Fréttablaðið - 20.12.2008, Blaðsíða 114
86 20. desember 2008 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Margir áhugaverðir leik-
ir fara fram í 16-liða úrslitum
Meistaradeildarinnar en dregið
var í Nyon í Sviss í gær. Liverpool
mætir Real Madrid og þá verður
gríðarleg orrusta milli enskra og
ítalskra félaga þar sem Arsenal
mætir Roma, Chelsea mætir
Juventus og Man. Utd og Inter
eigast við.
Meistaradeildarmeistarar Man.
Utd hitta fyrir gamlan erkióvin,
þegar þeir mæta Inter í 16-liða
úrslitunum, sem er knattspyrnu-
stjórinn litríki José Mourinho,
sem áður stýrði Chelsea og Porto.
Mourinho vann sem kunnugt er
Meistaradeildina með Porto tíma-
bilið 2003-2004 en þá varð United
einmitt á vegi Portúgalanna í 16-
liða úrslitum keppninnar. Mourin-
ho fagnaði jöfnunarmarki Franc-
isco Costinha á síðustu mínútu
seinni leiks félaganna á Old Traff-
ord, sem sendi Porto áfram í 8-liða
úrslitin, á eftirminnilegan hátt
með því að hlaupa eftir hliðarlín-
unni með hendur á lofti.
United á hins vegar góðar minn-
ingar frá því síðast þegar félagið
mætti Inter í Meistaradeildinni.
United hafði þá betur í viðureign
félaganna í 8-liða úrslitum tíma-
bilið 1998-1999 og vann svo að
lokum keppnina eftir dramatískan
úrslitaleik gegn FC Bayern.
„Það er áhugavert að mæta
Mourinho á nýjan leik. Hann er
frábær karakter og okkur kemur
vel saman utan vallar. Hann sló
okkur hins vegar út úr keppninni
með Porto á sínum tíma og núna
vonumst við til þess að lukkan
verði á okkar bandi,“ segir Sir
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
United, eftir að drátturinn varð
ljós.
Sagan á bandi enskra
Síðast þegar Liverpool og Real
Madrid mættust var í úrslitaleik
Evrópubikarsins árið 1981 og þá
fór enska félagið með sigur af
hólmi, 1-0. Liverpool státar enn
fremur af góðum árangri gegn
spænskum félögum og hefur
aðeins tapað einum af fimm leikj-
um sínum á Spáni í Meistara-
deildinni. Rafa Benítez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, hefur
því ærna ástæðu til bjartsýni
þegar hann heimsækir Madrid
þar sem hann þjálfaði bæði
unglingalið og varalið
Real.
Arsenal hefur geng-
ið vel gegn ítölskum
félög-
um upp
á síð-
kastið
og haldið
hreinu í síðustu fjórum leikj-
um sínum gegn þeim í Meist-
aradeildinni. Roma hefur enn
fremur gengið afleitlega gegn
enskum félögum og aðeins unnið
tvo af tólf leikjum sínum gegn
þeim í keppninni. Arsenal og Roma
mættust síðast í keppninni tíma-
bilið 2002-2003 og þá vann Arsenal
útileikinn en gerði jafntefli á
heimavelli sínum.
Knattspyrnustjórinn Claudio
Ranieri hjá Juventus mætir sínum
gömlu lærisveinum í Chelsea en
hann var látinn fjúka þegar Mour-
inho á sínum tíma.
Ranieri skýtur á Chelsea
„Chelsea er einbeitt í því að vinna
Meistaradeildina og ná hátindi
heimsins fyrir Roman Abramov-
ich en okkar markmið er
náttúrulega að koma í
veg fyrir það. Annars
yrði það algjört reið-
arslag fyrir Chel-
sea ef félaginu
myndi mis-
takast ætl-
unarverk
sitt enn og
aftur,“ segir Ranieri í
stríðnistóni á blaða-
mannafundi í gær.
omar@frettabladid.is
Stríð Englands og Ítalíu
Dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í gær en ensku félögin Arsenal,
Chelsea og Man. Utd mæta ítölskum félögunum. Liverpool fékk Real Madrid.
ÓGNA ENSKUM Þremeningarnir
Alessandro del Piero hjá Juventus,
Francesco Totti hjá Roma og Raúl
hjá Real Madrid. NORDIC PHOTOS/AFP
FORNIR FJENDUR OG FÉLAGAR Sir Alex Ferguson og José Mourinho hafa marga
hildina háð innan vallar í gegnum tíðina en eru góðir mátar utan vallar. Þeir eigast
brátt við á nýjan leik. NORDIC PHOTOS/GETTY
VERÐ FRÁ:
49.900 KR.
Veljum íslenskt
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki