Fréttablaðið - 20.12.2008, Page 64
● heimili&hönnun
Gull er merkilegur málmur sem
hefur þekkst í að minnsta kosti
5.500 ár. Málmurinn þykir aðlað-
andi og er mjög verðmætur og því
ekki skrítið að gullliturinn hafi
verið notaður í ýmsa muni í gegn-
um tíðina, oft til að endurspegla
ríkidæmi.
Gull er mjúkur, gljáandi, gulur,
þungur, hamranlegur og linur
málmur sem er ónæmur gegn flest-
um efnum. Gullið er því tilval-
ið í skartgripagerð en sjaldan er
gullið alveg hreint heldur blandað
öðrum málum. Karöt segja til
um hreinleika þess. Til dæmis
er 18 karata gullhringur 18
hlutar af hreinu gulli og 6 hlut-
ar af íblöndunarefnum.
Gull er hægt að móta og
teygja á alla kanta en eina únsu
af gullu er hægt að fletja út í
þynnu sem er um fimm metrar
á kant. Slíkar þynnur eru notaðar
til að gylla til dæmis listmuni en
þykkt þynnunnar getur verið um
0,000127 millimetrar sem er um
400 sinnum þynnri en mannshár. - sg
Gulls ígildi
● Gull er hlýlegur og jólalegur litur. Í réttu magni geta
gulllitaðir munir búið til notalega stemningu á heimilinu.
Spegilglansandi, lítill
og sætur kertastjaki úr
Mirale á 3.360 krónur.
Glansandi og jólalegt
gullkerti úr Byggt og búið
í Kringlunni á 249 krónur. Hjartalaga gjafakassi
með gylltu loki úr
Tiger á 200 krónur.
Kerti sómir sér vel í þessum
sérstaka kertastjaka úr Uniku í
Fákafeni á 1.590 krónur.
Fallegur bolli með sérstæðri
gulláferð úr versluninni Unika
í Fákafeni á 1.490 krónur.
● HREINDÝRAMOTTA
Rjúkandi kaffi eða kakóbolli
er góður í morgunsárið á jóla-
dag. Hönnunarfyrirtækið TRIBE
hefur hannað glæsilega og
jólalega glasamottu sem gerir
fyrsta bollann á jólamorgni
þeim mun jólalegri. Glasa-
mottan hefur fengið nafn-
ið Upon a Midnight Clear eftir
frægu jólalagi sem samið var
árið 1849. Á glasamottunni
stendur gullslegið
hreindýr sem breyt-
ir hvaða hversdags-
lega bolla í jólabolla.
TRIBE var stofnað árið
2006 í Singapore. Sjá
www.tribe.com.
hönnun
L itrík og hávær plastleikföng hafa ráðið ríkjum undir jólatrénu hin síðari ár. Hvernig væri að leyfa ímyndunarafli barnanna að njóta
sín og gefa þeim klassísk og einföld leikföng? Hjá versluninni Pomm-
enyc á Netinu má finna ýmislegt skemmtilegt. Þar er til dæmis til sölu
hefðbundinn rugguhestur úr viði sem hefur verið í framleiðslu í fimmtíu
ár. Stafakubbar úr viði geta bæði nýst til að byggja úr en eru einnig
hentugir til að læra stafrófið af. Hver man svo ekki eftir
gömlu Monchichi-öpunum? Sjá store.pommenyc.
com/home.html
● HLAUPSTÓLLINN Dessert
eða Eftirrétturinn eftir hönnuð-
inn Daniel Klajnberg er girnileg-
ur á að líta. Eftir góða máltíð er
örugglega gott að hlamma sér í
eftirréttinn og láta matinn sjatna.
Hægindastólarnir eru mótaðir úr
frauðplasti og er einnig hægt að
fá fótskemil í sömu línu.
Gömul og gild leikföng
20. DESEMBER 2008 LAUGARDAGUR12