Réttur - 01.05.1964, Blaðsíða 42
106
R É T T U R
an Efnahagsbandalagsins myndi aðild engu breyta um sölu á þeim.
Astæðan til þess að Bretar eru aðalkaupandi að landbúnaðarvör-
um okkar er ekki aðeins tollfriðindi, sem þeir veita, lieldur umfram
allt sú staðreynd að við kaupum frá Bretum þrefalt meira magn
af iðnaðarvörum og öðrum vörum en þeir kaupa af okkur.
Lausnin á því vandamáli að finna markað fyrir landbúnaðar-
vörur Kýpurs er ekki sú að gerast aðili að Efnahagsbandalaginu,
lieldur að auka verzlun við öll ríki, og einkum þau, sem vilja kaupa
framleiðsluvörur Kýpurs á jafnréttisgrundvelli. Síðustu tvö árin
hafa sósíalistísk ríki keypt af okkur vörur fyrir 2 milljónir sterlings-
punda, samkvæmt tviþættum verzlunarsamningum.
Aðild að Efnahagsbandalaginu yrði ekki aðeins örlagarík fyrir
efnahag Kýpurs, heldur myndi hún einnig binda endi á óháða
stefnu landsins. l'ess vegna hefur alþýða manna snúizt gegn aðild
að Efnahagsbandalagi Evrópu.
Stcfna flokks okkar.
Af því sem að framan greinir er ljóst að Kýpurbúar eiga við
erfitt vandamál að etja og eins og áður er tekið fram er ástæðan
Zúrich-samningurinn sem skerðir frelsi landsmanna og veldur
átökum. Lausn þessara vandamála torveldast einnig af undirróðurs-
siarfsemi heimsvaldasinna og erindreka þeirra sem reyna að sundra
alþýðu manna og beygja Kýpur undir nýlendustefnu okkar tíma.
Heimsvaldastefnan er aðalandstæðingur allra Kýpurbúa, bæði
Grikkja og Tyrkja. En þjóðarrembingur tyrknesku leiðtoganna
veldur því að þeir neita að viðurkenna Jressa staðreynd, og með
f.ramferði sínu aðstoða þeir heimsvaldasinna, ekki Tyrki á eyjunni.
Þegar þetta er skrifað er ógnarástand meðal Tyrkja, og margir
lyrkneskir lýðræðissinnar og föðurlandsvinir hafa verið drepnir
vegna þess að Jreir stóðu gegn heimsvaldaþjónkun tyrknesku leið-
toganna.
En þrátt fyrir ógnarástandið gera þúsundir tyrkneskra Kýpur-
búa sér ljóst að þeir geta aðeins tryggt hag sinn og samlanda sinna
með því að berjast við hlið grískra Kýpurbúa gegn hinum sam-
eiginlega andstæðingi — heimsvaldastefnunnni.
Einnig meðal Grikkja er að finna hermdarverkamenn sem ganga
erinda heimsvaldasinna. Mörg dæmi eru um árásir á þá sem berjast
fyrir hagsmunum alþýðunnar.
Heimsvaldasinnar nota hermdarverkamenn til þess að buga al-