Réttur - 01.01.1954, Page 32
32
RÉTTUR
aður og verzlun, myndi hafa frjálsræði til að eflast undir þeim
kringumstæðum, sem hér hefur verið lýst. Alþýðan myndi álíta
þörf á því að öllum kröftum þjóðarinnar væri beitt til þess að
efla framleiðsluna, gera þjóðina í heild ríkari. Alþýðan myndi því
jafnhliða því sem hún einbeitir sér að því að skapa fjöldaframtak
í opinberum rekstri, ýta undir einkaframtakið í þeim atvinnu-
rekstri þar sem það ætti við. Þegar ,,einkaframtak“ er ekki notað
sem yfirskyn einokunar til þess að arðræna fólkið fyrirhafnar-
laust, heldur er raunverulegt framtak, stórhugur einstaklinga við
að ráðast í þjóðþrifa-framkvæmdir, þá getur það eigi aðeins
orðið þjóðinni að gagni hvað sjálfa framleiðsluna snertir, heldur
getur beinlínis samkeppni þess orðið nokkur spori hinum þjóð-
nýttu fyrirtækjum, meðan þau eru að yfirvinna skriffinnskustig-
ið, sem sumum þeirra hættir við að staðna á.
Fyrirtæki einkarekstursins myndu verða að hlíta sömu skil-
yrðum og þjóðnýtt fyrirtæki um þau laun og önnur réttindi, er
verkamenn nytu þar. Og alþýðan, samtök hennar og ríkisstjórnir
þær, er styddust við fylgi alþýðu, myndu kappkosta að hafa vin-
samlegt samstarf við einkareksturinn. Það væri ekkert undarlegt
fyrirbrigði að á kæmist gott samstarf milli smákaupmanna og
kaupfélaga, samfara samkeppni á milli þeirra. — Það myndi margt
breytast í hugsunarhætti mannanna, samfara því sem verið væri
að útrýma fjármálaspillingunni sem aðaleinkenni mannfélagsins
og uppræta þá hugmynd að arðrán á almenningi væri æðsta
takmark atvinnulífsins. Og þar að auki skapar hið aukna vald
verkalýðsins í þjóðfélaginu og heilbrigt, sterkt almenningsálit
aðhald að einkarekstrinum, sem beinir honum inn á betri braut-
ir en nú, þegar ofsaleg peningadýrkun og spilling sú, sem fylgir
í kjölfar hennar, er að heltaka þjóðfélagið.
í þjóðfélagi þar sem einokunarauðvaldið er upprætt, hringa-
og hermangaraauðvald ekki lengur til, en þjóðnýttur stóratvinnu-
rekstur í eigu ríkis, bæja og samvinnufélaga aðalform atvinnu-
lífsins, hefur því einkarekstur bæði einyrkja og atvinnurekenda
miklu framfarahlutverki að gegna.