Réttur - 01.05.1964, Síða 46
110
R É T T U R
Laráttu hennar fyrir því að treysta fullveldi ríkisins og hnekkja er-
lendum yfirgangi. AKEL hefur lagt ríkisstjórninni til allan liðsstyrk
sinn í þessum tilgangi.
En einingin ein saman myndi ekki nægja til þess að hnekkja yfir-
gangsáætlunum óvina Kýpurs, ef ekki kæmi til annað mikilvægt
atriði, það er að segja samhugur og stuðningur sósíalistísku ríkj-
anna undir forustu Sovétríkjanna, samhugur og stuðningur allra
frelsisunnandi þjóða. Naumast er sá Kýpurbúi til sem ekki viður-
kenni að það er fyrst og fremst stuðningur Sovétríkjanna sem gerir
Kýpur kleift að losna úr klóm heimsvaldasinnanna í Atlantshafs-
bandalaginu. Við Kýpurbúar erurn þakklátir öllum frelsisunnandi
þjóðum, og ekki sízt Sovétríkjunum og öðrum sósíalistískum ríkjum,
fyrir þennan stuðning.
Á Kýpur er ekki um að ræða baráttu milli Grikkja og Tyrkja,
eins og virðast kann í fljótu bragði eða eins og heimsvaldasinnar
vilja láta fólk halda. Þetta er harátta Kýpurbúa gegn Atlantshafs-
bandalaginu, einkanlega heimsvaldastefnu Breta og Bandaríkjanna
sem vilja halda Kýpur sem herstöð sinni í Austurlöndum nær og
sem ógnun við frelisbaráttu Araba og annarra þjóða á þessu svæði.
Ef varðveita á sjálfstæði Kýpurs og tryggja frið milli grískra og
tyrkneskra Kýpurbúa verður að fella úr gildi samningana frá
Zúrich og Lundúnum, leggja niður herstöðvarnar og friðlýsa eyna.
Það er aðeins hægt að leysa vandamál Kýpurs með því að halda
fast við regluna um sjálfsákvörðunarrétt. Við erum sannfærðir um
það að um leið og aflétt hefur verið hættunni á íhlutun heimsvalda-
sinna muni hverfa þær meginástæður sem leitt hafa til átakanna.
Kýpurbúar, jafnt grískir sem tyrkneskir, munu eins og fyrr verða
þess megnugir að leysa vandamál sín á sviði menntamála, fræðslu-
mála, trúmála og annarra án utanaðkomandi íhlutunar. En það
verður að stjórna Kýpur á lýðræðislegan hátt, í samræmi við vilja
meirihluta þjóðarinnar. Eins og í öllum lýðræðisríkjum hefur minni-
hlutinn sín réttindi, og grískir Kýpurbúar hafa margsinnis lýst yfir
þeim vilja sínum að tryggja að fullu réttindi tyrkneska minni-
hlutans.
Afstaða okkar er alveg ljós: AKEL er flokkur verkafólks á Kýpur,
það er að segja flokkur sem sameinar bæði Grikki og Tyrki, jafnt
og fólk af öðru þjóðerni á eynni.
Aður fyrr voru margir Tyrkir félagar í AKEL. Meira en 3.000
tvrkneskir verkamenn voru félagar í Alþýðusambandi Kýpurhúa