Réttur - 01.05.1964, Qupperneq 37
R É T T U R
101
hefur leit til þess að borgarstjórnirnar hafa verið lagðar niður á
þessum stöðum.
Stjórnarskráin gerir tyrkneska minnihlutanum á þingi kleift að
stöðva hina mikilvægustu löggjöf með neitunarvaldi. Til að mynda
eru engin tekjuskattslög á Kýpur, vegna þess að tyrknesku þing-
mennirnir, sem eru í minnihluta, greiddu atkvæði gegn þeim.
Einnig eru þau ákvæði ólýðræðisleg, sem tryggja tyrkneskum
borgurum tvöfalt fleiri opinbera starfsmerm, lögreglumenn og her-
menn en þeir eiga rétt á samkvæmt fólksfjölda.
Grísku íbúarnir eru ekki fj andsamlegir tyrkneska minnihlutan-
um, þeir vilja vinna með honum, viðurkenna og virða jafnrétti
minnihlutans og vilja tryggja réttindi hans. En eins og ljóst er af því
sem að framan er sagt, eru margar greinar stjórnarskrárinnar þess
eðlis að þær tryggja ekki jafnrétti, heldur forréttindi minnihlutans
á kostnað meirihlutans.
Hönd hcimsvaldasinno.
Heimsvaldasinnar tryggðu minnihlutanum þessi forréttindi vit-
andi vits til þess að valda stöðugum ágreiningi.
Ef stj órnarskráin væri endurbætt á þessu sviði og öðrum myndi
ástandið komast í eðlilegt horf og þannig yrði búið í haginn fyrir
það að samvinna þessara tveggja samfélaga gæti þróazt báðum í
hag og heimsvaldasinnum í óhag.
í ágúst 1963 bar Makarios erkibiskup, forseti lýðveldisins, fram
einróma kröfur grísku íbúanna, er hann lýsti yfir því að stjórnar-
skránni yrði breytt, öryggissáttmálinn numinn úr gildi (en í honum
taka Stóra-Bretland, Tyrkland og Grikkland að sér að tryggja
sjálfstæði og fullveldi Kýpurs og vernda stjórnarskrána) og þannig
búið í haginn fyrir óskorað sjálfstæði og sj álfsákvörðunarrétt Kýp-
urbúa.
í byrjun desember afhenti Makarios forseti leiðtogum Tyrkja
tillögur um endurskoðun á 13 greinum í stjórnarskránni. Breyt-
ingartillögurnar fólu það í sér að hætt yrði við aðskilda atkvæða-
greiðslu grískra og tyrkneskra þingmanna í fulltrúadeildinni, að
komið yrði upp sameiginlegum borgarstjórnum, að menn yrðu
valdir í hlutfalli við íbúafjölda til hersins, lögreglunnar og opin-
herra starfa, að komið yrði upp sameinlegum dómstólum, sér-gríska
þingið yrði lagt niður, og að forseti og varaforseti misstu neitunar-
vald sitt.