Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
20. desember 2008 — 348. tölublað — 8. árgangur
dagar til jóla4
Opið til 22
EFNAHAGSMÁL Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn (AGS) segir fram-
kvæmdir tengdar áliðnaðinum
vera upphafið að ofþenslu íslensks
efnahagslífs. Þetta kemur fram í
skýrslu sjóðsins um Ísland.
Þar segir: „Hin langvinna þensla
hagkerfisins, sem fjárfestingar í
áliðnaði hrutu af stað og var við-
haldið með snaraukinni einka-
neyslu, og greiður aðgangur að
fjármagni ýtti undir, ól af sér ójafn-
vægi í þjóðarbúskap og gerði fjár-
málakerfið berskjaldað fyrir
utanaðkomandi áhrifum.“
„Já, þarna segir að framkvæmd-
ir tengdar álverum hafi komið
ofþenslunni af stað, ýtt þessum
bolta sem síðan rúllar af stað. Ég
held þó að þeir telji fleiri þætti
spila þar inn í. En jú, tímasetning-
arnar á framkvæmdum voru
þannig að allt hjálpast að,“ segir
Gunnar Haraldsson, forstöðumað-
ur Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands.
Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum
iðnaðarráðherra, telur þetta mikla
einföldun. „Auðvitað er það þannig
að hér voru mikil umsvif í sam-
bandi við stóriðjuframkvæmdir.
Samkvæmt áætlunum ríkisstjórn-
arinnar átti ekki að fara í fram-
kvæmdir fyrir austan og vestan á
sama tíma, eins og varð, en við það
varð ekki ráðið.“
Það hafi einnig haft mikil áhrif
þegar bankarnir komu inn á hús-
næðismarkaðinn og jöklabréf upp
á hundruð milljarða. „En ein af
ástæðum þenslunnar er að sjálf-
sögðu sú mikla uppbygging sem
átti sér stað. En hins vegar þá
getum við sagt í dag að eins gott er
að af þessum framkvæmdum, sem
skapa verðmæti og þjóðinni gjald-
eyri, hafi orðið.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, segir umsögn AGS
athyglisverða. „Þetta er það sem
við vöruðum við á sínum tíma.
Stórvirkjana- og stóriðjufjárfest-
ingarnar voru frumorsakavaldur
þenslunnar. Þær settu verðbólgu-
skrúfuna af stað og leiddu af sér
vaxtahækkun. Því miður er allt það
versta sem varað var við að rætast,
ekki síst þegar horft er til lækk-
andi álverðs og orkusölu. Öllu var
veðjað á álið.“ kolbeinn@frettabladid.is
AGS segir virkjanir
orsök ofþenslunnar
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir virkjanaframkvæmdir vera upphaf þenslu-
tímans á Íslandi. Fyrrverandi iðnaðarráðherra segir þetta vera mikla einföldun.
ÉL VESTAN TIL Í FYRSTU Í dag
verður yfirleitt hæg breytileg átt en
þó norðaustan 5-10 á Vestfjörðum
og við Breiðafjörð. Víða él á vestur-
helmingi landins annars þurrt og
bjart með köflum. Áfram frost.
VEÐUR 4
-4
-6
-8
-5
1
UTANRÍKISMÁL Benedikt XVI. páfi
óskar íslenskum stjórnmálamönn-
um „visku og framsýni“ við að ráða
fram úr fjármálakreppunni. Páfi
lét þessi orð falla er Elín Flygen-
ring, sem nýlega tók við sem fasta-
fulltrúi Íslands við Evrópuráðið í
Strassborg, afhenti trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra Íslands gagn-
vart Páfagarði á fimmtudag.
Páfi sagðist þess fullviss að
íslenska þjóðin, sem væri þekkt
fyrir seiglu sína og hugrekki, muni
standa af sér þessa erfiðleikatíma
og öðlist efnahagslegan stöðug-
leika á ný. Til þess sé þörf á skyn-
sömum og ábyrgum ákvörðunum,
sem byggi á siðrænum gildum.
Benedikt XVI. lagði áherslu á, að
Páfagarður fylgdist áhyggjufullur
með þeim þrautum sem fólk og
heilu þjóðríkin gengju nú í gegnum
af völdum alþjóðlegu fjármála-
kreppunnar. Hann fylgdist vel með
þeim tillögum sem fram kæmu um
leiðir til að koma á stöðugleika á ný
í fjármálakerfi bæði einstakra
landa og alþjóðlega.
„Ég bið fyrir því að þeir sem
bera ábyrgð á pólitískum og efna-
hagslegum ákvörðunum láti visku,
framsýni og almannaheill ráða
för,“ sagði páfi. - aa
Benedikt XVI páfi lýsti yfir áhyggjum sínum vegna kreppunnar:
Páfi biður fyrir Íslendingum
Mein name ist Derrick
Horst Tappert lék Oberinspektor Stephan Derrick,
lögreglumanninn réttvísa sem tryggði glæpamönnum
í München makleg málagjöld, í nærri aldarfjórðung.38
VANTAR VERK-
SMIÐJUR Á ÍSLANDI
Steinunn Sigurðardóttir
fatahönnuður talar um hand-
verk, verksmiðjuvit og vísanir
í fortíðina.
VIÐTAL 32
heimili&hönnunLAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2008
● HÖNNUNHöggmyndir og húsakynni úr ís
● INNLITÆvintýraland Dóru Kjartansdóttur
● GUÐRÍÐARKIRKJABlátt áfram töfrandi
Gengið frá ð
Á ils.is getur þú:
FYLGIR Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
EFNAHAGSMÁL Eignir Landsbanka
hafa rýrnað um helming, miðað
við áætlun skilanefndar gamla
bankans.
Skilanefndin vill freista þess að
fá um 1.000 milljarða fyrir eignir
bankans eftir nokkur ár. Að auki
komu 1.300 milljarðar frá ríkinu
inn í nýja bankann eftir yfirtöku.
Eignir bankans voru hins vegar
metnar á 4.500 milljarða fyrir
hrun bankanna. Eignirnar voru að
mestu útistandandi lán.
- kóþ, ikh / sjá síðu 4
Formaður skilanefndar:
Landsbankinn
helmingi minni
LJÓSIN LAÐA Nemendur og starfsfólk Ísaksskóla luku haustönninni með jólaballi í gær. Síðan tók við langþráð frí. Síðasti kennslu-
dagur var í skólum víðast hvar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
MENNING Til stendur að setja upp
sýningu á abstrakt-málverkum í
Feneyjum á næstunni. Málverkin
eru eftir Cholla, hest frá Nevada í
Bandaríkjunum. Þau hafa selst á
hundruð þúsunda króna.
Cholla hóf ferilinn fyrir fjórum
árum þegar eigandi hans var að
mála girðingu. „Hann virtist mjög
áhugasamur um það sem ég var
að gera. Maðurinn stakk upp á því
að ég léti hann hafa pensil,“ segir
Renee Chambers. Síðan hefur
Cholla ekki hætt að mála.
Talsmaður Guidecca-listasafns-
ins í Feneyjum segist fyrst hafa
séð málverk eftir Cholla í vor, og
hafi þá alls ekki áttað sig á að það
væri eftir hest. - sh
Hross sýnir verk í Feneyjum:
Abstrakt-verk
hests slá í gegn
LISTAHESTUR Cholla málar á striga sem
stillt er upp á trönur í girðingu hans.
Hann unir sér vel við sköpunina.
FRÉTTABLAÐIÐ / AP