Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 48
„Við ákváðum með litlum fyrirvara
að koma í bæinn,“ segir Ásta Jak-
obsdóttir sem rekur verslunina
Völu á Sólheimum. Íbúar Sólheima
í Grímsnesi verða með bás á göngu-
götu Kringlunnar í dag þar sem
verða til sölu munir sem búnir hafa
verið til á öllum vinnustofunum á
Sólheimum og vörur frá Garð-
yrkjustöðinni Sunnu. „Áherslan er
lögð á að vinna með endurunnin
eða náttúruleg efni,“ segir Ásta um
vörurnar sem eru í boði og tekur
sem dæmi bývaxkerti, útikerti,
handgerðar sápur, tréverk, lista-
verk, endurunnar pappírsskálar,
leirverk, vefnað, gulrótamarmel-
aði og jólachutney. Blaðamann
fýsir að vita hvað er í jólachutney-
inu og Ásta útskýrir. „Í því eru
tómatar, laukur, paprika, furuhnet-
ur, krydd og rúsínur,“ segir hún og
mælir með því á jólasteikina.
Síðustu tvö ár hefur jólamarkað-
ur Sólheima einungis verið haldinn
heimavið og Ásta segir bæinn hafa
breyst í nokkurs konar jólaþorp.
Núna ákváðu íbúarnir hins vegar
að skella sér í bæinn vegna fjölda
fyrirspurna.
Söluhagnaðurinn rennur til upp-
byggingar á vinnustofunum og til
samfélagsins á Sólheimum en þetta
er síðasti dagurinn sem básinn
stendur í Kringlunni.
solveig@frettabladid.is
Sólheimar koma í bæinn
Íbúar Sólheima í Grímsnesi verða með jólamarkað á göngugötu Kringlunnar í dag. Þar verður hægt að
kaupa vörur á borð við gulrótamarmelaði, bývaxkerti og handgerðar sápur.
Lögð er áhersla á náttúruleg og endurunnin efni á sölubás Sólheima í Kringlunni.
RÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Bývaxkerti, gulrótamarmelaði og ýmsir
listmunir standa til boða.
JÓLABALL verður haldið í Jólaþorpinu í Hafnarfirði
á morgun, sunnudaginn 21.desember, klukkan 15.
Söngvaborg mætir á ballið sem verður haldið utandyra.