Fréttablaðið - 13.12.2008, Síða 85

Fréttablaðið - 13.12.2008, Síða 85
LAUGARDAGUR 13. desember 2008 77 Leikstjórinn Oliver Stone er með enn eina forsetamyndina í smíðum. Í þetta sinn hefur Hugo Chavez, forseti Venesúela, orðið fyrir valinu en um heimildarmynd er að ræða sem verður tilbúin á næsta ári. Vinna við myndina hefur staðið yfir í sex mánuði. „Hún fjallar um Chavez og byltinguna í Suður- Ameríku,“ sagði Stone. Myndin segir meðal annars frá andstöð- unni sem Chavez hefur orðið fyrir í heimalandi sínu og erlendis, sérstaklega frá Bandaríkjastjórn. Á meðal annarra forseta sem Stone hefur fjallað um í gegnum tíðina eru hinir bandarísku John F. Kennedy, Richard Nixon og George W. Bush. Gerir mynd um Chavez OLIVER STONE Enn ein forsetamyndin er í smíðum hjá leikstjóranum. MICHAEL JACKSON Fyrrum konungur poppsins setur frægan glanshanska sinn á uppboð í apríl. Frægur glanshanski popparans Michael Jackson verður settur á uppboð í apríl á næsta ári. Jackson birtist fyrst með hanskann árið 1983 í myndbandi sínu við lagið Billie Jean. Eftir það fór í gang tískubylgja sem ekki sér fyrir endann á. Á uppboðinu mun hinn fimmtugi Jackson einnig bjóða upp stórt hlið að Neverland-búgarði sínum auk rúmlega tvö þúsund persónu- legra muna. Hluti ágóðans rennur til MusiCares, samtaka sem hjálpa tónlistarmönnum sem eiga um sárt að binda. Sjálfur hefur Jackson átt við fjárhagsvanda að etja og vonast til að uppboðið ráði einhverja bót á honum. Glanshanski á uppboð BON JOVI Þénuðu mest allra á þessu ári, eða rúmar 210 milljónir dollara. Hljómsveitin Bon Jovi frá New Jersey græddi mest allra flytjenda á tónleikaferð sinni á þessu ári. Skaut hún þekktum nöfnum á borð við Bruce Spring- steen, Madonnu og The Police öllum ref fyrir rass. Bon Jovi þénaði rúmlega 210 milljónir dollara á Lost Highway- tónleikaferð sinni um Norður- Ameríku og Evrópu. Springsteen var í öðru sæti með tæpar 205 milljónir og Madonna varð númer þrjú með rúmar 160 milljónir. Aðrir sem komust á topp tíu- listann voru Celine Dion, Kenny Chesney, Neil Diamond, Spice Girls, The Eagles og Rascal Flatts. Bon Jovi þénaði mest Stríðsáraþema var í opnunarteiti hárgreiðslustofunnar, leikhússins og bíósins Barber Theater í gær- kvöldi. Gestir mættu í klæðnaði frá stríðsárunum og skemmtu sér langt fram á nótt. Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, og kona hans, Svanhvít, þeyttu skífum og nýtt stúlknaband með leikkonuna Lilju Nótt Þórar- insdóttur úr Reykjavík Rotterdam innanborðs spilaði fyrir dansi. Dj Lazer, öðru nafni Hairdoctor, skemmti gestum einnig með skífu- skanki. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu reka Anna Sigríður Pálsdóttir og Aron Bergmann Magnússon þennan nýja stað sem á eftir að setja skemmtilegan svip á miðbæjarflóruna. Aron er sann- færður um að staðurinn eigi eftir að njóta vinsælda. „Fólk er farið að fara út í svona minni hluti. Þarna er meiri nærvera við fólkið í staðinn fyrir þessi stóru bíó og leikhús. Ég held að þetta sé skemmtileg og kósí stemning í skammdeginu,“ segir Aron en Barber Theater er til húsa að Hverfisgötu 37 þar sem hár- greiðslustofan Gel var áður. Á meðal væntanlegra sýninga í leikhúsinu er einleikur sem Lilja Nótt Þórarinsdóttir er með í undir- búningi. Bíóið tekur um þrjátíu manns og þar verða aðallega sýndar gamlar og áhugaverðar myndir. „Við ætlum að sýna Chaplin, Har- old Lloyd og áróðursmyndir frá Bandaríkjunum. Þetta eru þær myndir sem við erum búin að hafa upp á og líka gamlar hryllings- myndir,“ segir Aron. „Fólk getur borgað sig inn til að sjá myndir í framtíðinni. Við erum með póst- lista og þeir sem koma í klippingu og eiga leið framhjá setja sig á listann og við sendum út hvenær sýningar verða og annað.“ - fb Stríðsáraþema í opnunarteiti ARON BERGMANN MAGNÚSSON Aron Bergmann Magnússon og Anna Sigríður Pálsdóttir reka staðinn Barber Theater á Hverfisgötunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.