Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 8
8 20. desember 2008 LAUGARDAGUR
MENNTUN Háskólaráð fer fram á aukafjár-
veitingu til Háskóla Íslands (HÍ) vegna
niðurskurðar á fjárveitingu til skólans og
aukinnar ásóknar nemenda.
Í ályktun ráðsins frá því í fyrradag segir
að HÍ hafi brugðist við kalli stjórnvalda um
að opna dyr sínar fyrir umsóknum um nám
á vormisseri 2009 til þess að bregðast við
auknu atvinnuleysi sem hlýst af fjármála-
kreppunni. HÍ rýmkaði umsóknarfrestinn,
opnaði fyrir umsóknir í fögum þar sem
venjulega er ekki bætt við nemendum á
miðju skólaári og nú hafa alls 1.630 umsókn-
ir borist. Á sama tíma hefur fjárveiting
ríkisins til skólans verið skorin niður um
tæpan milljarð sem eru tíu prósent af
áætlaðri fjárveitingu.
„Við erum í verulega alvarlegri klemmu,“
segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskól-
ans. „Annars vegar stöndum við frammi
fyrir því að þurfa hugsanlega að segja nei
við fólk sem er atvinnulaust og gerir
verulegar væntingar til þess að komast í
háskólanám eða þá að segja já og taka þá
áhættu að það bitni á gæðum námsins.“
Spurð hvort HÍ geti leyft sér að minnka
kröfur sínar um gæði segir hún, „það kemur
hreinlega ekki til greina“.
Dregist hefur að svara umsækjendum
vegna þessa en Kristín segist vongóð um að
fjárlagafrumvarp liggi fyrir á mánudag en
þá kemur háskólaráð saman. Hún segist
ekki vilja segja til um það hversu há
fjárveitingin þurfi að vera eða hversu
mörgum HÍ geti tekið við fáist aukafjárveit-
ingin ekki. - jse
Háskólaráð fer fram á aukafjárveitingu til að standa við samfélagslega ábyrgð:
Háskólinn í verulega alvarlegri klemmu
KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR Rektorinn stendur frammi fyrir
því, við þau kjör sem háskólinn býr nú við, að þurfa
annaðhvort að hafna vongóðum umsækjendum eða
eiga á hættu að gæði námsins minnki.
BANDARÍKIN, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti og ríkisstjórn
hans hafa ákveðið að veita
Detroit-bílarisunum þremur, GM,
Chrysler og Forda, alls 17,4 millj-
arða dala í skammtíma-neyðar-
lán, gegn því að fyrirtækin og
starfsfólk þeirra taki á sig
umtalsverðar fórnir.
„Að leyfa bílafyrirtækjunum
að fara í þrot væri ekki ábyrgt,“
sagði Bush forseti í ávarpi um
málið í gær. Gjaldþrot þessara
stóru fyrirtækja, sem störf millj-
óna manna eru háð, myndi að
sögn Bush veita „vinnandi Banda-
ríkjamönnum stærra högg en
hægt er að sætta sig við“.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar
sagði að GM og Chrysler, sem
standa verst, yrði veittur aðgang-
ur að 13,4 milljörðum dala strax
núna í desember og í janúar. GM
fær 9,4 milljarða og Chrysler
fjóra milljarða. Forsvarsmenn
Ford hafa sagt fyrirtækið geta
komist af án tafarlausra neyðar-
lána, en fari hin tvö í þrot gæti
það dregið Ford með í fallinu.
Bush sagði björgunaraðgerð-
irnar útheimta fórnir af hálfu fyr-
irtækjanna sem væri í samræmi
við það sem útlistað var í frum-
varpinu um slíkar aðgerðir sem
strandaði í öldungadeild þingsins
fyrir viku. Fyrirtækjunum sem
þiggja fjárhagsaðstoðina er gert
að sýna fram á það innan þriggja
mánaða að þau geti komist út úr
fjárhagskröggunum upp á eigin
spýtur. Ef slíkar áætlanir liggja
ekki fyrir áður en marsmánuður
er úti mun fyrirtækjunum vera
gert að endurgreiða neyðarlánin,
sem þau myndu augljóslega eiga
mjög erfitt með að gera.
„Tíminn til að taka harkalegar
ákvarðanir til að koma rekstrin-
um á réttan kjöl er núna; annars
er eini valkosturinn gjaldþrot,“
sagði Bush. „Bílafyrirtækin og
verkalýðsfélögin verða að skilja
hvað er í húfi og taka erfiðar
ákvarðanir sem eru nauðsynleg-
ar til umbóta.“
Aðgerðapakki Bush-stjórnar-
innar er þannig úr garði gerður
að hann leysir úr brýnasta
skammtímavanda bandarísku
bílaframleiðendanna, en skilur
langtímalausn málsins eftir til
úrlausnar fyrir arftakann. Bar-
ack Obama og ný ríkisstjórn hans
tekur við völdum 20. janúar.
Vegna eftirspurnarhruns eru
bílaframleiðendur víðar um heim
í kröggum. Á yfirstandandi fjár-
hagsári mun Toyota skila halla af
rekstri bílaframleiðslu sinnar, í
fyrsta sinn síðan fyrirtækið hóf
að birta slíkar tölur árið 1941.
audunn@frettabladid.is
Bílarisar fá neyðarlán
sem krefjast fórna
Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að veita bandarísku bílaframleiðendunum sem
verst standa, GM og Chrysler, milljarða dala í neyðarlán fram í mars gegn því
að þau grípi til róttækra ráðstafana til að koma rekstrinum á réttan kjöl.
MIKIÐ Í HÚFI Detroit-búi gengur hjá veggjakrots-ópi eftir hjálp. Milljónir starfa kynnu
að tapast vestra verði bílarisarnir GM, Chrysler og Ford gjaldþrota. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1. Hvað eru heildarkröfurnar
háar í þrotabú Samsonar?
2. Hvar er dýrast að kaupa
jólabækurnar?
3. Hver var dæmdur fyrir að
ráðast á dómara?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 90
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur til að greiða 200 þúsund
króna sekt í ríkissjóð, eða sæta
14 daga fangelsi, fyrir illa með-
ferð á hrossi. Atvikið átti sér stað
á hlaði við bæinn Vatnsenda við
Elliðavatn í Kópavogi, í apríl
2007.
Upphaf málsins var að Gunnar
Örn Guðmundsson, héraðsdýra-
læknir í Gullbringu- og Kjósar-
umdæmis, kærði athæfið eftir að
Kompás sýndi myndir af mannin-
um slá hrossið ítrekað með píski
og höndum af afli í höfuð og í
hægri síðu. Hann sparkaði svo
með hægra hné fast í kvið hross-
ins.
Lögreglustjóri höfuðborgar-
svæðisins tilkynnti nokkru síðar
að málið hefði verið fellt niður.
Því vildi héraðsdýralæknirinn
ekki una og krafðist rökstuðn-
ings fyrir niðurfellingunni. Hann
skaut síðan ákvörðun lögreglu-
stjóra til ríkissaksóknara, sem
lagði fyrir lögreglu að taka málið
til áframhaldandi rannsóknar.
Dýralæknir, sem var dóm-
kvaddur matsmaður, sagði svo,
eftir að hafa skoðað myndband af
atvikinu, að þessi hegðun hesta-
mannsins ætti ekkert skylt við
tamningu. Niðurstaða hans var
því að maðurinn hefði farið illa
með hestinn, hrekkt hann og
meitt. - jss
MYNDBANDIÐ Meðferð mannsins á
hestinum náðist á myndband.
Karlmaður dæmdur í 200 þúsund króna sekt:
Fékk sekt fyrir illa
meðferð á hrossi
A
T
A
R
N
A
Sverrir er kominn á geisladisk
Yndislega heillandi geisladiskur með grípandi góðum
lögum og bráðskemmtilegum smellnum textum eftir
Sverri Norland. Kassagítarinn og munnharpan góða eru
vitaskuld á sínum stað, og auk þess þriggja manna
úrvalshljómsveit og snjall bakraddaflokkur. Nú færðu á
einum diski lögin, sem Sverrir hefur undanfarið verið að
flytja út um allt við frábærar undirtektir, svo sem
Heimsins elsta ungfrú, Manni/kona, Eplasöngur, Það var
til orð, Þarf þitt þel og Hol djúpsvört nótt. Diskur handa
öllum, sem hafa gaman af vandaðri tónlist og unna góðri
textagerð á móðurmálinu eina og sanna.
Handa allri fjölskyldunni og öllum vinum nær og fjær.
Fæst í öllum helstu plötu- og bókaverslunum.
Auglýsingasími
– Mest lesið
VEISTU SVARIÐ?