Tíminn - 31.12.1982, Side 6

Tíminn - 31.12.1982, Side 6
6 FÓSTUDAGUR 31. DESEMBER 1982 eftirminnilegustu atburdir lidins árs HVAÐ ER ÞER EFST I HUGA A ARINU SEM ER AÐ LÍÐA? __ * ■ Aramót eru ávallt tímamót í lífí fólks. Menn lítá um öxl og hugleiða liðið ár, hvernig árið hafi verið, hvað hefði mátt fara betur, hvers þeir óski sér á komandi ári, hvort þeir eigi að stíga á stokk og strengja heit fyrir næsta ár og svo framveg- is. Margir hugleiða liðið ár útfrá eigin persónulegri reynslu, en svo eru aðrir sem líta á árið útfrá þjóðfélagslegu sjónar- miði. Hvert svo sem sjón- armiðið er, þá er víst, að vart hugleiða menn Iiðinn tíma meir, en einmitt um áramót. Tíminn hafði nú fyrir áramótin, eins og endranær samband við allmarga þjóðkunna menn á sem flestum svið- um þjóðlífsins, ss. lista- menn, stjórnmálamenn, fulltrúa atvinnulífsins, verkalýðsins, kirkjunnar o.fl. og spurði spurning- arinnar „Hvað er þér efst í huga á árinu sem er að líða? - Hér á eftir fara svör þeirra: - AB ■ Halldór Laxness, ríthöfundur „Aldrei komið út eins mikið af fallegum bókum og nú“ segir Halldór Laxness ■ Nei - það kom engin bók eftir mig fyrir jólin, ég man eiginlega aldrei eftir að hafa gefíð sérstaklega út bók fyrir jólin, mínar bækur hafa komið út á öllum árstímum, sagði Nóbelskáldið Halldór Laxness þegarTíminn ræddi við hann í gær. Nú hafa öll atvinnuleikhúsin í landinu verið með leikrit byggð á skáldsögum þínum á þessu ári, Leikfélag Reykjavíkur með Sölku Völku, f>jóð- leikhúsið með Hús skáldsins og Leikfé- lag Akureyrar með Atómstöðina. Hvemig tilfinning er að sjá á sviði sögupersónur sem maður hefur sjálfur skapað í skáldsögu? Jú, þetta er alveg rétt, það voru þessar uppfærslur á leikgerðum upp úr skáld- sögum eftir mig í kringum afmælið. Maður lítur nú bara á það frá því sjónarmiði hvernig það verkar á mann sem listaverk, ekki með neinum sér- stökum samanburði við sitt eigið verk. Og auðvitað ráða leikhúsmenn hvemig þeir færa upp sitt leikrit, flestir halda sér við textann eftir möguleikum, eftir því sem ég hef tekið eftir þegar þeir hafa fært upp skáldsögur. Ég hef ekki haft neitt sérstakt út á það að setja hvemig þeir fara með það. En það er bara alltaf erfitt að breyta einu listaverki í annað form. Það er út af fyrir sig ekki meðmælavert. Það getur tekist illa á aðra hvora hliðina, annað hvort vegna frumgerðar verksins eða eftirgerðarinn- ar. Það er svona hálfgerð annars flokks meðferð á listaverki að breyta því yfir í annað form, en þetta verður maður nú oft að þola, því að menn halda oft að ef þeir hafa lesið góða skáldsögu, að þeir geti gert úr henni gott leikrit eða góða filmu. En það er náttúrlega ekkert samband þar á milli. Seinna verkið verður því aðeins gott að sá listamaður sé góður og snjall sem það vinnur. Hefurðu eitthvað kynnt þér nýjar bókmenntir íslenskar sem hafa verið að koma út að undanförnu? Eitthvað berst nú fyrir augu mín af því, en ég hef nú ekki kynnt mér verulega. Það er sérstaklega áberandi hvað bækur em orðnar fallegar í sniðunum, og glæsilega prentaðar á feiknalega góðan pappír og með fal- legum skrautlegum spjöldum og fínum hlífðarkápum. Prentlistin er góð og það er ekki eins mikið af prófarkavillum og var fyrir nokkrum árum. Þá var mjög erfitt að fá mann hjá forlögunum sem kunni að lesa prófarkir. Ég stóð oft uppi í miklum vandræðum út af þessu. Það hefur einhvern veginn ekki legið fyrir ■ Guðmundur Steinsson rithöfundur íslendingum fyix en núna 'allt í einu að það eru svo vel lesnar þrófarkir. Mann fer að gruna að þessi prófarkalesarastétt hafi dáið út og komið einhvers lags prentfræðingar í staðinn. En ég hef aldrei séð eins fallegar bækur eins og þessar nýju bækur og ég óska og vona að innihaldið sé eftir því. „Þetta hefur verið mjög spennandi ár. Guðmundur Steinsson lcikritaskáld ■ Þetta hefur verið spennandi ár fyrir mig, og það er þá fyrst og fremst vegna uppfærslu Þjóðleikhússins á Garðveislu, sem ég er afar ánægður með. Að auki eru verk eftir mig að fara upp erlendis, það eru hafnar æfingar á Stundarfriði í Þýskalandi og eftir áramót hefjast æfing- ar á sama verki hjá Konunglega leikhús- inu í Kaupmannahöfn og Dramaten í Stokkhólmi. Þær sýningar fara upp í vor, - sagði Guðmundur Steinsson leikrita- skáld, þegar Tíminn ræddi við hann í' gær, en Guðmundur hefur sennilega verið inest umtalaði leikhúsmaðurinn á íslandi á árinu sem er að kveðja. Finnst þér að fjölmiðlar hafi sýnt ósanngimi í sambandi við umfjöllun um Garðveisluna? Ég vil nú ekki vera að velta vöngum yfir því, en hef nú skýrt það ýtarlega að ég tel alveg fráleitt að sé verið að fjalla um verk í fjölmiðlum, sem enn er í vinnslu. Þegar verkið er komið upp, þá á að tala og þá lætur fólk í ljós sín sjónarmið. Fyrst og fremst finnst mér mál að fólk sé snortið á einhvern hátt af því sem það sér og viðbrögð þess séu skýr og ákveðin og verkið falli ekki. Ég \ er mjög ánægður með viðtökur áhorf- enda og verkið hefur fengið góðan gang og sýningar halda áfram eftir áramót. Svona eftir á að hyggja þá finnst mér að uppfærslan á Garðveislunni sé sú upp- færsla á verki eftir mig sem hefur verið mest spennandi, og þá meina ég það frá því sjónarmiði að viðbrögð áhorfenda hafa verið ákveðin og viðtökurnar góðar. Prestastefnan eftirminnilegust Hr. Pétur Sigurgeirsson biskup. ■ - Þegar ég lít til baka og renni huganum yfir atburði liðins árs, þá kemur prestastefnan á Hólum fyrst upp í hugann, sagði biskup íslands hr. Pétur Sigurgeirsson er Tíminn spurði hann um hvað honum væri efst í huga, þegar árið 1982 er að kveðja. - Það kemur hvort tveggja að þar var tekið fyrir efnið „Friður á jörðu,“ og gert skil ■ Herra Pétur Sigurgeirsson, biskup með miklum'ágætum af frúmmælendum og svo hitt hvemig prestastefnan sjálf tók á þessu máli. Það urðu miklar umræður og menn voru ekki sammála, en menn settu fram skoðanir sínar og í lokin gátu alhr verið einhuga um þá ályktun sem samþykkt var. Sú stund þegar prestastefnan stóð öll saman að ályktuninni um Frið á jörðu, hún mun ætíð verða mér ógleymanleg og sú stund liðins árs sem ég minnist með mestu þakklæti. Og í framhaldi af þessu þá hugsar maður auðvitað um þessi áramót um það sem mannkynið þráir mest að heiminum verði forðað frá þeirri tortím- ingu sem yfir vofir ef áfram heldur með sama hætti. Finnst þér að vegur kirkjunnar hafi vaxið á árinu sem er að kveðja? Já, - ég er ekki í nokkrum vafa um það og hið mikla frumkvæði kirkjunnar í þessari friðarbaráttu hefur gert það að verkum að hlutverk hennar hefur verið að vaxa. Því að auðvitað er kirkjan kölluð til að berjast fyrir betra mannlífi hér á jörðunni, velferð allra manna hér á jörð, hvort sem þeir eru staddir nær okkur eða fjær. „Ánægð með að hafa feng- ið prest eftir 20 ára bið“ - Segir Guðmundur P. Valgeirs- son, Trékyllisvík. ■ „Það kemur nú fyrst í huga mér, að við fengum prest hér í Árnes á s.l. sumri - séra Einar sem var prestur í Sauðlauks- holti sem er nú sestur að hér hjá okkur. Við erum mjög ánægð með þetta eftir að hafa verið prestlaus í líklega ein 20 ár“, sagði GuðmundurV algeirsson á Bæ í Árneshreppi spurður minnsstæðra atburða á árinu sem nú er að kveðja. „Tilfinnanlegasta áfall okkar var aftur á móti að missa æði margt af fólki sem okkur er eftirsjá í, frá Djúpuvík. Þaðan fóru 3 fjölskyldur og eru nú ekki eftir nema 3 manneskjur. Það kemur sér ákaflega illa fyrir þetta byggðarlag ef Djúpavík færi alveg í eyði því segja má að þar hafi verið nokkurskonar hjálpar- sveit fyrir okkur varðandi samgöngur bæði haust og vor“, sagði Guðmundur. Árið sem er að kveðja sagði hann hafa verið þeim Strandamönnum á ýmsan hátt erfitt. „Veturinn var erfiður, sumar- ið kalt og gróðurlaust og afurðir því rýrar. En haustið var sæmilegt". „Nýja árið er svo óráðið að ekki er nokkur leið fyrir kotkarl - sem ekki er heldur spámaður - að segja neitt um það. En fyrst og fremst held ég vanti, að fólkið í landinu sýni skilning og vilja til að komast út úr efnahagsörðugleikun-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.