Réttur - 01.05.1964, Page 47
R É T T U R
111
(PEO), mun fleiri en hinir sem voru í tyrknesku verkalýðsfélögun-
um. En eftir 1958 þegar átökin milli þjóðarbrotanna hófust, drápu
tyrkneskir hryðjuverkamenn marga tyrkneska félaga í AKEL og
neyddu með ógnunum tyrkneska verkamenn til að segja sig úr PEO
og ganga í tyrkneskt verkalýðsfélag. Tyrkneskum flokksmönnum í
AKEL fækkaði einnig vegna þessa ofbeldisástands. En þetta ber
ekki svo að skilja að AKEL hafi misst sambandið við tyrkneska
verkamenn. Þrátt fyrir átökin eru tyrkneskir félagar í AKEL og eiga
fulltrúa í miðstj órninni.
Eins og tekið er fram í stefnuskrá AKEL viðurkennir flokkurinn
jafnrétti tyrkneska minnihlutans og er reiðubúinn til að tryggja
réttindi hans, eins og Makarios forseti og Kýpurbúar.
Spurning: Borgarablöðin birta frásagnir um að grískir Kýpur-
búar eigi að hafa ofsótt tyrkneska flóttamenn. Hvað getið þið sagt
um það?
Svar: Tyrkneskir flóttamenn eru vandamál hjá okkur. En af
hverju stafar vandinn og hverjir bera sök á honum?
Það eru alger ósannindi að halda því fram að tyrkneska flótta-
mannavandamálið sé afleiðing af „ofsóknum“ Grikkja. Það hefur
ekki verið um neina slíka ofsókn að ræða á Kýpur. Tildrögin eru
þau að tyrkneskir þjóðrembingsmenn og hryðjuverkasamtök tyrk-
neskra öfgamanna hafa með aðstoð hrezkra hersveita tekið sér fyrir
hendur að flytja til annarra héraða (til að mynda til tyrkneska
borgarhlutans í Nikosíu) Tyrki sem bæði fyrir og eftir atburðina i
desember höfðu lifað í friði við gríska nágranna sína. Tilgangurinn
með þessum mannflutningum var sá að koma upp landshlutum með
tyrknesku þétthýli og nota þá síðar sem röksemd fyrir kröfum urn
skiptingu eyjarinnar eða jafnvel um sjálfstjórn fylkja.
Þessir „fólksflutningar" eru framkvæmdir með ýmsu móti. í
upphafi er dreift orðrómi um Jrað að Grikkir hafi í hyggju að strá-
fella Tyrki, og hinir trúgjörnustu Tyrkir láta hafa sig til þess að
flytja á „öruggan“ stað. En yfirleitt ber Jietta herbragð ekki tilætl-
eðan árangur, þar sem tyrknesku sveitamennirnir koma ekki auga
ú að þeim stafi neinn háski af grískum nágrönnum sínum. Þegar
nvíslingarnar bera ekki árangur tekur ofbeldið við. Tyrkir sem
neituðu að flytja hafa orðið fyrir ruddalegum árásum.
Þannig var tyrkneska ilóttamanna„vandamálið“ búið til. Það er
fétl að tyrknesku flóttamennirnir búa við ömurleg skilyrði. Þeir
l'afa á köldum vetrum búið í tjöldum, í skólum og öðrum húsa-