Réttur - 01.01.1954, Síða 75
RÉTTUR
75
nú forvitni á að vita, hvers vegna hann skipti vopnabirgðir þeirra
einhverju máh.
Hann var kennari og sex barna faðir frá einhverri borg, sem
ég er búinn að gleyma nafninu á. Að morgni næsta dags átti
hann að fara heim, en ástandið heima var slíkt, að vonir sínar um
bjarta framtíð þjóð sinni til handa, hafði hann bundið bví að
Rússai* yrðu ráðandi á alþjóðavettvangi, en til þess þurftu þeir
atómvopn að hans dómi. Surtur var heitgeðja, og hann féll á
kné við rúmstokkinn minn og bað til guðs á þann hátt að gefa
Rússum þetta frelsistæki, að ég varð þeirri reynslunni ríkari að
hafa séð og heyrt mann úthella hjarta sínu og biðja skaparann
sem sína einu von. Um mánuði síðar varð atomsprengingin fræga
í Ráðstjórnarríkjunum. Ég veit ekki, hvort sá veraldarbrestur
hefur borizt til eyrna fátækrar fjölskyldu í mér gleymdri borg,
en einn alvarlegasti og ógnþrungnasti veruleiki vorra daga er
sá, að máttarvöld auðvaldslandanna hafa afhent Rússum og
fylgifiskum þeirra réttlætismál hinna þjáðu og undirokuðu. Þetta
er staðreynd, sem er staðfest frá Indlandi til Kenya, frá Gull-
ströndinni til Guatemala og á jafnt rætur í brjósti nýlendubú-
ans sem verkamanns iðnaðarlandanna.
Berjast forvígismenn kapítalismans
fyrir lýðræði?
Umræðuefni hér í kvöld er: Getur lýðræði þróazt í borgara-
legu þjóðfélagi? Ég verð að segja ykkur það hreinskilnislega,
að mér finnst þessi spurning undarlega orðuð, því að hver
maður veit, að lýðræði hefur þróazt í borgaralegu þjóðfélagi,
þótt hins beri að gæta, að borgaralegt þjóðfélag er engin for-
senda lýðræðisins. Það hefur oft ríkt svæsnasta einræði og aftur-
hald í borgaralegu samfélagi. Ef fyrir spyrjendum vakir að
fá svar mitt við því, hvort lýðræði geti orðið fullkomið í slíku
þjóðfélagi, þá verður talsvert annað uppi á teningnum, því að
borgararnir hafa gefizt upp við að hugsa sér nokkra fullkomnun
innan þjóðfélagsins; það starf hafa þeir eftirlátið kommúnistum,
en virðast svo sammála um, að borgaralegu lýðræði stafi ógn og
skelfing af kommúnisma og kommúnistum, sem séu flugumenn