Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 84
20. desember 2008 LAUGARDAGUR
1Það er komið að smáköku-bakstrinum og nú á að baka
spesíur fyrir kvöldið. Smjör, egg,
sykur og hveiti hafa verið dregin
fram, er þér nokkuð að vanbúnaði?
a) Nei, ég hefst handa um leið.
b) Jú, það vantar flórsykur, ég
hætti við.
c) Það er útilokað að ná almenni-
legum spesíum. Deigið þarf að
standa í ísskáp áður en það er
hægt að baka. Hætti við
smákökubakstur og kaupi
kökur.
2Rautt er jólaliturinn en hver er jóladrykkurinn í ár?
a) Malt og appelsín, ekki spurn-
ing!
b) Rauðvín, hvort sem er heitt í
glöggi eða við stofuhita.
c) Vatn, ókeypis og hollt.
3Það er aðfangadagur og enn á eftir að pakka inn jólagjöfunum,
hvernig leysir þú úr þeim vanda?
a) Fer út í blómabúð og læt pakka
inn fyrir mig.
b) Virkja skipulögðu nágrannana
til þess að pakka inn með mér.
c) Pakka ekki inn gjöfunum, fel
þær bara inni í skáp fram að
úthlutun gjafa.
4Þú átt ekkert nýtt til að vera í þessi jólin. Hvernig forðastu að
lenda í jólakettinum?
a) Jólaköttur smjólaköttur, verð
bara í því sama og í fyrra.
b) Kaupi mér nýjan fylgihlut, þar
með er jólakötturinn úr
sögunni, og gamla dressið
virkar sem nýtt.
c) Ég held andlitinu fram á
Þorláksmessu, þá missi ég mig
í Sævari Karli og kaupi það
flottasta sem til er.
5Jólaborðið segir mikið um þinn innri mann. Þitt er vanalega:
a) Skreytt á mismunandi hátt ár
hvert.
b) Alltaf eins, til hvers eru
hefðirnar nema til að halda
þær á jólunum.
c) Með diskum, hnífapörum og
glösum.
6Jólalagið sem kemur þér í ekta jólastemningu er:
a) Jólahjól
b) Jóladagarnir þrettán (Á
jóladaginn fyrsta hann Jónas
færði mér…)
c) Heims um ból
7Það er komið að síðustu helgi fyrir jól. Meðal þess sem þú
ætlar að gera er að:
a) Fara með fjölskylduna í
Heiðmörk að höggva jólatré,
föndra og pakka inn gjöfum.
b) Skella mér í partí, fara í
bæinn, tékka á jólatónleikum.
c) Slappa af enda enn fjórir
dagar til jóla.
8Matur er mannsins megin, hvað er á boðstólum um jólin hjá þér
í ár?
a) Það eru enn fjórir dagar til
jóla − óþarfi að ákveða
matseðilinn strax.
b) Sama og í fyrra og hittifyrra
og alla tíð.
c) Íslenskt lambalæri.
9Jólagjafir
a) Eru stórlega ofmetnar
b) Eiga að vera heimatilbúnar
annars er ekkert í þær varið.
c) Er best að viða að sér allan
ársins hring.
10Þorláksmessukvöld er hátíð út af fyrir sig. Hvernig er
dæmigert kvöld hjá þér?
a) Bæjarrölt með einu glögglasi
eða fimm.
b) Reddingar og tiltekt út í eitt.
c) Uppi í sófa eftir rosalegt
skötuát dagsins.
11Uppáhaldsjólasveinninn þinn er?
a) Kertasníkir − hann er svo
séður.
b) Ketkrókur − aldrei svangur.
c) Stúfur − hann er svo mikið krútt.
12Um jólin finnst þér skemmtilegast að…
a) Opna pakkana.
b) Borða matinn.
c) Vera með fjölskyldunni.
13Efst á óskalistanum þínum þessi jól er:
a) Kerti og spil.
b) Nýtt nærfatasett.
c) Að fara ekki á hausinn.
14Jólatréð setur mestan svip sinn á stofuna. Hvernig
verður þitt tré í ár?
a) Ég dreg fram gervitréð sem ég
hef notað í nokkur ár og sé
enga ástæðu til þess að breyta
út af venjunni.
b) Ég kaupi tré og skreyti,
einfaldara verður það ekki.
c) Það er svo mikið rusl sem
fylgir jólatrjám að ég sleppi
þeim yfirleitt.
Jólin hér og jólin þar
Ertu búinn að skipuleggja og undirbúa jólin í þaula með tilheyrandi tilliti til
efnahagsþrenginga. Eða áttu eftir að kaupa allar jólagjafirnar og það er að
renna upp fyrir þér það ljós að tíminn til að gera allar heimatilbúnu gjafirn-
ar er á þrotum. Finndu þinn innri jólamann í þessu jólaprófi.
1. a)2b)1c)3
2. a)2b)3c)1
3. a)3b)2c)1
4. a)2b)1c)3
5. a)3b)2c)1
6. a)1b)3c)2
7. a)2b)3c)1
8. a)3b)2c)1
9. a)1b)2c)3
10. a)3b)1c)2
11. a)3b)1c)2
12. a)1b)3c)2
13. a)1b)2c)3
14. a)2 )3c)1
Elma eyðslukló
56-70: Allt er best í óhófi er þitt
mottó. Þú ert sannarlega jólabarn en
vegna þess hve þú ert óskipulagður/
lögð þá hættir þér til þess að eyða
allt of miklum peningum í jólahald-
ið. Það skilar sér í angist um mán-
aðamótin janúar/febrúar. Til að forð-
ast það ættir þú að taka með þér
peningaseðla í jólagjafakaupin og
neysluna á lokasprettinum.
Halla hefðbundna
37-55: Þú þræðir hinn gullna meðal-
veg í jólahaldinu, ert útsjónarsamur/
söm og heldur tryggð við hefðirnar
án þess að þær séu að sliga þig. Þú
hefur gaman af því að dekra við þig
og leyfir þér það í aðdraganda jóla.
Þú þarft samt ekki að óttast að jólin
setji þig á hausinn því yfirleitt ertu
búin/n að leggja til hliðar fyrir jóla-
eyðslunni.
Nilli nirfill
14-36: Þú ert afar skynsamur/skyn-
söm og eyðir mjög litlu í jólin. Þess
vegna er engin hætta á því að þú
setjir þig á hausinn vegna fjárútláta.
Stundum fer sparsemin þó út í öfgar,
til dæmis þegar þú hættir við að gefa
gjafir, kaupa jólamat eða sú hugsun
hvarflar að þér að halda ekki jólin.
Vertu aðeins afslappaðri og jólin
verða skemmtilegri.
Stig
ÞÚ ERT:
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
Rugltilboð
alla helgina
Dæmi um uppboðsvöru
3.000 kr.
Uppboði
kl. 15:00 í dag
í BYKO Kauptúni!
Taktu þátt í
Komið og ger
ið betri kaup
!