Réttur - 01.01.1954, Blaðsíða 29
RÉTTUR
29
ur ríkisrekstur er á Íslandi, þótt ekki sé hann því hættulegur. Það
vinnur markvíst að spillingu íslenzks þjóðíélags og þetta er einn
liður þess. Þessi stefna ameríska auðvaldsins og leppa þess, ætti
að vera nóg til þess að sýna alþýðunni hver lífsnauðsyn henni
er á því að hindra slíka þróun. í þessu efni er viðvörun Þorsteins
Erlingssonar í kvæðinu „Við fossinn“ enn í fullu gildi.
Höfuðverkefnið, sem bíður verkalýðsins, einkum við vaxandi
tök alþýðunnar á ríkisvaldinu, eru hinsvegar þau að ákveða með
hvaða hætti eignaskipun og rekstrarskipulag atvinnulífsins verður.
Er þá fyrst að athuga afstöðuna til þeirra þriggja þátta atvinnu-
rekstrarins, sem hugsaðir eru sem þjónusta við heildina, stærri
eða smærri: ríkisrekstur, bæjarrekstur og samvinnurekstur.
Ríkisrekstur er nú hagnýttur af einokunarauðvaldinu í þágu
þess og notaður að mestu leyti til arðráns á alþýðu, en til að
auka auð og völd yfirstéttarinnar. Því meiri tökum sem alþýðan
nær á ríkisvaldinu, því meir verður þessi ríkisrekstur auðvitað
gerður að raunverulegri þjóðnýtingu. Og það verður löng og erfið
barátta, sem heyja verður, við spillingu, skriffinnsku og áhuga-
leysi í ríkisrekstrinum, unz hægt verður að fá þar upp vel rekin
þjóðnýtt fyrirtæki, sem stjórnað sé og unnið að af sama eða meiri
áhuga en einstaklingur vinnur af við eigin fyrirtæki. En það er
þó verkefni, sem verður að vinnast. Og það er öllum, sem til
þekkja, ljóst, hvílíka hugarfarsbreytingu það þýðir fyrst og fremst
við stjórn og starfsemi hinna ríkisreknu fyrirtækja, bæði þeirra
sem nú eru og þeirra, sem eftir er að skapa.
Bæjarrekstur er form þjóðnýtingar, sem vafalaust á mikla fram-
tíð fyrir sér. Sá rekstur er það smærri og það nær fólkinu og
'eftirliti þess, en ríkisreksturinn, að það er hægara að koma þar
við því efnahagslega lýðræði, sem alþýðan stefnir að að skapa
í atvinnulífinu. Og þegar ríkisstjórn og ríkisvald er komið undir
áhrif alþýðunnar, en einokunarvald það, sem nú þrengir kosti
bæjarrekstursins, brotið á bak aftur, þá fær bæjarrekstur áreiðan-
lega að njóta sín vel sem eitt vinsælasta form þjóðnýtingar.
Samvinnurekstur á hinum ýmsu sviðum atvinnulífsins er einn-
ig tvímælalaust mjög vænlegt form fyrir samstarf og vald fjöld-
ans, minni eða stærri heilda, og á vaxandi framtíð, jafnt í verzlun
og iðnaði, sem í landbúnaði og sjávarútvegi. Samvinnufélagsskapur
íslendinga á eftir að vaxa og breiðast út á nýjum sviðum, sem
hann enn nær lítt til. Og alþýðan á eftir að heyja baráttu fyrir