at the premises from 13-16.
Nánari upplýsingar um ráðgjafarstofuna og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins
má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700.
Alhliða ráðgjöf fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Allir velkomnir!