Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 16
20. desember 2008 LAUGARDAGUR
BAUGSMÁL Rannsóknin á skatta-
málum Baugsmálsins brýtur gegn
reglum um hæfilegan málshraða,
auk þess sem þegar hafa verið
gefnar út tvær ákærur í málinu,
segir Gestur Jónsson, verjandi
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Verjandi Jóns Ásgeirs krafðist
þess í byrjun nóvember að rann-
sókn málsins yrði dæmd ólögmæt.
Það sama gerðu verjendur Krist-
ínar Jóhannesdóttur og Stefáns
Hilmarssonar. Krafa verjanda
Stefáns var felld niður þar sem í
ljós kom að hann var ekki ákærð-
ur í málinu. Málið var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Gestur segir ákæruvaldið fallið
á tíma í málinu, sem hófst með hús-
leit í höfuðstöðvum Baugs Group
28. ágúst 2002.
Augljóslega er um þriðju
ákæruna í sama málinu að ræða,
segir Gestur. Rannsókn á meintum
skattalagabrotum hafi klárlega
hafist á sama tíma og rannsókn á
öðrum hlutum Baugsmálsins. Gögn
úr húsleitinni árið 2002 séu til að
mynda notuð í öllum hlutum máls-
ins.
Gestur vísar einnig í dóm Hæsta-
réttar þar sem Haraldur Johann-
essen ríkislögreglustjóri var
dæmdur vanhæfur. Þar komi skýrt
fram að mál sem rekja megi til
húsleitarinnar, og rannsökuð voru
sem eitt mál í byrjun, teljist enn
sama málið.
Gestur gerir einnig athuga-
semdir við hæfi Helga Magnúsar
Gunnarssonar, saksóknara efna-
hagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra,
til að sækja málið. Vísar Gestur til
þess að Helgi Magnús hafi á sínum
tíma verið virkur í rannsókn á
Baugsmálinu. Hann hafi stjórnað
húsleitinni hjá Baugi, og verið
vitni ákæruvaldsins.
Jón Ásgeir, Kristín og fleiri voru
ákærð í hinu upphaflega Baugs-
máli sumarið 2005. Þeim ákærum
var vísað frá dómi, en Jón Ásgeir
var endurákærður ásamt fleirum.
„Það er ekki verið að ákæra
fyrir sömu sakargiftirnar aftur,“
segir Helgi Magnús. Hann segir
málið fráleitt það sama og þegar
hefur verið ákært og dæmt í.
Rétt sé að rannsóknin eigi að
hluta sömu rætur, og að sömu sak-
borningar séu í málunum. Þó sé
málið augljóslega ekki það sama,
enda aðrar sakargiftir og önnur
málsatvik.
Helgi hafnar því alfarið að hann
sé vanhæfur til að sækja málið,
eins og Gestur heldur fram. Það sé
dómara í málinu að taka afstöðu til
þessarar kröfu.
Dómari ákvað í gær að málflutn-
ingur um kröfu verjanda Jóns
Ásgeirs verði flutt 8. janúar, og 12.
janúar verði fjallað um kröfur
verjanda Kristínar. Þingfesta á
ákæru á hendur þeim og fleirum
20. janúar. brjann@frettabladid.is
Ósammála um hvort
nýtt mál sé að ræða
Verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar segir ákæruvaldið fallið á tíma og krefst
þess að rannsókn á skattamálum Baugsmanna verði dæmd ólögmæt. Sækjandi
segir um nýtt mál að ræða þar sem séu sömu sakborningar og í Baugsmálinu.
Í DÓMSAL Gestur Jónsson (til vinstri) verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir
saksóknara í málinu vanhæfan þar sem hann hafi meðal annars leitt húsleit í höfuð-
stöðvum Baugs Group árið 2002. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
PALESTÍNA, AP Hamas-samtökin lýstu
því formlega yfir í gær að vopnahléi
þeirra á Gazaströnd væri lokið. Ísra-
elar segja formlegt samkomulag um
vopnahlé aldrei hafa verið í gildi, en
lýstu þó áhuga sínum á að samkomu-
laginu yrði haldið áfram.
Það voru Egyptar sem höfðu milli-
göngu um að Hamas-samtökin og
Ísraelar gerðu með sér óformlegt
vopnahléssamkomulag fyrir hálfu
ári. Allan þennan tíma hafa Ísraelar
haldið íbúum á Gazasvæðinu í ein-
angrun, sem sjaldnast fékkst rofin
til að koma þangað brýnustu nauð-
synjum með þeim afleiðingum að
neyðin þar hefur vaxið dag frá
degi.
Ísraelar hafa auk þess sent herlið
sitt hvað eftir annað til árása inn á
þéttbýlt Gazasvæðið og haldið áfram
að elta uppi liðsmenn Hamas á
Vesturbakkanum. Hamas-samtökin
segja allt þetta vera gróf brot á
vopnahlésskilyrðum og því sé ekki
réttlætanlegt að framlengja vopna-
hléið. Strax í gær var nokkrum
heimatilbúnum flugskeytum skotið
yfir landamærin frá Gazaströnd til
Ísraels, en ekki ollu þau neinu tjóni.
Ísraelsher segir einnig að skotið hafi
verið á ísraelska hermenn frá Gaza-
strönd, en enginn hafi þar heldur
orðið fyrir tjóni.
Á miðvikudag og fimmtudag var
einnig skotið heimatilbúnum flug-
skeytum frá Gazasvæðinu til Ísra-
els, og á fimmtudag gerði ísraelski
herinn tvisvar árás á grunaða árás-
armenn á Gazasvæðinu. - gb
Hamas segja vopnahléi á Gazaströnd lokið:
Ísraelar uppfylltu
ekki skilyrðiin
ÍSRAELSKT EFTIRLIT Ísraelskir hermenn og skriðdreki við landamæri Gazasvæðisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
39
98
6
11
/0
7
Húfur og vettlingar
1.990kr.Verð frá
í jólapakkann
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
www.ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
7
-2
1
7
4
Hátíðlegir
um jól in
Aukinn árangur með fjölhæfum
æfi ngafélaga. Frábært tæki fyrir
fjölþrautarfólk, hlaup, hjólreiðar,
fjallgöngur o.m.fl .
Fyrir íþróttafólk með markmið.
Magnað útivistartæki með lita- og
snertiskjá. Stútfullt af eiginleikum,
hágæða GPS móttakari, hæðarmælir
(baro), rafeinda-áttaviti o.m.fl .
Eitt vinsælasta og
mest selda Garmin
bílatæki í heimi.
Breiður skjár og skýr
rödd leiða þig alla leið.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
23
94