Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 86
58 20. desember 2008 LAUGARDAGUR
Hvenær varstu hamingjusamast-
ur?
Ég fæ hamingjukast á hverjum
degi yfir því að eiga sæmilega
heilbrigt líf, umvafinn skemmti-
legum viðfangsefnum og helling
af ást.
Ef þú værir ekki tónlistarmaður
hvað myndirðu þá vera?
Ég myndi vilja vera sérfræðing-
ur í atferli katta.
Hvað er það dýrasta sem þú hefur
nokkurn tímann keypt þér?
Að gefa út plötu er óheyrilega
dýrt og stendur engan veginn
undir sér. En ofboðslega gaman
samt!
Hvað er það versta sem nokkur
hefur sagt við þig?
Hæ, sæta!
Ef þú byggir ekki á Seyðisfirði
hvar myndirðu vilja búa?
Ég flutti frá Reykjavík austur á
Seyðisfjörð síðastliðið vor og nú
bíð ég spenntur eftir að Norræna
komi og sigli með mig enn lengra
á vit ævintýranna. Ég held það
væri stuð að setjast að í Bergen
smástund. Stoppar ekki ferjan
þar?
Uppáhaldslistamaður allra tíma
og af hverju?
Matt Groening sem gerði full-
orðnum kleift að horfa á teikni-
myndir með börnunum sínum og
hafa gaman af því.
Draumahelgin þín í einni setn-
ingu?
Úti á landi með hlæjandi fólki.
Hvert er versta starf sem þú hefur
nokkurn tíman gegnt?
Ég réði mig einhvern tíma í
næturvinnu á skyndibitastað en
mætti aldrei. Þessi vinna hefði
farið með mig til vítis. Ég er ann-
ars með lítið þol fyrir leiðinlegum
vinnum og hef forðast þær með
ágætum í gegnum árin.
Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörð-
unni?
Það þarf að hafa mikið fyrir því
að ná mér út úr Seyðisfirði þessa
dagana.
Hvers konar tónlist hefur mest
áhrif á þig og hvaða lag hlustar þú
mest á í dag?
Íslensk nýbylgja fyrr og síðar.
Annars er ég búinn að vera með
Belsen Was a Gas með Sex Pistols
á heilanum í margar vikur og
áhrifin leyna sér ekki.
Ef þú ættir tímavél, hvert mynd-
urðu fara og af hverju?
27 ár aftur í tímann og ná fram
hefndum á skæðum prökkurum
sem óðu uppi í Neðra-Breiðholt-
inu á þeim tíma. Ég myndi svo
snúa aftur með sleikjóinn sem
þeir stálu af mér.
Er eitthvað sem heldur fyrir þér
vöku á nóttunni?
Gleði morgundagsins.
Ef þú gætir breytt einhverju í for-
tíð þinni hvað myndi það vera?
Lottótölurnar síðasta laugardag.
Hvenær fékkstu síðast hlátur-
skast?
Í gær þegar Berglind konan mín
var eftirherma.
Áttu þér einhverja leynda nautn?
Ég fer nú ekkert sérstaklega
leynt með mínar nautnir en reyni
samt að bæla niður þær allra
skæðustu. En ég sting til dæmis
öllu steini léttara upp í eyrað á
mér og klóra mér til blóðs á bak-
inu með gaffli svo eitthvað sé
nefnt.
Uppáhaldsbókin þessa stundina?
Heimsljós er rosaleg saga og eltir
mig hvert sem ég fer og svo
fannst mér áhugavert að lesa Alk-
asamfélagið um daginn. Þar er
ekki allt sem sýnist.
Hvaða núlifandi manneskju lítur
þú mest upp til?
Konunnar minnar.
En hvaða núlifandi manneskju
þolirðu ekki?
Ég hunsa alla labbakúta og leið-
indaseggi áður en þeir ganga of
nærri mér. En það er nóg af þeim
þarna úti. Jeminn eini!
Uppáhaldsorðið þitt?
Þremillinn.
Hvaða eitt atriði myndi fullkomna
lífsgæði þín?
Pallbíll.
Hvaða einu lagi verður þú að taka
„cover“ af áður en þú deyrð?
Ég dey ekki sáttur nema ég sé
búinn að koma saman Dire Straits
„cover“ bandi þar sem ég fæ að
vera Knopflerinn, beinstífur með
svitabandið í Money for Nothing.
Hvað verða þín frægu hinstu orð?
Money for Nothing.
Hvað er næst á dagskrá?
Ætli ég verði ekki hérna glamr-
andi á gítarinn þangað til ég læt
renna í jólabaðið.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Svavar Pétur
Eysteinsson
STARFSFERILL Í HNOTSKURN:
Grafískur hönnuður frá því um
aldamót og tónlistarmaður frá
því um fermingu.
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐ-
IST MARKVERÐAST Á ÞVÍ ÁRI?
Ég tók við af Presley árið 1977
■ Á uppleið
Jólaboð
Nú byrjar
gamanið af
fullri alvöru og
má búast við
ómældu partí-
standi næstu
tvær vikur.
Sérrí Ömmulegur drykkur alla hina
mánuði ársins en er einhvern veginn
svo notalega jólalegur.
Veitingastaðurinn Segurmo á
Boston Skemmtilega heiðarlegur
matur, góð stemning og ekkert okur.
Geimverur Kvikmyndin the Day the
Earth Stood Still leiðir huga okkar
frá kreppunni og að alvörumálum
eins og árás á jörðina. Keanu Reeves
er líka fullkominn í hlutverki fámáls
geimbúa.
Síðrokk Hljómsveitir eins og Mogvaí,
Godspeed og Kimono hljóma vel í
eyrum á tímum volæðis og tilvistar-
kreppu.
■ Á niðurleið
Litaðar sokka-
buxur Nóg komið
af flippuðum stelp-
um í allri litadýrð
regnbogans. Leggir
eru einfaldlega
fallegri í svörtu.
Barir Ef maður heldur partí í staðinn
heima hjá sér þá ræður maður tón-
listinni, reyknum og fólkinu. Þurfum
við að ræða þetta eitthvað frekar?
Skræpóttar hettupeysur Grafískir
hönnuðir og krúttflipparar takið til
athugunar að þetta fyrirbæri er svo
2006.
Dýr jólamatur Horfum framhjá
hérum, akurhænum og fasönum um
hátíðarnar og gæðum okkur frekar á
hangikjöti og hamborgarhrygg. Ekki fá
jólaofgnóttarsamviskubit.
Alveg hvít eða alveg svört
málverk Hlutverk listarinnar hlýtur
að vera annað en þessi súrrógasjón
fyrir … ekkert.
Fæ hamingjukast á
hverjum einasta degi
Svavar Pétur Eysteinsson spilar og syngur ásamt Berglindi eiginkonu sinni og fleira góðu fólki í
hljómsveitinni Skakkamanage. Nýja platan þeirra, All Over the Face, hefur fengið afbragðsgóða dóma.
Anna Margrét Björnsson náði í skottið á Svavari á Seyðisfirði og tók hann í þriðju gráðu yfirheyrslu.
Í HLAÐINU Á SEYÐISFIRÐI „Það versta sem sagt hefur verið við mig var: Hæ sæta!“ segir Svavar Pétur í Skakkamanage.
LJÓSMYND / HELGI ÖRN PÉTURSSON
MÆLISTIKAN