Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 110
82 20. desember 2008 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
> Komst í gegnum niðurskurðinn
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, hélt
uppteknum hætti á öðrum keppnisdegi Opna Suður-
afríska meistaramótsins í golfi í gær og lék á 72 högg-
um eða á pari vallarins. Birgir Leifur fór fyrri hringinn í
fyrradag á einu höggi undir pari og er því samanlagt á
einu höggi undir pari en það dugði honum til þess að
komast í gegnum niðurskurðinn. Hann
er í 64.-76. sæti af 155 kylfingum en
mótið er liður í Evrópumótaröðinni
og er hans þriðja mót eftir endur-
komuna úr meiðslum. Hann komst
ekki í gegnum niðurskurðinn á fyrri
tveimur mótunum.
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar settu á
fimmtudagskvöldið enn eitt óvin-
sælt met hjá félaginu í úrvals-
deildinni á þessu tímabili, þegar
liðið tapaði með 30 stigum fyrir
Snæfelli í Ljónagryfjunni, 55-85.
Þetta er stærsta tap Njarðvíkur á
heimavelli í sögu félagsins í
úrvalsdeild karla en gamla metið
var frá því 28. október 2001 þegar
liðið tapaði með 24 stigum á móti
nágrönnunum í Keflavík.
Fyrr í vetur hafði liðið tapað
með 25 stigum fyrir FSu í Iðu á
Selfossi í fyrstu umferð sem þá
var stærsta tap liðsins í úrvals-
deild og bætt það met með því að
tapa með 55 stiga mun á móti KR
í DHL-höllinni. Það tap var ekki
aðeins langstærsta tap liðsins í
úrvalsdeild heldur einnig stærsta
tap liðsins á Íslandsmóti.
Njarðvíkurliðið virðist mega
illa við því þegar Logi Gunnars-
son er að hitta illa fyrir utan
þriggja stiga línuna en kappinn
er með 40,1 prósent (18 af 44)
þriggja stiganýtingu í sex sigur-
leikjum liðsins en er síðan aðeins
með 21,6 prósent (8 af 37) þriggja
stiga nýtingu í tapleikjunm fimm.
Hér munar 19,3 prósentum en
Logi er auk þess að skora 8,8 stig-
um meira í sigurleikjunum en í
tapleikjunum.
Það dugar heldur ekki mikið
þótt Friðrik Stefánsson sé að
skila sínu en hann er með 16,0
stig, 13,0 fráköst og 58 prósent
skotnýtingu í þessum skellum á
móti FSu, KR og Snæfelli.
Njarðvíkingar hafa unnið fjóra
af síðustu sex leikjum sínum en
stigatalan í þeim er samt - 40 stig
þar sem töpin tvö á móti KR og
Snæfelli hafa verið svo risastór
og sigrarnir flestir naumir. Liðið
er sem stendur í 6. sæti með jafn-
mörg stig og Snæfell en miklu
verri á innbyrðisviðureignum.
- óój
Njarðvíkurliðið hefur endurskrifað sögu sína í fyrstu ellefu leikjum sínum í vetur:
Þriðja metið í stórum skellum
VERÐUR AÐ VERA HEITUR Logi
Gunnarsson þarf að hitta vel til að
Njarðvík vinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Snæfellingar fóru illa með Njarðvíkinga í Ljónagryfjunni á
fimmtudagskvöldið og annar þjálfara liðsins, Hlynur Bær-
ingsson, var líka mjög sáttur við liðið sem hefur nú unnið
3 af síðustu 4 leikjum sínum. „Við hittum rosalega vel í
fyrri hálfleik, fengum mikið af opnum skotum og settum
þau niður. Ég var mjög ánægður með hvað boltinn gekk vel
á milli manna,“ sagði Hlynur sem er í nýju hlutverki
sem spilandi þjálfari. „Það er að venjast að vera líka
þjálfari og við erum sæmilega sáttir með það að
fara með sex sigra og fimm töp inn í jólafríið. Það
voru tveir heimaleikir á móti Keflavík og ÍR sem
voru slakir hjá okkur og það er eftirsjá að hafa ekki
klárað þá,“ segir Hlynur sem segir nýja hlutverkið
vera krefjandi. „Það getur verið mjög erfitt að
vera spilandi þjálfari og það er svo margt sem
manni yfirsést þegar maður er sjálfur í einhverj-
um barningi. Þetta er samt allt að koma til,“ segir
Hlynur sem er í hópi stoðsendingahæstu leikmanna
deildarinnar og hefur gefið 23 stoðsendingar í síðustu
þremur leikjum, eða 7,7 að meðaltali í leik. „Ég tek bara það
sem mér gefst og er ekki að reyna að þröngva neinu. Skrokk-
urinn er ekki í alveg nógu góðu standi og þá reyni ég bara að
dreifa boltanum og ábyrgðinni,“ segir Hlynur og einn af þeim
sem er að njóta góðs af sendingum hans er Jón Ólafur Jónsson
sem hefur líklega aldrei spilað betur en í vetur. „Það er ótrúlegt
hvað Nonni fær mörg opin skot því leik eftir leik er honum
alltaf gefið skot af einhverjum ástæðum. Þá hikar maður
ekkert við það að gefa á hann strax. Það eru ekkert sér-
staklega margir sem spila betur en hann í vetur. Hann hittir
mjög vel, hefur bætt hjá sér vörnina og er búinn að styrkja
sig með lyftingum undanfarin ár,“ segir Hlynur ánægður með
sinn mann.
Hlynur segir Snæfell ætla sér að komast ofar á nýju ári.
„Stefnan hjá okkur er, eins og hjá þessum liðum sem eru á
eftir Grindavík og KR, að ná að komast í fjórða sætið og við
vonumst til þess að það takist. Við erum sæmilega brattir
eftir fyrri hlutann miðað við allt og allt og ég held að þetta
batni bara hjá okkur,“ sagði Hlynur að lokum.
HLYNUR BÆRINGSSON HJÁ SNÆFELLI: MEÐ 7,7 STOÐSENDINGAR AÐ MEÐALTALI Í SÍÐUSTU ÞREMUR LEIKJUM
Reyni að dreifa boltanum og ábyrgðinni
DÝFINGAR Fyrsta árlega jólamótið
í dýfingum verður haldið í
Sundhöll Reykjavíkur sunnudag-
inn 21. desember. Keppt er í
opnum flokkum karla og kvenna.
Í karlaflokki eru fjögur stökk,
þrjú stökk af eins metra bretti úr
mismunandi flokkum og eitt
stökk af þriggja metra bretti úr
handstöðu. Í kvennaflokki eru
þrjú stökk af eins metra bretti úr
mismunandi flokki.
Keppendur skrá sig með
tölvuskeyti á jonas@hugmot.is en
þeir þurfa að tilkynna stökkin
fyrir mótið og aðstoð við grein-
ingu stökka er í boði af hálfu
dýfinganefndar. Mótið verður
dæmt af íslenskum dýfingadóm-
urum og er dómgæsla á mótinu
liður í dómaranámskeiði. - óój
Jólamót í Sundhöllinni:
Keppt í dýfing-
um á sunnudag
N1-deild karla í handbolta
Víkingur-Fram 25-26 (11-13)
Mörk Víkings: Sverrir Hermansson 9/3, Einar
Örn Guðmundsson 6, Hreiðar Haraldsson 4,
Þröstur Þráinsson 3, Davíð Georgsson 1, Sigurður
Örn Karlsson 1, Hjálmar Þór Arnarson 1.
Mörk Fram: Halldór Jóhann Sigfússon 9/4, Rúnar
Kárason 8, Guðjón Finnur Drengsson 3, Haraldur
Þorvarðarson 2, Brjánn Guðni Bjarnason 1, Andri
Berg Haraldsson 1, Magnús Einarsson 1, Jóhann
Gunnar Einarsson 1.
STAÐAN Í DEILDINNI
Fram 11 7 2 2 307-292 16
Valur 11 6 3 2 307-263 15
Haukar 11 7 0 4 319-287 14
HK 11 5 2 4 292-299 12
Akureyri 11 6 0 5 288-299 12
FH 11 5 2 4 322-322 12
Stjarnan 11 2 2 7 274-295 6
Víkingur 11 0 1 10 282-334 1
Iceland Express karla
Grindavík-ÍR 92-78 (48-41)
Stig Grindavíkur: Guðlaugur Eyjólfsson 20, Páll
Axel Vilbergsson 16, Brenton Birmingham 15, Páll
Kristinsson 12, Þorleifur Ólafsson 10, Arnar Freyr
Jónsson 9 (12 stoðs.), Björn Brynjólfsson
6, Helgi Jónas Guðfinnsson 4.
Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 28, Sveinbjörn
Claessen 11, Ómar Sævarsson 10 (10 frák.),
Steinar Arason 9, Ólafur Ingvason 9, Ólafur
Þórisson 6, Eiríkur Önundars. 3, Davíð Fritzson 2.
Tindastóll-Breiðablik 79-83 (32-31)
Stig Tindastóls: Svavar Birgisson 23, Ísak Einars
son 11 (9 stoðs.), Helgi Rafn Viggósson 10, Axel
Kárason 9, Friðrik Hreinsson 9, Soren Flæng
6, Óli Barðdal 5, Hreinn Birgisson 3, Halldór
Halldórsson 3.
Stig Breiðabliks: Kristján Rúnar Sigurðsson 32,
Nemanja Sovic 25, Halldór Halldórsson 12, Rúnar
Ingi Erlingsson 8, Loftur Þór Einarsson 3, Daníel
Guðmundsson 3.
Skallagrímur-Keflavík 52-97 (28-44)
Stigahæstir: Landon Quick 17 (9 frák.), Igor
Beljanski 13 - Sigurður Gunnar Þorsteinsson 24,
Hörður Axel Vilhjálmsson 18 (11 frák.), Þröstur
Jóhannsson 12.
STAÐAN Í DEILDINNI
KR 11 11 0 1093-793 22
Grindavík 11 10 1 1076-903 20
Keflavík 11 7 4 948-834 14
Tindastóll 11 6 5 874-899 12
Snæfell 11 6 5 883-805 12
Njarðvík 11 6 5 865-938 12
Breiðablik 11 5 6 885-950 10
ÍR 11 5 6 888-872 10
Þór Ak. 11 4 7 879-970 8
Stjarnan 11 3 8 914-946 6
FSu 11 3 8 936-955 6
Skallagrímur 11 0 11 649-1043 0
ÚRLSITIN Í GÆR
HANDBOLTI Framarar verða í
toppsæti N1-deildar karla um
hátíðirnar eftir eins marks sigur,
26-25, á botnliði Víkinga í Víkinni
í gær. Leikurinn var æsispenn-
andi en Framara voru þó lengst-
um skrefinu á undan. Með
þessum úrslitum er ljóst að Fram
mætir HK í undanúrslitum
deildarbikarsins á milli jóla og
nýárs og að í hinum leiknum
mætast Valur og Haukar. - óój
N1-deild karla í gærkvöldi:
Fram á toppn-
um um jólin
ÁTTA MÖRK Rúnar Kárason skoraði 8
mörk gegn Víkingi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁNKÖRFUBOLTI Fyrir leikinn voru
Grindvíkingar með 18 stig í 2. sæti
deildarinnar, en þeir hafa einungis
tapað gegn ósigruðu liði KR.
Breiðhyltingar hafa verið að fikra
sig upp töfluna eftir erfiða byrjun.
Þeir töpuðu fyrstu fimm leikjum
sínum í deildinni en eftir það hafa
þeir unnið sjö leiki í röð í deild og
bikar og leikurinn var því ágætis
prófraun fyrir þá gegn sterku liði
Grindavíkur.
ÍR-ingar féllu hins vegar á próf-
inu því heimamenn höfðu nokkuð
þægilegan sigur, 92-78, og fylgja
KR sem skugginn við topp deild-
arinnar.
„Fyrir utan fyrsta leikhluta var
ég ánægður með vörnina og heilt
yfir var þetta nokkuð fín frammi-
staða, ég er mjög sáttur,“ sagði
Friðrik Ragnarsson þjálfari
Grindavíkur að leik loknum.
„Þegar við skiptum yfir í svæðis-
vörn þá hikstuðu þeir í sókninni og
við fengum trúna á okkar leik.
Síðan spiluðum við fína maður á
mann vörn allan seinni hálfleikinn
og þetta var góður sigur,“ bætti
Friðrik við.
ÍR-liðið hóf leikinn af krafti og
ætlaði greinilega að selja sig dýrt.
Þeir héldu hættulegustu skot-
mönnum Grindavíkur í skefjum
með öflugum varnarleik og spil-
uðu svo skynsamlega í sókninni.
Eftir fyrsta leikhluta var staðan
23-25. Þegar staðan var orðin 35-
27 fyrir ÍR tók Friðrik Ragnarsson
þjálfari Grindavíkur leikhlé.
Hann las aðeins yfir sínum mönn-
um, gerði breytingar í vörninni og
það hafði góð áhrif því þeir skor-
uðu 21 stig gegn 7 það sem eftir
lifði leikhlutans og staðan 48-41 í
hálfleik.
Grindvíkingar hófu þriðja leik-
hluta af svipuðum krafti og þeir
enduðu fyrri hálfleikinn. Þeir juku
muninn jafnt og þétt og Guðlaug-
ur Eyjólfsson var heitur fyrir utan
þriggja stiga línuna, en hann setti
niður öll fjögur þriggja stiga skot
í leikhlutanum. ÍR náði ekki að
minnka muninn í síðasta leikhlut-
anum og Grindvíkingar höfðu
að lokum góðan sigur.
Þetta var síðasti
leikur liðanna í
fyrri umferð
deildar-
innar
og
Frið-
rik var
sáttur
við hlut
Grindvík-
inga: „Við
erum með tíu
sigra og eitt tap
gegn sterku liði KR
þannig að ég get ekki
verið annað en sáttur.
Við verðum bara að halda
áfram að vinna í okkar málum
og gera betur í næsta leik. Við
höfum trú á því að við getum
náð langt í vetur,“ sagði Frið-
rik að lokum.
Breiðablik hélt áfram
góðu gengi sínu á útivelli
þegar liðið vann fjögurra
stiga sigur á Tindastól á
Króknum í gær. Með sigr-
inum komust nýliðarnir
upp í 7. sætið en þetta var
annar útisigur liðsins í röð
og sá þriðji í fjórum leikj-
um. Keflavík tryggði sér
síðan þriðja sæti yfir jólin
með 45 stiga sigri í Borg-
arnesi. -sjj
Getum náð langt í vetur
Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, var sáttur eftir að hans menn enduðu
sjö leikja sigurgöngu ÍR með 14 stiga sigri í Grindavík í gær. Guðlaugur Eyjólfs-
son var sjóðheitur í leiknum og setti niður 6 af 8 þriggja stiga skotum sínum.
HEITUR Guðlaugur Eyjólfsson
hitti úr 6 af 8 þriggja stiga
skotum sínum í sigri Grinda-
víkur á ÍR. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON