Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 60
„Það skemmir ekki fyrir að vera
trúaður þegar maður teiknar
kirkju, en trúna sem verkfæri
þarf ekki frekar en að vera kenn-
ari til að teikna skóla. Hins vegar
er gaman að teikna kirkju því þá
rifjast upp barnatrúin og maður
setur sig betur inn í helgisiðina,
sem er skemmtilegt, enda kirkjan
hús Guðs og safnaðar hans,“ segir
Þórður Þorvaldsson, arkitekt hjá
Arkþingi, sem ásamt samstarfs-
konu sinni, Guðrúnu Ingvarsdótt-
ur, vann samkeppni um nývígða og
stórfallega Guðríðarkirkju í Graf-
arholti.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég
teikna kirkju. Sköpunargleðin fær
virkilega að njóta sín því formið
er frjálsara og ekki eins fastmótað
og í hefðbundnara húsnæði. Kirkj-
ur nútímans endurspegla samfé-
lagið hverju sinni og eru oft lítið
kirkjulegar í útliti enda orðnar
hálfgerðar menningarmiðstöðvar
með innbyggðum safnaðarheim-
ilum og þurfa að mæta því fjöl-
breytta kirkju- og safnaðarstarfi
sem nútímamaðurinn krefst,“
segir Þórður, sem sótti innblástur
í lífið sjálft; það sem hann fæst við
í daglegu starfi og úr ferðalögum
um heiminn.
„Húsið á sér enga fyrirmynd, en
svo lengi lærir sem lifir og í far-
teskinu situr sitt lítið af hverju sem
sést hér og þar. Guðríðarkirkja
er alveg sjálfstæð fæðing og ein-
stök að tvennu leyti því allt innan-
stokks er íslensk hönnun og smíði,
og í hvorum enda kirkjuskipsins
eru garðar, sem okkur þykja mjög
vel heppnaðir. Annar þeirra er lok-
aður, hátíðlegur altarisgarður, en
með honum fáum við þrívíða alt-
aristöflu þar sem kross stendur í
spegiltjörn í ósnertanlegum, guð-
legum garði undir berum himni.
Andinn er því mjög kirkjuleg-
ur, hátíðlegur og friðsæll,“ segir
Þórður sem fékk hönnuðinn Reyni
Sýrusson til að hanna kirkjubekki
Guðríðarkirkju, en þess má geta
að fyrirtækið GÁ húsgögn tók
að sér að bólstra stóla, grátur og
brúðarstóla.
„Þórður bað mig að teikna stól
inn í kirkjuna og gaf mér fimm
daga til starfans. Ég hellti mér því
út í verkefnið og svaf lítið næstu
daga, en kom þá með tvær tillögur
að stólum sem þeim Þórði og Guð-
rúnu leist vel á og bjó til nákvæma
eftirlíkingu í smækkaðri útgáfu
sem ég mætti með á fund prests
og sóknarnefndar sem snarféllu
fyrir stólnum líka,“ segir Reynir
sem hannar flest sín verk í einveru
undir þýðum ómum hljómlistar.
„Stólarnir eru úr gegnheilu
birki og í kassalaga formi, sem
stenst betur tímans tönn en boga-
dregnar línur.
Þá má festa saman í bekki og í
sama stíl hélt ég áfram að hanna
inn í kirkjuna alla þá lausu hluti
sem þurfti, eins og prédikunar-
stól, skírnarfont, moldunarkassa
og skóflu, sálmabókahillur, sálm-
atöflu og fleiri hluti sem allir eru
með sama handbragði.“ - þlg
Í töfrum húss Guðs
og safnaðar hans
● Nýjasta hús drottins vors er Guðríðarkirkja í Grafarholti. Kirkjan er látlaus og fögur og býr yfir
sérstæðum sjarma með altaristöflu undir berum himni sem sýnir sjónarspil allra veðra. Kirkjan
er íslensk smíð og hugverk frá grunni; hvort sem litið er til smáatriða innanhúss eða utan.
Séra Sigríður Guðmarsdóttir er sóknar-
prestur Guðríðarkirkju.
Birtan í Guðríðarkirkju er blátt áfram
töfrandi og skapar hátíðlega jóla-
stemningu með þessum fallega krans
aðventunnar.
Guðríðarkirkja.
Hér má sjá fjólubláan bjarma altarisgarðsins
lýsa upp veggi Guðríðarkirkju utan frá.
MIRALE
Fákafeni 9
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opið
Sunnudag 10–20
Mánudag 10–22
Þorláksmessu 10–22
Aðfangadag 10–12
www.mirale.is
OPIÐ í dag
frá 10-22
40% afsláttur
af þessum vinsælu
kertastjökum
TILBOÐ
Verið velkomin
í FÁKAFEN 9
( við hliðina á ísbúðinni )
20. DESEMBER 2008 LAUGARDAGUR