Réttur


Réttur - 01.05.1964, Page 44

Réttur - 01.05.1964, Page 44
108 R É T T U R með öllum ráðum aS koma aftur á lögum og reglu og hrinda tyrk- neskri innrás ef í hana yrSi lagt. Flokkurinn telur einingu allra Kýpurbúa, jafnt grískra sem tyrkneskra, og hvaS sem stjórnmála- skoSunum líSur, meginnauSsyn til varnar lýSveldinu. AKEL leggur áherzlu á þjóSlega hagsmuni Kýpurbúa, jafnrétti Grikkja og Tyrkja. Flokkur okkar, sem lagSi rétt mat á Ziirich- samninginn og sá fyrir þá atburSarás sem nú er komin fram, hvetur til einingar allra Kýpurbúa, grískta og tyrkneskra, í baráttu gegn sameiginlegum andstæSingi — heimsvaldastefnunni — til þess aS fullkomna sjálfstæSi Kýpurs. Stefnuskrá sú sem samþykkt var á tíunda þingi flokksins lagSi áherzlu á nauSsyn þess aS lierstöSvar heimsvaldasinna á Kýpur yrSu fjarlægSar og aS MiSjarSarhafiS yrSi kj arnorkuvopnalaust svæSi. Okkar tímar heimila ekki íhlutun um innanlandsmál annarra ríkja. Tyrkland hefur ekki frekar en nokkurt annaS land neinn rétt til íhlutunar urn innanlandsmál Kýpurs og haldi þaS fast viS af- stöSu sína yrSu afleiSingarnar ennþá háskalegri en þær sem Bret- land, Frakkland og Israel máttu þola eftir hina glæfralegu árás á Egyptaland 1956. í baráttu sinni fyrir endurskoSun samninganna og sjálfsákvörS- unarrétti Kýpurbúa lætur AKEL ekki efnahagsvandamálin lönd og leiS, heldur lítur á þau sem snaran þátt í baráttunni fyrir friSi, fyrir afnámi herstöSva og fullu þjóSlegu sjálfstæSi. Flokkurinn fram- fylgir víSsýnni og sveigjanlegri þjóSfrelsisstefnu í því skyni aS sameina þjóSina alla gegn heimsvaldastefnunni. Og aS sjálfsögSu hatast heimsvaldasinnar viS AKEL; þeir krefjast þess aS jafn „hættulegur“ flokkur verSi bannaSur. Asamt AKEL eru margir föSurlandsvinir þeirrar skoSunar aS samráS og samvinna mismunandi stjórnmálaafla séu nauSsynleg í þágu hins sameiginlega málstaðar. AKEL er reiSubúinn til um- ræSna um öll þau mál sem alþýSu varSa og mun fallast á hverjar þær tillögur sem að gagni mega koma. Flokkur okkar er reiðubúinn tii samvinnu og sameiginlegra aðgerða á öllum sviðum í þágu Kýpurbúa og þjóðfrelsisbaráttunnar. Hann mun gera allt sem i hans valdi stendur til þess aS tryggja endurskoðun á samningunum og fullt þjóðlegt sjálfstæði. Með hverjum degi sem líður verða nýlenduherrarnir fyrir nýjum áföllum. Senn kemur að því að þeir glati völdum sínum endanlega. Við lifum á tímum alþýðusigra, þeim tímum þegar fegurstu draumar mannkynsins eru teknir að rætast.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.