Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 104
76 20. desember 2008 LAUGARDAGUR
Söngkona Black Eyed Piece,
Fergie, hyggst ganga í það
heilaga með leikaranum Josh
Duhamel í næsta mánuði, að sögn
vefsíðunnar Access Hollywood.
Parið trúlofaði sig í desember í
fyrra og hefur nú ákveðið
dagsetningu fyrir stóra daginn.
Fergie hefur rætt um hversu
mikið hana langi að eignast
fjölskyldu og nú virðist stóri
dagurinn innan seilingar.
Access Hollywood segist hafa
heimildir fyrir því að vígslan fari
fram í Suður-Kaliforníu helgina
9.-11. janúar.
Fergie í
hjónaband
Bandaríska leikkonan
með skandinavíska
eftirnafnið, Scarlett
Johansson, hefur
útilokað barneignir í
nánustu framtíð.
Hún segist einfald-
lega ekki hafa tíma
til þess. Scarlett og
leikarinn Ryan
Reynolds gengu í
það heilaga í
september á þessu
ári en börn virðast
ekki á næsta leiti.
„Ég er 24 ára
gömul, ég á enn
mikið eftir ógert
og hef nægan tíma
til að spá í börn,“
sagði Scarlett í
samtali við
Entertainment Tonight. Scarlett
útilokar hins vegar ekki að verða
mamma einn daginn. „Einhvern
tímann, en ég er ekki tilbúin fyrir
það núna.“
Engin börn
hjá Scarlett
Rafræna rokksveitin Ratatat frá
Bandaríkjunum spilar á Broad-
way í kvöld á tónleikum sem eru
skipulagðir af Jóni Jónssyni ehf.,
sem heldur upp á eins árs
afmælið sitt um þessar mundir.
Ratatat hefur áður spilað hér á
landi á Iceland Airwaves-
hátíðinni við góðar undirtektir.
Hróður sveitarinnar hefur vaxið
jafnt og þétt undanfarin ár og
hefur hún meðal annars spilað
með Björk Guðmundsdóttur.
FM Belfast og Sexy Lazer koma
einnig fram á tónleikunum, sem
hefjast klukkan 23.30.
Rafrænt
rokk og ról
RATATAT Spilar á Broadway í kvöld.
Slúðurblöð væru fátækleg ef
Parisar Hilton og hennar yfirlýs-
inga nyti ekki við. Hinn 27 ára
hótelerfingi hefur nú upplýst
heimsbyggðina um að hún hafi
alltaf vitað að hún yrði fræg
ljóska. „Ég var elsta barnabarnið
og amma mín var alveg viss um
að ég yrði næsta Marilyn Monroe
eða Grace Kelly. Hún hélt þessu
statt og stöðugt fram alla mína
æsku. Og svo var alltaf verið að
taka myndir af mér,“ útskýrir
Paris.
Hilton líkt
við Monroe
Slökkviliðsmenn á höfuð-
borgarsvæðinu útbjuggu
dagatal með myndum af
fjórtán fáklæddum slökkvi-
liðsmönnum og selja í fjár-
öflunarskyni.
„Við erum slökkviliðsmenn á höf-
uðborgarsvæðinu sem förum
þessa fjáröflunarleið í stað þess
að fara í fyrirtæki að biðja
um peninga,“ segir Krist-
mundur Carter slökkviliðs-
maður. Hann er einn þeirra
fjórtán slökkviliðs-
manna sem prýða
dagatal slökkvi-
liðsmanna.
„Við gerð-
um þetta í
fyrsta
skipti fyrir
tveimur árum og það
tókst afbragðsvel.“
Slökkviliðsmenn-
irnir eru að afla fjár
til þess að fara á
heimsleika lög-
reglu- og slökkvi-
liðsmanna, sem
verða haldnir í
Vancouver í Kan-
ada í júlí á næsta
ári. Þangað fara 32
slökkviliðsmenn frá
Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins, auk lög-
reglumanna. „Þar er
keppt í 64 keppnisgrein-
um, bæði greinum sem
tengjast slökkviþættinum
og líka í íþróttum,“ segir
Kristmundur.
Slökkviliðsmennirnir
létu prenta þrjú þúsund
eintök af dagatalinu, og
Kristmundur segir að vel
hafi gengið að selja það.
„Það hefur gengið
rosalega vel og döm-
urnar taka vel í
þetta. Við erum
aðallega að selja
þetta í Smáranum og á bás í
Kringlunni, frá fjögur til tíu fram
að jólum. Við erum sprækir og
otum þessu svolítið að fólki.“
thorunn@frettabladid.is
Slökkviliðið fækkar fötum
DAGATALSMYNDIRNAR Fjórtán slökkviliðs-
menn prýða myndir fyrir mánuðina tólf.
Það er bráðatæknirinn Sveinbjörn Ber-
entsson sem tók myndirnar í dagatalið.
KVIKMYNDASKÓLI ÍSLANDS
KYNNIR ÚTSKRIFTARVERK NEMENDA
Brautskráningarverk nemenda af
kvikmyndabraut verða sýnd í dag
í Bæjarbíói Hafnarfirði kl. 13:00.
Allir velkomnir!
EINELTI
Sameiginlegt verkefni
Hvað geta foreldar gert þegar börnin lenda í einelti?
Leikstjórn og hljóðvinnsla: Haukur H. Þorsteinsson. Lýsing og aðstoð við kvikmyndatöku: Gunnar
Gunnarsson. Leikmynd: Jón Andri Guðmundsson. Handrit: Einar Kárason. Aðstoðarframleiðandi:
Jóhann Ottesen Þórisson. Aðstoðarleikstjórn og klipping: Gunnar B. Guðbjörnsson. Leikarar: Páll
Pálsson, Lára Sveinsdóttir, Ágúst Elí Ásgeirsson, Pétur Einarsson, Ellert A. Ingimundarson, Jakob
van Oofterhout.
ANGORA
Jón Andri Guðmundsson
Sumt fóLk ætti ekki að búa til bíó.
BIÐSTOFAN
Jóhann Ottesen Þórisson
Hvað gerir maður sem finnur sér fyrst
lífsförunaut þegar hann er dáinn?
HIMINNINN ER AÐ HRYNJA...
Gunnar B. Guðbjörnsson
Skyggnst inn í heim Ólafs Arnalds á
tónleikaferðalagi hans um Bretland.
KERAMIK
Haukur H. Þorsteinsson
Fólk skilur stundum ekki hvað okkur
er kærkomið og hvað ekki.
Og hverjum er ekki sama?
LJÓSMYNDARINN
Gunnar Gunnarsson
Áhugaljósmyndari kemur í lítið þorp
þar sem fleira en ljós og skuggi
festast á filmu hans...
SLUGS
Sindri Eldon
Tvö tónlistarmyndbönd með afar
óvinsælli hljómsveit. Fyrir misskilning
komst annað þeirra í spilun í sjónvarpi.
www.kvikmyndaskoli.is