Réttur - 01.05.1964, Side 41
R É T T U R
105
Heilbrigð þróunarstefna á sviði iðnaðar og efnahagsmála myndi
verða erlendu fjármagni Þrándur í Götu. Fjármagn það sem nauð-
synlegt er myndi vera hægt að fá erlendis sem vaxtalág lán; það
myndi breytast í fjármagn Kýpurbúa í stað þess að erlent fjármagn
hagnist á auðlindum landsins. AKEL og önnur lýðræðisöfl á Kýpur
beita sér fyrir slíkri stefnu.
Efnahagsbandalag Evrópu og Kýpur.
Þegar Bretar áttu í samningum um aðild að Efnahagsbandalagi
Evrópu sótti stjórn Kýpurs einnig um aðild.
Mikilvægasta röksemdin fyrir aðild var sú að Kýpur yrði að
fylgja Bretlandi eftir, þar sem Bretland væri bezti markaðurinn
fyrir framleiðsluvörur Kýpurs. Ef við gerðumst aðilar að Efnahags-
bandalaginu, sögðu þeir, sem beittu sér fyrir því máli á Kýpur,
gætum við selt landbúnaðarvörur okkar á svæði þar sem 200 millj.
manna búa og það yrði stuðningur fyrir iðnað okkar.
Þegar umsókn Breta um aðild að Efnahagsbandalaginu var hafn-
að, var málið einnig tekið út af dagskrá á Kýpur. En ekki verður hjá
því komizt að gera sér grein fyrir hinum háskalegu efnahagslegu
og pólitísku afleiðingum, sem hlotizt hefðu af aðild að Efnahags-
bandalaginu.
í fyrsta lagi er Kýpur land, sem enn á eftir að styrkja sjálfstæði
sitt og gæti ekki fylgt neinum málum eftir við þau Atlanzhafsbanda-
lagsríki, sem eru kjarni Efnahagsbandalagsins.
í öðru lagi er Kýpur vanþróað land með frumstæðan landbúnað,
þar sem margir búa við árstíðabundið atvinnuleysi en iðnaður og
iðja eru á frumstigi. Arið 1960 námu þjóðartekjurnar 52.8 millj.
sterlingspunda miðað við verðlag ársins 1950, eða 78.4 milljónum
sterlingspunda miðað við verðlag nú. Árið 1959 komu 25.4% þjóð-
arteknanna frá landbúnaði; árið 1960 var sambærileg tala 23.3%.
Hlutur iðnaðarins var aðeins 13% 1959 og 12.5% 1960.
Helztu landbúnaðarvörurnar eru appelsínur, sítrónur, greipaldin,
vínber, rúsínur, grænmeti, tóbak, vín og ostar. Aðalmarkaðurinn
fyrir þessar vörur er í Bretlandi. Samkvæmt hagskýrslum ársins
1961 nam útflutningur landbúnaðarafurða, drykkjarfanga og tóbaks
á því ári 6.581.192 sterlingspundum, en 65% fóru til Bretlands.
Sama ár nam útflutningur Kýpurs til Efnahagsbandalagslandanna
5.815.400 sterlingspundum, en meginhluti þess var málmgrýti og
ónnur málmefni; en þar sem þær vörutegundir eru tollfrjálsar inn-