Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 7
K E T T U R
71
sem allra fyrst. Það sem Sósíalistaflokkurinn telur að nú sé brýnust
þörf að gera eru eftirfarandi samfelldar ráðstafanir:
1) Gera þarf samkomulag við launastéttirnar um réttlátar kjara-
bætur vegna dýrtíðarinnar — kjarabætur, sem fái að standa án
nýrra verðhækkana.
2) Samið sé um verðtryggingu á kaupi og kauphækkun í áföng-
u.m og þannig tryggðir kaupgjaldssamningar til lengri tínia.
3) Reynt sé að ná samkomulagi milli ríkisvalds, atvinnurekenda
og launþega um ráðstafanir til þess að stöðva verðbólguna.
4) Samið verði um styttingu vinnudagsins án skerðingar heild-
artekna.
5) Tekin verði upp heildarstjórn á þjóðarbúskapnum með áætl-
unum til langs tíma, sérstaklega með það fyrir augum að tryggja
örugga og fulla atvinnu handa öllurn og að stjórna skynsamlega
fjárfestingu landsmanna. Hindruð verði með þessu móti röng fjár-
festing og skipuleg stjórn höfð á uppbyggingu atvinnulífsins, sér-
staklega með fullvinnslu íslenzkra afurða fyrir augum.
6) Orugg stjórn ríkisins verði tekin upp á innflutnings- og út-
flutningsverzlun landsmanna til að tryggja að gjaldeyri þjóðarinnar
vcrði varið á sem hagkvæmastan hátt og jafnfraint að beztu mark-
aðsmöguleikar séu jafnan nýttir í þágu þjóðarheildarinnar. Núver-
andi skipulag markaðsöflunar verði tekið til gagngerðrar endur-
skoðunar og komið upp samræmdu, virku markaðsöflunarkerfi.
7) Ráðstafanir til lækkunar á verðlagi verði gerðar m. a. eftir-
farandi:
a. Tollar séu lækkaðir á nauðsynjavörum.
Söluskattur sé felldur niður á þýðingarmiklum nauðsynja-
varningi.
c. Öflugt verðlagseftirlit sé tekið upp og álagning lækkuð, þar sem
hún er óeðlilega há. Efnt sé tii samkeppni milli innflytjenda um
innkaup á ýmsum vörum og þeir aðilr.r, sem hagkvæmust innkaup
gera, látnir sitja fyrir fjármagni