Fréttablaðið - 20.12.2008, Side 106
78 20. desember 2008 LAUGARDAGUR
Þó að íslenskt hip-hop sé ekki
fyrirferðarmikið í megin-
straumnum eru menn að rappa
og búa til flotta takta úti um allan
bæ eins og þær tvær plötur sem
hér eru til umfjöllunar sýna vel.
Beatmakin Troopa er lista-
mannsnafn Pan Thorarensen, en
hann hefur verið að búa til hæg-
genga og stemningsfulla ins-
trúmental hip-hop tónlist í mörg
ár og á að baki nokkrar plötur
bæði einn og með dúóinu Stereo
Hypnosis. Search For Peace er í
anda sólóplötunnar Peaceful
Thinkin sem kom út fyrir nokkr-
um árum. Þó að tónlist Beatmak-
in Troopa sæti ekki beint tíðind-
um og minni töluvert á
trip-hoppið sem var áberandi
fyrir tíu árum eða svo þá stendur
hún samt vel fyrir sínu. Troopa
hefur góða tilfinningu fyrir grúvi
og er flinkur að finna flott sánd
til að vinna með. Ágæt plata sem
rennur ljúft í gegn.
Introbeats er DJ Intro úr For-
gotten Lores. Tívolí Chillout er
upptökustjóra-plata. Intro sér um
taktana en fær svo alls konar
rappara til að rappa yfir þá. Þetta
er skrambi vel heppnuð plata. Án
efa skemmtilegasta íslenska
rappplatan í langan tíma. Takt-
arnir eru frekar einfaldir, en
mjög ferskir og flottir og rappar-
arnir fara margir á kostum, enda
eru margir af færustu röppurum
landsins á plötunni. Dóri DNA og
Danni Deluxxx úr 1985! eru
þarna og Byrkir B og Diddi Fel
úr Forgotten Lores, 7berg, Bent
o.fl. Það er fullt af flottum lögum
á Tívolí Chillout, t.d. Lukka
Lukka, Eins og..., Lúkurnar upp,
Sjáðu og Borg Óttans. Besta lagið
er samt Á vökunni sem Dóri DNA
rappar. Algjört dúndur og Kæfan
sem 1985! rappar í er litlu síðra.
Sú sveit verður nú að fara að kýla
á plötu, fjandinn hafi það.
Á heildina litið er Tívolí Chill-
out frábær íslensk hip-hop plata.
Hún fær bestu meðmæli.
Trausti Júlíusson
SENA MEÐ LÍFSMARKI
TÓNLIST
Search for Peace
Beatmakin Troopa
★★★
Önnur fín “chill”-plata frá Troopa.
TÓNLIST
Tívolí Chillout
Introbeats
★★★★
Skemmtileg hip-hop plata með glás
af flottum röppurum.
„Heyra mátti öskur frá
blóði drifnum Upton Park
þegar Íslendingarnir
tilkynntu að þeir hygðust
selja West Ham.“ Svona
hefst stór úttekt sem birtist
í breska blaðinu The Sun.
The Sun stillir þeim Björgólfi
Guðmundssyni og Eggerti Magn-
ússyni upp í tíu manna byrjunar-
liði l, sem hafi lagt fjárhag hins
fornfræga knattspyrnufélags
West Ham í rúst. Eins og kom
fram í fjölmiðlum á fimmtudag
hefur Eggert kært Björgólf fyrir
að standa ekki við lokagreiðslu
upp á 200 milljónir íslenskra eftir
að hann var rekinn úr starfi stjórn-
arformanns knattspyrnufélagsins.
The Sun dregur þá báða til ábyrgð-
ar fyrir „Hammers house of Hor-
rors“ eins og það er orðað í blað-
inu en það myndi útleggjast á
íslensku sem hryllingsmynd
Hamranna. En félagið er alla jafn-
an kallað Hamrarnir á Bretlands-
eyjum.
„Ólíkt flestum hryllingsmynd-
um er ekki bara einn vondur karl.
Heldur eru þeir tíu. Tíu Drakúla
greifar sem hafa mergsogið West
Ham,“ skrifar blaðamaður The
Sun. Þeir Björgólfur og Eggert
eru þar efstir á blaði ásamt fyrr-
um stjórnarformanninum Terry
Brown og íranska kaupsýslumann-
inum Kia Joorabchian. Blaðamað-
urinn skautar yfir skrautlegan
tíma Íslendinganna hjá Lundúna-
liðinu. Segir að Eggert hafi eytt
þvílíkum fjárhæðum í leikmenn
að það hefði mátt halda að hann
óttaðist að leikmannakaup kæm-
ust brátt úr tísku. „Alan Curbish-
ley var bara afhentur óútfylltur
tékki og boðið að kaupa hvern
þann leikmann sem hann vildi,“
skrifar blaðamaður The Sun.
Eggert var síðan látinn víkja úr
stóli stjórnarformannsins í sept-
ember 2007 og Björgólfur tók við.
Að sögn blaðamannsins kom það
honum í opna skjöldu hversu mikl-
um peningum Eggert hafði eytt.
„En maður hlýtur að spyrja sig af
hverju enginn úr stjórninni tók í
taumana þegar menn sáu í hvað
stefndi,“ skrifar blaðamaður The
Sun og bætir því við að það eigi
ekkert að koma Björgólfi sérstak-
lega á óvart hversu illa til hafi tek-
ist, hann hafi ágætis reynslu af
slæmum fjárfestingum eins og
ævintýrinu í kringum ferðaskrif-
stofuna XL sem hafi þegar kostað
West Ham fimm milljónir punda.
The Sun leyfir sér að efast um að
það gangi eitthvað vel að finna
kaupanda, sá hinn sami þurfi að
súpa seyðið af dómsmáli Carlos
Tevez. freyrgigja@frettabladid.is
The Sun vandar
Íslendingum ekki
kveðjurnar
LÖGÐU WEST HAM Í RÚST Björgólfur Guðmundsson og Eggert Magnússon eru hluti af
því tíu manna teymi sem lagði fjárhag West Ham í rúst að mati The Sun.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hjónakornin fyrrverandi, Ma-
donna og Guy Ritchie, höfðu til-
kynnt börnum sínum að þau hygð-
ust halda jólin saman. Svona rétt til
að smáfólkið fengi eitthvað fyrir
sinn snúð eftir að hafa upplifað
erfiðan skilnað. Nú er það skipulag
í lausu lofti eftir að enski leikstjór-
inn neitaði Madonnu um að gista á
gamla sveitasetrinu þeirra í Wilt-
skíri. The Sun greinir frá málinu
og segir að Guy hafi óttast
að of margar minningar
frá hveitibrauðsdögun-
um myndu rifjast upp í
kjölfarið.
Blaðið hefur eftir
heimildarmanni
sínum að Guy
sé mjög mikið í
mun að hafa
börnin hjá sér
yfir hátíðarn-
ar. Madonna
og Guy eiga
soninn Rocco
saman auk
þess sem þau
ættleiddu
David Banda.
Lourdes, dóttir
Madonnu af
fyrra sambandi, lítur jafnframt á
Guy sem pabba sinn. „Guy þráir
ekkert heitar en að eyða jóladegin-
um með krökkunum og er reiðubú-
inn til að gera nánast hvað sem er.
Hann vill þó ekki eyða nóttinni
undir sama þaki og Madonna, það
myndi kalla fram sárar minning-
ar,“ segir heimildarmaðurinn við
The Sun.
Að sögn blaðsins eru því öll jóla-
plön í uppnámi en Guy mun hafa
boðist til að fljúga til New York.
Madonnu ku ekki hafa
fallist á það og því eru
hin gleðilegu jól nú í
uppnámi hjá
stjörnufjölskyld-
unni.
Jólaplönin í háaloft
hjá Madonnu og Guy
Í HÁTÍÐARSKAP
Guy er mikill
jólakarl og
vill hafa
börnin hjá
sér á jóladag.
Hann vill hins
vegar ekki
sofa undir sama
þaki og eiginkonan
fyrrverandi.