Réttur - 01.08.1952, Side 8
200
RÉTTUR
Nú eru 3000 manns í hernaðarvinnu hjá Bandaríkja-
mönnum. Ætlunin mun vera að hækka þá tölu upp í 6000.
Þá ynnu jafnmargir menn þar og nú eru bændur á Islandi
eða sjómenn á öllum flotanum. Og verkamann hafa þegar
fengið smjörþefinn af þrælameðferðinni hjá Ameríkönum á
Suðurnesjum.
Það sér hver maður hvert þetta lendir:
Þjóð vor verður sett undir hnútasvipu amerísks auð-
valds, sem rænir auðlindum vorum, arðsýgur verkafólk
vort og geri land vort að alræmdu drápsskeri í stað eyj-
unnar hvítu, sem varpað hefur ljóma á alla Norðurálfu
heims með bókmenntum sínum og þjóðmenningu.
Þegar öxi amerísku leppstjómarinnar á íslandi nú er
reidd að rótum sjávarútvegsins á íslandi, er verið að eyði-
leggja efnahagslega grundvöllinn fyrir sjálfstæði íslands.
Ef einokunaröxin f ær að höggva sundur þessa líftaug utan-
ríkisviðskipta Islands, fiskframleiðsluna, þá er verið að
einangra ísland í þrældómshúsi amerísks einokunarauð-
valds, eins og gert var með okkur á 17. öld af Dönum.
Það var rökrétt ráðstöfun af þjóðinni, er hún stofnaði
lýðveldið 17. júní 1944 að hef ja nýsköpun sjávarútvegsins
um haustið, til að tryggja efnahagslega undirstöðu þjóð-
frelsis vors, og hafna á næsta ári, 1945, herstöðvakröfum
Bandaríkjanna.
Hemámsflokkarnir þrír, sem sviku þjóðina og gerðu
landið að amerískri herstöð em nú að eyðileggja sjávar-
útveginn og munu gera lýðveldið að háði og spotti, nema
þjóðin taki í taumana.
En það mun hún gera.
★
Það var að vísu eitt sinn sú tíð að útlendir embættis-
menn gátu ráðið því, hvort Islendingar veiddu fisk og hve-
nær. •!