Réttur


Réttur - 01.05.1964, Síða 16

Réttur - 01.05.1964, Síða 16
80 R E T T U R andlitið að því. Hann opnaði og lokaði munninum eins og særður fugl. Líklega var munnurinn uppþornaður af pyndingum. Ekki var honum gefinn vatnssopi að drekka. Fæturnir báru hann ekki lengur, hann féll á gólfið í ómegin ... Gestapómaður náði í fulla könnu aí vatni og hellti öllu úr henni yfir fangann hálfdauðan á gólfinu, hölvaði og ýtti við honum með löppinni, en gaf honum ekki að drekka. Ekki man ég hve oft þetta endurtók sig um nóttina. Fanginn sem þeir fóru svona með hét Bartonj og vann í Júnkers- verksmiðjunum. Ég hafði ekki kynnzt honum, og um nóttina vissi ég ekki deili á honum. Það voru ekki eingöngu pyndingarnar sem höfðu farið svona illa með hann, heldur einnig meðvitundin um það að hann átti sök á þessum fjöldahandtökum, en þær stöfuðu af svikum Vatslavs nokkurs Dvorsaks sem náð hafði trúnaði Bart- onjs. Ég sá síðar þennan áttskildingspiltung Dvorsak í „Nr. 400“. Hann var auðþekktur úr hópnum sem illgresi meðal hveitis. Hann lék skriðdýrshlutverkið. Þegar hann kom frá „yfirheyrslunum“ sást ekki á honum minnsti vottur um innri baráttu, þvert á móti var hann ánægður á svipinn og þurrkaði sér öðru hverju um Júdasar- munninn með handarbakinu, eins og hann hefði gætt sér á glasi af hjór. Gestapómennirnir sýndu honum allt að því nærgætni í um- gengni, enginn rak hann áfram með barsmíð í bakið. Þessi skepna bar ódrengskaparstimpil svikarans á enninu. Ekki leyfði samvizkan lionum að horfast í augu við fórnarlömb sín, en þá hefði hann getað lesið í augum okkar: Mikið ólán, mikið hörmungarólán að við sáum of seint við þér! Ég frétti það eftir frelsunina, að þessi óþokki hafi fyrst fengið 1500,00 og síðan 2000,00 krónur á mánuði fyrir glæpastörf sín og auk þess premíu fyrir „Sonderfalle“. Þegar félaga Bartonj var orðið ljóst hve afleiðingarnar af laus- mælgi hans voru hryllilegar, notaði hann tækifærið nokkrum dög- um síðar til að kasta sér út um glugga á „Nr. 400“. Hann lézt sam- stundis. Ég sat á bekknum og hugleiddi hvers vegna Jelínek-fjölskyldan og Fríd-fjölskyldan væru hér, og hvaða tengsl gætu verið milli þeirra og mín, þá var hurðinni enn einu sinni skellt á gátt og á þröskuld- inum stóð — Júlek! Á eftir honum kom hár Gestapómaður, fölur og með innfallnar kinnar, likastur beinagrind. Hann rak Júlek á undan sér með kylfuhöggum. Júlek var berfættur og skildi eftir sig i

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.