Réttur - 01.05.1964, Page 35
R E T T U R
99
ÓlafsfirSi og Sauðárkrók, — að það leiðir til slæms rekstrar og
gjaldþrots að lokum.
Fiskiðnaðurinn á öllu íslandi kallar því, þó af ólíkum ástæðum
sé, alls staðar á eitt eða annað form þjóðnýtingar: ríkiseign, sam-
vinnurekstur eða bæjarrekstur.
Stjórnleysi og skipulagsleysi í iðnaðinum, hvort sem hann er
fyrir innlendan eða erlendan markað, sligar hann, gerir honum
ófært að standa undir nauðsynlegum kauphækkunum, ýtir undir
verðbólgu og grefur undan samkeppnishæfni við erlenda aðila.
Þetta stjórnleysi hins svokallaða einkaframtaks er löngu úrelt form
fyrir atvinnurekstur í nágrannalöndum okkar.
Það er fyrir löngu kominn tími til þess, að stíga spor áfram til
skipulagningar og til stórreksturs, þar sem hann á við. Skipulags-
leysið er fjötur á íslenzkum iðnaði, fjötur sem þarf að höggva,
svo iðnaðurinn geti þróast og staðið undir síbatnandi lífskjörum.
*
Öll þróun tækni og fjármála stefnir í átt til stórreksturs og eins
konar „einokunar“. Það er ískyggileg en óviðráðanleg staðreynd.
Þessi þróun er studd sterkum rökum vélanna og hagsýni í rekstri.
En hvað þá um vald mannanna sjálfra, fjöldans, yfir vélunum,
yfir skipulagsbákni vélvædds efnahagskerfis, -—- hvað um lýðræðið,
vald lýðsins?
Framkvæmd lýðræðisins, valds mannanna yfir vélum og verk-
smiðjum, verður að gerast með tvennu móti:
Annars vegar á vinnustaðnum — með rekstrarráðum verka- og
starfsfólks verksmiðjunnar, er framkvæmi eins konar samstjórn
m.eð eigandanum á framleiðslunni og geti þannig einnig haft
eftirlit með kostnaði, getu til greiðslu og hækkunar kaups, gróða
og sóun og haft áhrif til breytinga. (Sbr. grein Stefáns Jóh. Stefáns-
sonar: „Rekstursráð“, í Rétti 10. árg. bls. 36—51).
Hins vegar með opinberu eftirliti í samræmi við heildarskipu-
lagning og þjóðhagsáætlun, er framkvæmt sé af ríkisvaldi, sem
verklýðsstéttin og launþegar hafi úrslitaáhrif á. Bezt næst þetta
cðlilega með þjóðnýtingu.
„Allar leiðir liggja til Róm“. 011 tækniþróun, allar fjármálasam-
steypur, beina þróuninni að lokum einu og sömu leið: til sósíalisma,
ef lýðræði á að ríkja, — ef allur auður nútímans á ekki að safnast
i hendur einvaldra auðhringa. Sú verður og þróunin hér. En það
cru til mörg afbrigði á þeirri leið, vegna sérstöðu íslands.
L