Réttur - 01.01.1954, Page 80
80
RÉTTUR
konar þrælabúðir og uppræta þær fáu, ófullkomnu lýðræðis-
stjórnir, sem til voru á meginlandi Ameríku. Heiðarleiki í al-
þjóðaviðskiptum og lýðræðisást Vesturveldanna kemur þó einna
skýrast fram í samskiptum þeirra sjálfra. Bandaríkin og Bret-
land leggja allmikið kapp á að hervæða Vestur-Þýzkaland eins
og kunnugt er. Frakkar voru tregir til að fallast á þessi áform,
en fyrrnefndir vinir þeirra og bandamenn knúðu þá til hlýðni
með því að hóta þeim að hervæða Þjóðverja á eigin ábyrgð í
trássi við vilja Frakka, þótt slíkt atferli væri brot á öllum þeim
samningum, sem bin vestrænu stórveldi hafa gert sín á milli.
í þessu máli ógnuðu þeir bezta bandamanni sínum með marg-
földu samningsrofi, vitandi það, að hverjum hugsandi manni er
ljóst, að það er engin þörf á þýzkum her til þess að verjast
rússneskri árás, í fyrsta lagi af því að vestrænt lýðræði hvílir nú
orðið á kjarnorkusprengjum, og í öðru lagi telja ýmsir með góð-
um rökum, þar á meðal sérfræðingur sænsku stjórnarinnar í ut-
anríkismálum, að hættan á rússneskri árás sé viðlíka órökstudd
og kennisetningin um meyfæðinguna. Hins vegar verður allt
skiljanlegt, ef þess er gætt, að stjórn afturhaidsins í Þýzka-
landi riðar til falls. Brezk-bandaríska afturhaldið hefur því uppi
áform um að hervæða gömlu þýzku nazistana til þess eflaust að
tryggja lýðræðið í landinu. Svo á fólk úti á íslandi að vera fullt
heilagrar vandlætingar í garð Rússa og vera boðið og búið að
fórna sér og sínum fyrir vestrænt lýðræði, siðmenningu og krist-
indóminn.
Getur lýðræði þróazt í borgaralegu
þjóðfélagi?
Það mun til þess ætlazt, að ég svari þeirri spurningu afdrátt-
arlítið, hvort lýðræði geti þróazt í borgaralegu þjóðfélagi. Ég
er bjartsýnn maður að eðlisfari og hef óbilandi trú á manninum
sem fegurðardýrkandi og sannleiksleitandi veru, þess vegna
svara ég spurningunni játandi og fullyrði, að lýðræði getur þró-
azt í borgaralegu samfélagi og orðið all fullkomið lýðræði að lok-
um, líkt því sem ég nefndi áðan. Þessa skoðun mína styð ég eink-
um við reynsluna af því, hvernig borgaralegt lýðræði komst á.